Jólaspilamennska í desember
Jólaspilamennska. 18. og 19. desember er kennsla óhefðbundin. Í stað kennslu þessa daga, fara kennarar með nemendur (eftir því sem við verður komið) út í samfélagið að leika jólalög og aðra fallega tónlist fyrir samborgarana. Sú spilamennska fer oft fram á öðrum dögum í desember, eða allt eftir því hvenær hægt er að heimsækja t.d. hjúkrunarheimili, leikskóla, verslanir, viðburði og annað sem óskað hefur verið eftir. Þá taka margir nemendur og kennarar tónlistarskólans virkan þátt í Litlu-jólum grunnskólanna þessa daga og leika undir dansi í kringum jólatré.
Jólafrí
Jólafrí Tónlistarskóla Árnesinga stendur frá 20.12.2025 til 5.1.2026. - mánud. 5. janúar 2026 er frí vegna starfsdags kennara, - þriðjud. 6. janúar 2026 hefst kennsla á ný samkvæmt stundaskrá.
Kennsla hefst eftir jólafrí 6.1.2026 – skv. stundaskrá
Þriðjud. 6. janúar 2026 hefst kennsla á ný eftir jólafrí, samkvæmt stundaskrá.
Foreldraheimsóknavikan 12. – 16. janúar
Foreldraheimsóknavikan 12. – 16. janúar Í þessum formlegu heimsóknartímum er farið yfir miðsvetrarmatið, sem er núna aðgengilegt í SpeedAdmin. Þá er líka horft fram á veginn og markmið vorannar skoðuð. Hvaða tónleikahald er framundan, er stefnt á próf eða ekki (kennari metur hvenær nemandi er tilbúinn til að taka næsta stig), hvað gengur vel og hvað verið er að vinna með þessa stundina. * Auk þess að mæta í þessa formlegu heimsóknartíma eru foreldrar alltaf velkomnir í tíma og þurfa ekki að gera boð á undan sér.
Tónleikaröð 9. – 13. febrúar
Svæðistónleikar 9. – 13. febrúar Í febrúar höldum við nokkra svæðaskipta tónleika í tilefni af Degi tónlistarskólanna (sem er 7. febrúar). Viðfangsefni þessara tónleika er Dýrin okkar. - Þeir nemendur sem taka þátt, fá upplýsingar hjá kennurum. Tónleikarnir verða sem hér segir: Mán. 9.2.2026 – Skálholtskirkja kl. 18:00 (nemendur úr Uppsveitum) Þri. 10.2.2026 – Hveragerðiskirkja kl. 18:00 (nemendur úr Hveragerði og Ölfusi) Mið. 11.2.2026 – Stekkjaskóli kl. 17:00 (nemendur úr Árborg + Flóa) Mið. 11.2.2026 – Stekkjaskóli kl. 18:30 (nemendur úr Árborg + Flóa) Fim. 12.2.2026 – Stekkjaskóli kl. 18:00 (nemendur úr Árborg + Flóa) Fös. 13.2.2026 – Þorlákskirkja kl. [...]
Starfsdagur á öskudegi 18. febrúar
Kennsla fellur niður miðvikud. 18. febrúar vegna starfsdags kennara. Daginn nýta kennarar til undirbúnings vorannar, með fundum og námskeiðum.
Vetrarfrí 23. – 27. febrúar
Öll kennsla fellur niður í tónlistarskólanum vikuna 23. – 27. febrúar. 23.– 24. febrúar eru samræmdir frídagar við stærstu grunnskóla Árnessýslu og FSu, en 25. – 27. febrúar eru frídagar vegna styttingar vinnutíma tónlistarskólakennara.