2026-09-01T00:00:00+00:00

Views Navigation

Event Views Navigation

Today

Auglýst eftir aðstoðarskólastjóra – umsóknarfrestur til 22. maí

Aðstoðarskólastjóri Tónlistarskóla Árnesinga Auglýst er eftir aðstoðarskólastjóra til starfa við Tónlistarskóla Árnesinga frá 1. ágúst 2026. Stjórnunarhlutfall er um 85%, kennsluskylda 15%. Umsóknarferstur er til 22. maí 2026 Sjá nánar hér: Aðstoðarskólastjóri Tónlistarskóla Árnesinga | Tónlistarskóli Árnesinga  

Skólaslit á kennslustöðum

Skólaslit verða á kennslustöðum sem hér segir: 21. maí kl. 16:00 í BES Stokkseyri – nemendur frá Stokkseyri og Eyrarbakka 21. maí kl. 18:00 í Þorlákskirkju – nemendur úr Þorlákshöfn   22. maí kl. 15:00 í Félagsheimilinu Árnesi – nemendur úr Hrunamannahreppi og Skeiða- og Gnúpverjahreppi 22. maí kl. 16:00 í Félagsheimilinu Árnesi – nemendur úr Hrunamannahreppi og Skeiða- og Gnúpverjahreppi   26. maí kl. 16:00 í Félagsheimilinu Aratungu – nemendur úr Reykholtsskóla 26. maí kl. 18:00 í Skálholtskirkju – nemendur úr Bláskógaskóla Laugarvatni og Grímsnes- og Grafningshreppi 26. maí kl. 18:00 í Hveragerðiskirkju – nemendur úr Hveragerði og Ölfusi   [...]

Foreldraheimsóknir 7.- 11. september

Tvisvar á vetri fá foreldrar formlegt boð um að mæta í tíma með börnum sínum, en þeir eru alltaf velkomnir í tíma og þurfa ekki að gera boð á undan sér. Fyrsta formlega foreldravika vetrarins verður vikuna 7. - 11. september. Ef þið getið ekki mætt er gott að setja sig í samband við kennara til að fá upplýsingar um vetrarstarfið framundan.

Kennaraþing 23. sept. – kennsla fellur niður

Kennsla fellur niður miðvikud. 23. september, en þá mæta kennarar á haustþing tónlistarskólakennara á Hellu. Þar hittast kennarar af Suðurlandi og Suðurnesjum, sitja námskeið og ræða saman um ýmis fagleg málefni tengd tónlistarkennslu.

Þessi vefur notar vafrakökur (cookies) til að tryggja sem besta upplifun þegar hann er skoðaður. Þessi borði hverfur þegar þú samþykkir notkun. Þú getur breytt stillingum á kökum hvenær sem er. Í lagi