Events
-
-
Einkatímar hefjast 28.8.2023
Kennsla í einkatímum hefst mánud. 28. ágúst 2023 samkvæmt stundaskrá.
-
-
Hóptímar hefjast 4.9.2023
4. september hefjast allir hóptímar, þ.e. tónfræðitímar, hljómsveitaræfingar, samspil og meðleikstímar. Upplýsingar um skráningu í hóptíma fást hjá kennurum og í SpeedAdmin appinu.
-
Foreldraheimsóknarvika
Í foreldraheimsóknarviku eru foreldrar sérstaklega boðnir velkomnir í tíma með barni sínu, til að fara yfir markmið og verkefni vetrarins með kennara. Foreldrar eru að auki velkomnir í kennslustund hvenær sem er.
-
Starfsdagur tónlistarskólakennara 28.9.2023
Öll kennsla fellur niður fimmtud. 28. september vegna starfsdags tónlistarskólakennara, en þeir sækja námskeið og fundi þennan dag.
-
Föstud. 29. sept. kennt skv. stundaskrá
Föstud. 29. sept. er kennt samkvæmt stundaskrá í Tónlistarskóla Árnesinga. Grunnskólakennarar í Árnessýslu eru á haustþingi þennan dag og því ekki almenn kennsla í grunnskólunum. Nemendur/foreldrar eru beðnir um að hafa samband við tónlistarkennara ef spurningar vakna vegna kennslu 29. sept.
-
-
Haustfrí
Haustfrí 12. – 17. október. Öll kennsla fellur niður í tónlistarskólanum þessa daga. 12. og 13. október eru sameiginlegir frídagar tónlistarskólans, flestra grunnskóla sýslunnar og FSu. ATH. 16. og 17. október eru frídagar í tónlistarskólanum, en ekki í hinum skólunum. Þessir frídagar eru tilkomnir vegna styttingar vinnutíma tónlistarkennara.
-
-
Blásaradeildartónleikar 3. nóv. – Sal Stekkjaskóla
Blásaradeildartónleikar verða haldnir í sal Stekkjaskóla á Selfossi. fös. 3. nóv. kl. 17:00 Á þessum tónleikum er fókusinn á alls konar stærri og smærri samspil. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir!
-
Blokkflautudeildartónleikar 6. nóv. – Sal Stekkjaskóla
Blokkflautudeildartónleikar verða haldnir í sal Stekkjaskóla á Selfossi, mán. 6. nóv. kl. 18:00. Á þessum tónleikum er fókusinn á alls konar stærri og smærri samspil. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir!
-
Gítardeildartónleikar 8. nóv. – Sal Stekkjaskóla
Gítardeildartónleikar verða haldnir í sal Stekkjaskóla á Selfossi, miðvikud. 8. nóv. kl. 18:00. Á þessum tónleikum er fókusinn á alls konar stærri og smærri samspil. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir!
-
Strengjadeildartónleikar 9. nóv. – Sal Stekkjaskóla
Strengjadeildartónleikar verða haldnir í sal Stekkjaskóla á Selfossi. fimmtud. 9. nóv. kl. 17:30 Á þessum tónleikum er fókusinn á alls konar stærri og smærri samspil. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir!