Söng-framhaldsprófstónleikar Karolinu í Selfosskirkju 12. maí
Karolina Konieczna lýkur söngnámi við Tónlistarskóla Árnesinga með framhaldsprófstónleikum í Selfosskirkju mánud. 12. maí kl. 18:00. Með Karolinu koma fram Ester Ólafsdóttir sem leikur á píanó og sönghópur Tónlistarskóla Árnesinga undir stjórn Margrétar S. Stefánsdóttur. Fjölbreytt og skemmtileg söngdagskrá með íslenskum og erlendum lögum. Aðgangur er ókeypis og öllum opinn!
Blokkflautu-framhaldsprófstónleikar Sylvíu í Hveragerðiskirkju 13. maí
Sylvía Rossel lýkur blokkflautunámi við Tónlistarskóla Árnesinga með framhaldsprófstónleikum í Hveragerðiskirkju þriðjud. 13. maí kl. 18:00. Með Sylvíu koma fram Guðjón Halldór Óskarsson sem leikur á sembal; og Blokkflautusveitir Tónlistarskóla Árnesinga undir stjórn Kristínar Jóhönnu Dudziak Glúmsdóttur og Helgu Sighvatsdóttur. Fjölbreytt og skemmtileg dagskrá með tónlist allt frá endurreinsnartímanum til dagsins í dag, íslensk og erlend. Aðgangur er ókeypis og öllum opinn!
Barokktónleikar söngdeildar í Selfosskirkju 15. maí
Söngdeild Tónlistarskóla Árnesinga heldur barokktónleika í Selfosskirkju fimmtud. 15. maí kl. 17:00. Flutt verður tónlist frá barokktímabilinu (1600-1750), en flytjendur eru söngnemendur undir stjórn Margrétar S. Stefánsdóttur og Eyjólfs Eyjólfssonar. Ester Ólafsdóttir leikur með á sembal og Uelle Hahndorf á selló. Aðgangur er ókeypis og öllum opinn!
Skólaslit 19. – 23. maí – nánar hér
Skólaslit verða á kennslustöðum sem hér segir: 19.5.2025 Mánudagur 16:00 FLÚ í Félagsheimili Hrunamanna 19.5.2025 Mánudagur 18:30 ÞOR í Þorlákskirkju 20.5.2025 Þriðjudagur 16:00 FLÓ í Þjórsárveri 20.5.2025 Þriðjudagur 16:30 REY í Aratungu 20.5.2025 Þriðjudagur 18:00 LAU/KER í Skálholtskirkju 21.5.2025 Miðvikudagur 18:00 HVE í Hveragerðiskirkju 22.5.2025 Fimmtudagur 15:30 ÞJÓ í Árnesi 22.5.2025 Fimmtudagur 17:30 STO/EYR í BES Stokkseyri 23.5.2025 Föstudagur 17:00 SEL í Selfosskirkju Hver skólaslit eru um 1 klst. löng. Flutt eru tónlistaratriði og nemendur sem ljúka stigs- eða áfangaprófum fá skírteini afhent. Skólaslit kennslustaða eru með ýmsu móti. Á minni kennslustöðunum eru skólaslit jafnframt vortónleikar nemendanna og koma nær [...]
Píanókennara vantar í 50% starf – umsóknarfrestur til 27. júní
Píanókennari og meðleikari 50% starf + afleysingar | Tónlistarskóli Árnesinga Tónlistarskóli Árnesinga óskar eftir að ráða til starfa píanókennara og meðleikara frá 1. ágúst 2025. Kennslustaður: Þorlákshöfn (+ afleysingar í Hveragerði) Menntunar- og hæfniskröfur: Tónlistarkennaramenntun og/eða kennslureynsla Færni í meðleik Virðing og lipurð í mannlegum samskiptum Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð Hreint sakavottorð Kennt er samkvæmt Aðalnámskrá tónlistarskóla. Launakjör skv. kjarasamningum FT og FÍH við Samband íslenskra sveitarfélaga. Nánari upplýsingar veitir Helga Sighvatsdóttir skólastjóri. Síma 861-9687, póstfang: helga@tonar.is. Umsóknarfrestur er til 27. júní 2025. Með umsókn fylgi upplýsingar um menntun og fyrri [...]