2026-04-20T00:00:00+00:00

Views Navigation

Event Views Navigation

Today

Vinavika 13. – 17. apríl

Við efnum í fyrsta sinn til VINAVIKU 13. – 17. apríl. Í þessari viku mega nemendur bjóða vini/vinkomu með sér í tíma. Vinavikan er nýjung í skólastarfinu og spennandi að sjá hvernig til tekst. – Endilega nýtið þetta tækifæri til að mæta í félagsskap vinar 😊

Nótutónleikar í Salnum Kópavogi 18. apríl

Nótutónleikar í Salnum, Kópavogi, laugard. 18. apríl kl. 13:00 Á svæðistónleikum skólans í febrúar fengu áheyrendur tækifæri til að velja þau atriði sem þeim þóttu mest heillandi. Þau atriði sem flest stig fengu fóru í „Nótupottinn“ og svo féll það í hlut deildarstjóranna að velja atriði til flutnings á Nótutónleikunum í Kópavogi (uppskeruhátíð tónlistarskóla á Suðurlandi, Suðurnesjum og í Kraganum). Eftirtalin þrjú atriði taka þátt fyrir hönd Tónlistarskóla Árnesinga:    Gunnlaugur Ernst Hákonarson, selló    Daníel Ingvarsson, saxófónn    Söngfuglar Tónlistarskóla Árnesinga Við óskum nemendum og kennurum til hamingju með að vera valin til þátttöku í þessum skemmtilega viðburði.  

Þessi vefur notar vafrakökur (cookies) til að tryggja sem besta upplifun þegar hann er skoðaður. Þessi borði hverfur þegar þú samþykkir notkun. Þú getur breytt stillingum á kökum hvenær sem er. Í lagi