Skólaslit 19. – 23. maí – nánar hér

Skólaslit verða á kennslustöðum sem hér segir:

19.5.2025 Mánudagur 16:00 FLÚ í Félagsheimili Hrunamanna
19.5.2025 Mánudagur 18:30 ÞOR í Þorlákskirkju

20.5.2025 Þriðjudagur 16:00 FLÓ í Þjórsárveri
20.5.2025 Þriðjudagur 16:30 REY í Aratungu
20.5.2025 Þriðjudagur 18:00 LAU/KER í Skálholtskirkju

21.5.2025 Miðvikudagur 18:00 HVE í Hveragerðiskirkju

22.5.2025 Fimmtudagur 15:30 ÞJÓ í Árnesi
22.5.2025 Fimmtudagur 17:30 STO/EYR í BES Stokkseyri

23.5.2025 Föstudagur 17:00 SEL í Selfosskirkju

 

Hver skólaslit eru um 1 klst. löng. Flutt eru tónlistaratriði og nemendur sem ljúka stigs- eða áfangaprófum fá skírteini afhent.

Skólaslit kennslustaða eru með ýmsu móti.

Á minni kennslustöðunum eru skólaslit jafnframt vortónleikar nemendanna og koma nær allir nemendur fram.

Í Hveragerði og Þorlákshöfn fá kennarar úthlutað ákveðnum mínútufjölda m.v. fjölda […]

Skólaslit 19. – 23. maí – nánar hér2025-05-21T10:47:26+00:00

Sönghópur Tónlistarskóla Árnesinga með Sinfóníuhljómsveit Íslands 2. maí

Sönghópur Tónlistarskóla Árnesinga tók þátt í tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands, sem haldnir voru föstudaginn 2. maí í íþróttahúsi FSu, Iðu.

Fjöldi kóra tók þátt í tónleikunum auk sönghóps skólans, en það voru: Jórukórinn, Karlakór Hveragerðis, Kirkjukór Selfosskirkju, Sunnlenskar raddir, Söngsveit Hveragerðis og Kirkjukór Hveragerðis- og Kotstrandarsóknar.

Hljómsveitarstjóri var Eva Ollikainen og einsöngvari Jóhann Kristinsson

Pallar íþróttahússins voru þéttsetnir og dýrmætt að sjá og heyra hljómsveitina, kórana og einsöngvarann flytja hvern gullmolann á fætur öðrum. – En mikið hefði verið gott að geta boðið upp á tónleikasal fyrir flutninginn.

/Helga Sighv.

 

Sinfóníuhljómsveit […]

Sönghópur Tónlistarskóla Árnesinga með Sinfóníuhljómsveit Íslands 2. maí2025-05-14T11:47:26+00:00

Glæsilegir píanóleikarar í heimsókn

Föstudaginn 2. maí heimsóttu tveir ungir og framúrskarandi píanóleikarar Tónlistarskóla Árnesinga og héldu tónleika í sal skólans.

Þetta voru þeir Aristo Sham og Tom Borrow sem báðir hafa unnið til verðlauna í fjölmörgum alþjóðlegum keppnum. Þeir Aristo og Tom komu svo fram í Listaháskóla Íslands daginn eftir, en það var Nína Margrét Grímsdóttir sem hélt utan um ferð þeirra til Íslands.

Tónleikarnir voru í einu orði sagt stórglæsilegir!

/Helga Sighv.

         

Tom Borrow          […]

Glæsilegir píanóleikarar í heimsókn2025-05-14T11:47:41+00:00

„Burtu með fordóma“-fjölskyldutónleikarnir 1. maí

Þann 1. maí tóku um 100 nemendur og kennarar Tónlistarskóla Árnesinga þátt í fjölskyldutónleikum með Sinfóníuhljómsveit Suðurlands í íþróttahúsi Vallaskóla, sem kölluðust „Burtu með fordóma“. Á tónleikunum komu líka fram um 80 leikskólabörn úr Árborg og tvíeykið Gunni og Felix sáu um kynningar og sungu. Stjórnandi tónleikanna var Guðmundur Óli Gunnarsson.

Á tónleikunum voru flutt alls konar lög sem áttu það öll sameiginlegt að hvetja til vináttu og samvinnu. Var það mikið ævintýri fyrir bæði nemendur og kennara að fá tækifæri til að taka þátt í þessu stóra verkefni með Sinfóníuhljómsveit Suðurlands. Nemendur voru allir til mikillar fyrirmyndar – augljóst að þeir […]

„Burtu með fordóma“-fjölskyldutónleikarnir 1. maí2025-05-14T11:47:58+00:00

Smiðjuvika 12. – 16. maí

Vikuna 12. – 16. maí stokkum við upp alla hefðbundna kennslu.

Í stað hefðbundinna kennslustunda sækja nemendur smiðjur/námskeið sem kennarar skólans sjá um.

Miðað er við að nemendur sæki eina til tvær smiðjur. (Nemendur í hálfu námi sæki a.m.k. 1 klst. smiðju og nemendur í heilu námi 2 klst. smiðju).

 

Í pósti til nemenda/foreldra 7.5.2025 er smiðjudagatal fyrir vikuna 12. – 16. maí.

Í dagatalinu má sjá hvaða smiðjur eru í boði á hverjum kennslustað og hvenær þær eru.

ATH. að kennarar sjá um að skrá í smiðjurnar. 

Góða skemmtun í smiðjuvikunni 😊

Smiðjuvika 12. – 16. maí2025-05-07T13:25:31+00:00

Blokkflautu-framhaldsprófstónleikar Sylvíu í Hveragerðiskirkju 13. maí

Sylvía Rossel lýkur blokkflautunámi við Tónlistarskóla Árnesinga með framhaldsprófstónleikum í Hveragerðiskirkju þriðjud. 13. maí kl. 18:00.

Með Sylvíu koma fram Guðjón Halldór Óskarsson sem leikur á sembal; og Blokkflautusveitir Tónlistarskóla Árnesinga undir stjórn Kristínar Jóhönnu Dudziak Glúmsdóttur og Helgu Sighvatsdóttur.

Fjölbreytt og skemmtileg dagskrá með tónlist allt frá endurreinsnartímanum til dagsins í dag, íslensk og erlend.

Aðgangur er ókeypis og öllum opinn!

Blokkflautu-framhaldsprófstónleikar Sylvíu í Hveragerðiskirkju 13. maí2025-05-07T13:05:56+00:00

Söng-framhaldsprófstónleikar Karolinu í Selfosskirkju 12. maí

Karolina Konieczna lýkur söngnámi við Tónlistarskóla Árnesinga með framhaldsprófstónleikum í Selfosskirkju mánud. 12. maí kl. 18:00.

Með Karolinu koma fram Ester Ólafsdóttir sem leikur á píanó og sönghópur Tónlistarskóla Árnesinga undir stjórn Margrétar S. Stefánsdóttur.

Fjölbreytt og skemmtileg söngdagskrá með íslenskum og erlendum lögum.

Aðgangur er ókeypis og öllum opinn!

Söng-framhaldsprófstónleikar Karolinu í Selfosskirkju 12. maí2025-04-23T13:10:54+00:00

Sönghópur Tónlistarskóla Árnesinga með Sinfóníuhljómsveit Íslands 2. maí í íþróttahúsi FSu, Iðu

Sönghópur Tónlistarskóla Árnesinga tekur þátt í tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands, sem haldnir verða föstudaginn 2. maí kl. 19:00 í íþróttahúsi FSu, Iðu.

Aðgangur er ókeypis og öllum opinn!

  • Efnisskrá

    Giuseppe Verdi: Luisa Miller, forleikur
    Giuseppe Verdi: Di Provenza úr La Traviata
    Atli Heimir Sveinsson: Kvæðið um fuglana
    Sigvaldi Kaldalóns: Ave María
    Richard Wagner: Aría Wolframs úr Tannhäuser
    Gioachino Rossini: Largo al factotum úr Rakaranum í Sevilla
    Ludwig van Beethoven: Sinfónía nr. 5 í c-moll, Örlagasinfónían

  • Hljómsveitarstjóri: Eva Ollikainen

  • Einsöngvari: Jóhann Kristinsson

  • Kórar

    Jórukórinn
    Karlakór Hveragerðis
    Kirkjukór Selfosskirkju
    Sunnlenskar raddir
    Söngsveit Hveragerðis og Sönghópur Tónlistarskóla Árnesinga
    Kirkjukór Hveragerðis- og Kotstrandarsóknar

Sönghópur Tónlistarskóla Árnesinga með Sinfóníuhljómsveit Íslands 2. maí í íþróttahúsi FSu, Iðu2025-04-23T11:07:42+00:00

Glæsilegir píanótónleikar 2. maí – gestir í sal skólans, Eyravegi 9 Selfossi

Föstudaginn 2. maí kl. 17:00 fáum við góða gesti, þegar tveir ungir og framúrskarandi píanóleikarar halda tónleika í salnum okkar við Eyraveg 9 á Selfossi.

Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og öllum opinn!

 

Píanóleikararnir hafa báðir unnið til verðlauna í fjölmörgum alþjóðlegum keppnum og

má þar nefna Casagrande, Clara Haskil, Ettlingen, Young Concert Artists, Verbier,

Dublin, Israeli Radio & Jerusalem Symphony Young Artist Competition og Viotti

International Piano Competition.

 

Aristo Sham mun enn fremur taka þátt í Van Cliburn píanókeppninni á þessu ári.

Um hann hafa gagnrýnendur sagt: „a pianist whose playing combines clarity, elegance

and abundant technique (New York Times) og „a young artist with boundless potential

who can […]

Glæsilegir píanótónleikar 2. maí – gestir í sal skólans, Eyravegi 9 Selfossi2025-04-23T10:02:36+00:00

Tónlistarflutningur úti í samfélaginu

Tónlistarflutningur úti í samfélaginu

Auk hefðbundins tónleikahalds innan skólans fara nemendur alltaf af og til eitthvert út í samfélagið og leika á hinum ýmsu viðburðum. Má nefna að málmblásarahópur lék endurreisnartónlis í messu í Selfosskirkju 9. mars, píanó- og sellónemendur komu fram á samkomu eldri borgara í Reykholti 6. mars, söngnemendur á samkomu eldri borgara á Selfossi 20. mars og blokkflautunemandi kom fram á Margmála ljóðakvöldi í Listasafni Árnesinga 20. mars.

Með þessu móti nær skólinn að leggja til samfélagsins, nemendur fá æfingu í að koma fram og um leið verður það mikla starf sem fram fer innan tónlistarskólans, sýnilegt.

Hér fyrir neðan má […]

Tónlistarflutningur úti í samfélaginu2025-04-07T16:20:40+00:00
Þessi vefur notar vafrakökur (cookies) til að tryggja sem besta upplifun þegar hann er skoðaður. Þessi borði hverfur þegar þú samþykkir notkun. Þú getur breytt stillingum á kökum hvenær sem er. Í lagi