2025-05-03T00:00:00+00:00

Views Navigation

Event Views Navigation

Today

Söng-framhaldsprófstónleikar Karolinu í Selfosskirkju 12. maí

Karolina Konieczna lýkur söngnámi við Tónlistarskóla Árnesinga með framhaldsprófstónleikum í Selfosskirkju mánud. 12. maí kl. 18:00. Með Karolinu koma fram Ester Ólafsdóttir sem leikur á píanó og sönghópur Tónlistarskóla Árnesinga undir stjórn Margrétar S. Stefánsdóttur. Fjölbreytt og skemmtileg söngdagskrá með íslenskum og erlendum lögum. Aðgangur er ókeypis og öllum opinn!

Blokkflautu-framhaldsprófstónleikar Sylvíu í Hveragerðiskirkju 13. maí

Sylvía Rossel lýkur blokkflautunámi við Tónlistarskóla Árnesinga með framhaldsprófstónleikum í Hveragerðiskirkju þriðjud. 13. maí kl. 18:00. Með Sylvíu koma fram Guðjón Óskar Halldórsson sem leikur á píanó og sembal; og Blokkflautusveitir Tónlistarskóla Árnesinga undir stjórn Kristínar Jóhönnu Dudziak Glúmsdóttur og Helgu Sighvatsdóttur. Fjölbreytt og skemmtileg dagskrá með tónlist allt frá endurreinsnartímanum til dagsins í dag, íslensk og erlend. Aðgangur er ókeypis og öllum opinn!

Þessi vefur notar vafrakökur (cookies) til að tryggja sem besta upplifun þegar hann er skoðaður. Þessi borði hverfur þegar þú samþykkir notkun. Þú getur breytt stillingum á kökum hvenær sem er. Í lagi