2026-10-11T00:00:00+00:00

Events

Views Navigation

Event Views Navigation

Today
  • Hausttónleikar

    Hausttónleikar Vikuna 24. – 29. nóvember verða haldnir hausttónleikar hvers kennara, þar sem afrakstur haustannar fær notið sín, áður en jólalögin taka við. Allar nánari upplýsingar um stund og stað fáið nemendur hjá sínum kennara.

  • Jólaspilamennska í desember

    Jólaspilamennska. 18. og 19. desember er kennsla óhefðbundin. Í stað kennslu þessa daga, fara kennarar með nemendur (eftir því sem við verður komið) út í samfélagið að leika jólalög og aðra fallega tónlist fyrir samborgarana. Sú spilamennska fer oft fram á öðrum dögum í desember, eða allt eftir því hvenær hægt er að heimsækja t.d. hjúkrunarheimili, leikskóla, verslanir, viðburði og annað sem óskað hefur verið eftir. Þá taka margir nemendur og kennarar tónlistarskólans virkan þátt í Litlu-jólum grunnskólanna þessa daga og leika undir dansi í kringum jólatré.

  • Jólafrí

    Jólafrí Tónlistarskóla Árnesinga stendur frá 20.12.2025 til 5.1.2026. - mánud. 5. janúar 2026 er frí vegna starfsdags kennara, - þriðjud. 6. janúar 2026 hefst kennsla á ný samkvæmt stundaskrá.

  • Foreldraheimsóknavikan 12. – 16. janúar

    Foreldraheimsóknavikan 12. – 16. janúar Í þessum formlegu heimsóknartímum er farið yfir miðsvetrarmatið, sem er núna aðgengilegt í SpeedAdmin. Þá er líka horft fram á veginn og markmið vorannar skoðuð. Hvaða tónleikahald er framundan, er stefnt á próf eða ekki (kennari metur hvenær nemandi er tilbúinn til að taka næsta stig), hvað gengur vel og hvað verið er að vinna með þessa stundina. * Auk þess að mæta í þessa formlegu heimsóknartíma eru foreldrar alltaf velkomnir í tíma og þurfa ekki að gera boð á undan sér.

  • Tónleikaröð 9. – 13. febrúar

    Svæðistónleikar 9. – 13. febrúar Í febrúar höldum við nokkra svæðaskipta tónleika í tilefni af Degi tónlistarskólanna (sem er 7. febrúar). Viðfangsefni þessara tónleika er Dýrin okkar. - Þeir nemendur sem taka þátt, fá upplýsingar hjá kennurum.   Tónleikarnir verða sem hér segir: Mán. 9.2.2026 – Skálholtskirkja kl. 18:00 (nemendur úr Uppsveitum) Þri.  10.2.2026 – Hveragerðiskirkja kl. 18:00 (nemendur úr Hveragerði og Ölfusi) Mið. 11.2.2026 – Stekkjaskóli kl. 17:00 (nemendur úr Árborg + Flóa) Mið. 11.2.2026 – Stekkjaskóli kl. 18:30 (nemendur úr Árborg + Flóa) Fim. 12.2.2026 – Stekkjaskóli kl. 18:00 (nemendur úr Árborg + Flóa) Fös. 13.2.2026 – Þorlákskirkja kl. [...]

  • Starfsdagur á öskudegi 18. febrúar

    Kennsla fellur niður miðvikud. 18. febrúar vegna starfsdags kennara. Daginn nýta kennarar til undirbúnings vorannar, með fundum og námskeiðum.

  • Vetrarfrí

    Öll kennsla fellur niður í tónlistarskólanum vikuna 23. – 27. febrúar. 23.– 24. febrúar eru samræmdir frídagar við stærstu grunnskóla Árnessýslu og FSu, en 25. – 27. febrúar eru frídagar vegna styttingar vinnutíma tónlistarskólakennara.

  • Starf skólastjóra Tónlistarskóla Árnesinga laust til umsóknar – umsóknarfrestur til og með 14. apríl

    Af vef ráðningarstofunnar www.mognum.is SKÓLASTJÓRI TÓNLISTARSKÓLA ÁRNESINGA - 50skills - - - SKÓLASTJÓRI TÓNLISTARSKÓLA ÁRNESINGA Árborg - Fullt starf Umsóknarfrestur: 14.04.2026 Tónlistarskóli Árnesinga leitar að öflugum leiðtoga til að stýra faglegu starfi og rekstri eins stærsta og umsvifamesta tónlistarskóla landsins. Skólastjóri ber ábyrgð á faglegu starfi, daglegum rekstri og þróun skólans og leiðir öflugt teymi starfsfólks. Helstu verkefni og ábyrgð Stjórnun og ábyrgð á daglegum rekstri og starfsemi skólans Leiða faglegt starf skólans og stuðla að áframhaldandi þróun tónlistarnáms Mannauðs- og launamál Samskipti við sveitarfélög, grunnskóla og aðra samstarfsaðila Áætlanagerð og upplýsingagjöf Vinna með starfsmönnum skólans að stefnumótun og þróun starfseminnar Ýmis [...]

  • Framhaldsdeildartónleikar í Hveragerðiskirkju 16. mars

    Framhaldsdeildartónleikar verða haldnir mánudaginn 16. mars kl. 18:15 í Hveragerðiskirkju. Flytjendur hafa allir lokið miðprófi (5. stigi) á sitt hljóðfæri. Dagskrá er fjölbreytt og gaman að fylgjast með leikni nemendanna þegar hér er komið í námi. Aðgangur er ókeypis - Verið öll hjartanlega velkomin!

Þessi vefur notar vafrakökur (cookies) til að tryggja sem besta upplifun þegar hann er skoðaður. Þessi borði hverfur þegar þú samþykkir notkun. Þú getur breytt stillingum á kökum hvenær sem er. Í lagi