2025-12-08T00:00:00+00:00

Views Navigation

Event Views Navigation

Today

Haustfrí 23. – 28. október – kennsla fellur niður

Haustfrí 23. – 28. október – kennsla fellur niður. Ath. að 23. – 24. október eru eins og frídagar í grunnskólunum og FSu. og 28. október eru frídagar vegna styttingar vinnuviku tónlistarskólakennara.

Afmælis-hátíðartónleikar 15. nóv. Íþróttahúsinu Laugarvatni

Afmælis-hátíðartónleikar 15. nóvember kl. 14:00 í íþróttahúsinu á Laugarvatni. Tónlistarskóli Árnesinga var settur í fyrsta sinn í október árið 1955 og fagnar því 70 ára afmæli í haust. Í tilefni af afmælinu verða haldnir hátíðartónleikar þann 15. nóvember á Laugarvatni. Á tónleikunum leiða saman hesta sína nemendur úr öllum hljóðfæra- og söngdeildum skólans auk þess sem leikskólabörnum úr Uppsveitum og Flóa hefur verið boðin þátttaka. Nær allar hljómsveitir og samspilshópar skólans taka þátt í ævintýrinu og það má því reikna með að flytjendur verði um 150 talsins. Í verkefnavali er horft til tónskálda, útsetjara og hljómsveita úr Árnessýslu, auk þess sem [...]

Hausttónleikar

Hausttónleikar Vikuna 24. – 29. nóvember verða haldnir hausttónleikar hvers kennara, þar sem afrakstur haustannar fær notið sín, áður en jólalögin taka við. Allar nánari upplýsingar um stund og stað fáið nemendur hjá sínum kennara.

Jólaspilamennska í desember

Jólaspilamennska. 18. og 19. desember er kennsla óhefðbundin. Í stað kennslu þessa daga, fara kennarar með nemendur (eftir því sem við verður komið) út í samfélagið að leika jólalög og aðra fallega tónlist fyrir samborgarana. Sú spilamennska fer oft fram á öðrum dögum í desember, eða allt eftir því hvenær hægt er að heimsækja t.d. hjúkrunarheimili, leikskóla, verslanir, viðburði og annað sem óskað hefur verið eftir. Þá taka margir nemendur og kennarar tónlistarskólans virkan þátt í Litlu-jólum grunnskólanna þessa daga og leika undir dansi í kringum jólatré.

Jólafrí

Jólafrí Tónlistarskóla Árnesinga stendur frá 20.12.2025 til 5.1.2026. - mánud. 5. janúar 2026 er frí vegna starfsdags kennara, - þriðjud. 6. janúar 2026 hefst kennsla á ný samkvæmt stundaskrá.

Foreldraheimsóknavikan 12. – 16. janúar

Foreldraheimsóknavikan 12. – 16. janúar Í þessum formlegu heimsóknartímum er farið yfir miðsvetrarmatið, sem er núna aðgengilegt í SpeedAdmin. Þá er líka horft fram á veginn og markmið vorannar skoðuð. Hvaða tónleikahald er framundan, er stefnt á próf eða ekki (kennari metur hvenær nemandi er tilbúinn til að taka næsta stig), hvað gengur vel og hvað verið er að vinna með þessa stundina. * Auk þess að mæta í þessa formlegu heimsóknartíma eru foreldrar alltaf velkomnir í tíma og þurfa ekki að gera boð á undan sér.

Þessi vefur notar vafrakökur (cookies) til að tryggja sem besta upplifun þegar hann er skoðaður. Þessi borði hverfur þegar þú samþykkir notkun. Þú getur breytt stillingum á kökum hvenær sem er. Í lagi