Píanó-hringekjutónleikar með fjór- og sexhentum lögum 7. apríl
Píanó-hringekjutónleikar 7. apríl kl. 18:30 í sal skólans Eyravegi 9, Selfossi. Á tónleikunum leika píanónemendur fjórhent og sexhent lög á píanó og skiptast á um að leika á flygil og píanó. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis. Verið öll hjartanlega velkomin!
Páskafrí
Páskafrí 12. – 21. apríl. Öll kennsla fellur niður þessa daga.
Sumardagurinn fyrsti 24. apríl- frí
Sumardagurinn fyrsti 24. apríl– frí.
„Burtu með fordóma“ – Fjölskyldutónleikar 1. maí í íþróttahúsi Vallaskóla
Þann 1. maí kl. 15:00 verða haldnir tónleikar í íþróttahúsi Vallaskóla sem bera heitið "Burtu með fordóma". Tónleikarnir eru samstarfsverkefni Sinfóníuhljómsveitar Suðurlands, Tónlistarskóla Árnesinga, allra leikskóla í Sveitarfélaginu Árborg og Menningar- og upplýsingadeildar Árborgar. Tvíeykið Gunni og Felix sér um að tengja atriðin saman og syngja, en stjórnandi tónleikanna er Guðmundur Óli Gunnarsson. Miðaverð er 500 kr. fyrir 12 ára og yngri / 2.500 fyrir fullorðna - sjá hér: Burtu með fordóma | Tix Upplýsingar um tónleikana af Tix-vefnum: Sinfóníuhljómsveit Suðurlands efnir til fjölskyldutónleika undir yfirskriftinni Burtu með fordóma. Efnisskráin er eins og nafnið gefur til kynna tileinkuð vináttu og samkennd, [...]
Glæsilegir píanótónleikar 2. maí – gestir í sal skólans, Eyravegi 9 Selfossi
Föstudaginn 2. maí kl. 17:00 fáum við góða gesti, þegar tveir ungir og framúrskarandi píanóleikarar halda tónleika í salnum okkar við Eyraveg 9 á Selfossi. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og öllum opinn! Píanóleikararnir hafa báðir unnið til verðlauna í fjölmörgum alþjóðlegum keppnum og má þar nefna Casagrande, Clara Haskil, Ettlingen, Young Concert Artists, Verbier, Dublin, Israeli Radio & Jerusalem Symphony Young Artist Competition og Viotti International Piano Competition. Aristo Sham mun enn fremur taka þátt í Van Cliburn píanókeppninni á þessu ári. Um hann hafa gagnrýnendur sagt: „a pianist whose playing combines clarity, elegance and abundant technique (New [...]
Sönghópur Tónlistarskóla Árnesinga með Sinfóníuhljómsveit Íslands 2. maí í íþróttahúsi FSu, Iðu
Sönghópur Tónlistarskóla Árnesinga tekur þátt í tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands, sem haldnir verða föstudaginn 2. maí kl. 19:00 í íþróttahúsi FSu, Iðu. Aðgangur er ókeypis og öllum opinn! Efnisskrá Giuseppe Verdi: Luisa Miller, forleikur Giuseppe Verdi: Di Provenza úr La Traviata Atli Heimir Sveinsson: Kvæðið um fuglana Sigvaldi Kaldalóns: Ave María Richard Wagner: Aría Wolframs úr Tannhäuser Gioachino Rossini: Largo al factotum úr Rakaranum í Sevilla Ludwig van Beethoven: Sinfónía nr. 5 í c-moll, Örlagasinfónían Hljómsveitarstjóri: Eva Ollikainen Einsöngvari: Jóhann Kristinsson Kórar Jórukórinn Karlakór Hveragerðis Kirkjukór Selfosskirkju Sunnlenskar raddir Söngsveit Hveragerðis og Sönghópur Tónlistarskóla Árnesinga Kirkjukór Hveragerðis- og Kotstrandarsóknar
Söng-framhaldsprófstónleikar Karolinu í Selfosskirkju 12. maí
Karolina Konieczna lýkur söngnámi við Tónlistarskóla Árnesinga með framhaldsprófstónleikum í Selfosskirkju mánud. 12. maí kl. 18:00. Með Karolinu koma fram Ester Ólafsdóttir sem leikur á píanó og sönghópur Tónlistarskóla Árnesinga undir stjórn Margrétar S. Stefánsdóttur. Fjölbreytt og skemmtileg söngdagskrá með íslenskum og erlendum lögum. Aðgangur er ókeypis og öllum opinn!
Blokkflautu-framhaldsprófstónleikar Sylvíu í Hveragerðiskirkju 13. maí
Sylvía Rossel lýkur blokkflautunámi við Tónlistarskóla Árnesinga með framhaldsprófstónleikum í Hveragerðiskirkju þriðjud. 13. maí kl. 18:00. Með Sylvíu koma fram Guðjón Óskar Halldórsson sem leikur á píanó og sembal; og Blokkflautusveitir Tónlistarskóla Árnesinga undir stjórn Kristínar Jóhönnu Dudziak Glúmsdóttur og Helgu Sighvatsdóttur. Fjölbreytt og skemmtileg dagskrá með tónlist allt frá endurreinsnartímanum til dagsins í dag, íslensk og erlend. Aðgangur er ókeypis og öllum opinn!