Ágætu foreldrar/forráðamenn,
Nú er skólaárið hafið og kennarar skólans búnir að nýta síðustu daga til undirbúnings og samtals. Stundatöflur eru að skýrast og skólastarfið ætti að fara vel af stað.
Á föstudag sóttu kennarar skólans námskeið hjá Eyjólfi Eyjólfssyni. Námskeiðið bar yfirskriftina ,,Íslensk þjóðlög“ og fræddi Eyjólfur okkur um tilurð íslenskra þjóðlaga. Einnig fengu kennarar að leika á langspil og syngja.
Í september eru foreldraheimsóknir en þá er foreldrum/forráðamönnum boðið að koma í tónlistartíma með börnunum sínum. Þann 23. september sækja kennarar tónlistarskólans kennaraþing sem fram fer á Hellu. Þann dag fellur kennsla niður.
Meðfylgjandi má sjá myndir af kennarahópnum og myndir af námskeiði Eyjólfs. Einhverja vantar á myndirnar.

