Events
-
-
Vetrarfrí
Vetrarfrí 27. febrúar – 1. mars. Öll kennsla fellur niður þessa daga. Vetrarfrí tónlistarskólans er samræmt við flesta grunn- og framhaldsskóla sýslunnar.
-
Miðdeildartónleikar í Selfosskirkju 15. mars 2023
Miðdeildartónleikar verða haldnir í Selfosskirkju 15. mars, kl. 18:00. Á tónleikunum koma fram nemedur sem lokið hafa grunnprófi. Efnisskrá tónleikanna er fjölbreytt og gaman að sjá hve góðum tökum nemendur hafa náð á sín hljóðfæri, þegar hér er komið í tónlistarnáminu. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir!
-
Framhaldsdeildartónleikar í Selfosskirkju 16. mars 2023
Framhaldsdeildartónleikar verða haldnir í Selfosskirkju 16. mars, kl. 18:00. Á tónleikunum koma fram nemendur sem lokið hafa miðprófi. Efnisskrá tónleikanna er fjölbreytt og gaman að sjá hve góðum tökum nemendur hafa náð á sín hljóðfæri, þegar hér er komið í tónlistarnáminu. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir!
-
Prófadagar 21. og 22. mars 2023
Prófadagar 21. og 22. mars Kennsla fellur niður á prófadögum. Ekki taka allir nemendur próf á prófadögum, en það eru kennarar sem meta hvenær nemendur eru tilbúnir til að taka næsta stigspróf. Ef spurningar vakna biðjum við nemendur/foreldra að setja sig í samband við kennara.
-
Smiðjuvikan 27. – 31. mars – námskeið/smiðjur í stað kennslu
Í síðustu viku marsmánaðar brjótum við upp hefðbundna kennslu og bjóðum nemendum okkar upp á alls konar námskeið eða smiðjur í staðinn. Miðað er við að: Nemendur í hálfu námi sæki a.m.k. 1 klst. smiðju Nemendur í heilu námi sæki a.m.k. 2 klst. af smiðjum. - Nemendur sæki a.m.k. eina smiðju í heimasveit, en geta valið til viðbótar smiðju eftir óskum/áhugasviði. Skráning í smiðjur fer fram í gegnum kennara, en HÉR má sjá hvaða smiðjur eru í boði á hverjum kennslustað og hvenær. (Hver kennslustaður er í sér flipa). Upplýsingar um viðfangsefni hverrar smiðju má sjá með því að setja [...]
-
-
Páskafrí
Páskafrí 1. – 11. apríl. ATH. að páskafrí tónlistarskólans er einum degi lengra en hjá grunnskólunum. Kennsla hefst aftur eftir páskafrí miðvikudaginn 12. apríl.
-
Frí 20. og 21. apríl
Kennsla fellur niður 20. og 21. apríl Fimmtud. 20. apríl - Sumardagurinn fyrsti Föstud. 21. apríl – Frídagur í tónlistarskólanum vegna styttingar vinnutíma
-
-
Verkalýðsdagurinn 1. maí – Frí
Öll kennsla fellur niður á Verkalýðsdaginn 1. maí.
-
Framhaldsprófstónleikar Hildar Tönju í Hveragerðiskirkju 15. maí
Hildur Tanja Karlsdóttir lýkur framhaldsprófi í fiðluleik frá Tónlistarskóla Árnesinga með opinberum tónleikum í Hveragerðiskirkju 15. maí kl. 18:00 Hvetjum við Sunnlendinga til að nýta sér þetta góða tækifæri til að hlýða á glæsilega tónleika, enda liggur mikil vinna að baki þegar kemur að útskrift frá skólanum. Á dagskrá eru verk eftir Bach, Mozart, Prokofiev, Grieg og Williams. Meðleikarar: Miklós Dalmay píanó og Elísabet Anna Dudziak fiðla. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir!
-
Uppstigningardagur 18. maí – Frí
Öll kennsla fellur niður á uppstigningardegi 18. maí.