2025-05-07T00:00:00+00:00

Views Navigation

Event Views Navigation

Today

Framhaldsdeildartónleikar Eyravegi 9, Selfossi

Framhaldsdeildartónleikar Tónlistarskóla Árnesinga verða haldnir fimmtudaginn 20. mars kl. 18:00 í sal skólans Eyravegi 9 á Selfossi. Flytjendur hafa allir lokið miðprófi (5. stigi) á sitt hljóðfæri og sumir að stefna á framhaldspróf (7. stig) í vor. Dagskrá er fjölbreytt og gaman að fylgjast með leikni nemendanna þegar hér er komið í námi.   Aðgangur er ókeypis - Verið öll hjartanlega velkomin!

Prófadagar 31. mars – 2. apríl. Kennsla fellur niður

Prófadagar verða 31. mars - 2. apríl.  Á prófadögum fellur kennsla niður, en kennarar eru á ferð og flugi að fylgja nemendum í próf og að dæma próf. Ekki taka allir nemendur próf á prófadögum, heldur meta kennarar hvenær nemendur eru tilbúnir að þreyta næsta stigs- eða áfangapróf.   Nánari upplýsingar um námsmat í Tónlistarskóla Árnesinga má finna hér: Námsmat — Tónlistarskóli Árnesinga

Píanó-hringekjutónleikar með fjór- og sexhentum lögum 7. apríl

Píanó-hringekjutónleikar 7. apríl kl. 18:30 í sal skólans Eyravegi 9, Selfossi. Á tónleikunum leika píanónemendur fjórhent og sexhent lög á píanó og skiptast á um að leika á flygil og píanó. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis. Verið öll hjartanlega velkomin!

Páskafrí

Páskafrí 12. – 21. apríl. Öll kennsla fellur niður þessa daga.

„Burtu með fordóma“ – Fjölskyldutónleikar 1. maí í íþróttahúsi Vallaskóla

Þann 1. maí kl. 15:00 verða haldnir tónleikar í íþróttahúsi Vallaskóla sem bera heitið "Burtu með fordóma". Tónleikarnir eru samstarfsverkefni Sinfóníuhljómsveitar Suðurlands, Tónlistarskóla Árnesinga, allra leikskóla í Sveitarfélaginu Árborg og Menningar- og upplýsingadeildar Árborgar. Tvíeykið Gunni og Felix sér um að tengja atriðin saman og syngja, en stjórnandi tónleikanna er Guðmundur Óli Gunnarsson. Miðaverð er 500 kr. fyrir 12 ára og yngri / 2.500 fyrir fullorðna - sjá hér: Burtu með fordóma | Tix   Upplýsingar um tónleikana af Tix-vefnum: Sinfóníuhljómsveit Suðurlands efnir til fjölskyldutónleika undir yfirskriftinni Burtu með fordóma. Efnisskráin er eins og nafnið gefur til kynna tileinkuð vináttu og samkennd, [...]

Glæsilegir píanótónleikar 2. maí – gestir í sal skólans, Eyravegi 9 Selfossi

Föstudaginn 2. maí kl. 17:00 fáum við góða gesti, þegar tveir ungir og framúrskarandi píanóleikarar halda tónleika í salnum okkar við Eyraveg 9 á Selfossi. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og öllum opinn!   Píanóleikararnir hafa báðir unnið til verðlauna í fjölmörgum alþjóðlegum keppnum og má þar nefna Casagrande, Clara Haskil, Ettlingen, Young Concert Artists, Verbier, Dublin, Israeli Radio & Jerusalem Symphony Young Artist Competition og Viotti International Piano Competition.   Aristo Sham mun enn fremur taka þátt í Van Cliburn píanókeppninni á þessu ári. Um hann hafa gagnrýnendur sagt: „a pianist whose playing combines clarity, elegance and abundant technique (New [...]

Sönghópur Tónlistarskóla Árnesinga með Sinfóníuhljómsveit Íslands 2. maí í íþróttahúsi FSu, Iðu

Sönghópur Tónlistarskóla Árnesinga tekur þátt í tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands, sem haldnir verða föstudaginn 2. maí kl. 19:00 í íþróttahúsi FSu, Iðu. Aðgangur er ókeypis og öllum opinn! Efnisskrá Giuseppe Verdi: Luisa Miller, forleikur Giuseppe Verdi: Di Provenza úr La Traviata Atli Heimir Sveinsson: Kvæðið um fuglana Sigvaldi Kaldalóns: Ave María Richard Wagner: Aría Wolframs úr Tannhäuser Gioachino Rossini: Largo al factotum úr Rakaranum í Sevilla Ludwig van Beethoven: Sinfónía nr. 5 í c-moll, Örlagasinfónían Hljómsveitarstjóri: Eva Ollikainen Einsöngvari: Jóhann Kristinsson Kórar Jórukórinn Karlakór Hveragerðis Kirkjukór Selfosskirkju Sunnlenskar raddir Söngsveit Hveragerðis og Sönghópur Tónlistarskóla Árnesinga Kirkjukór Hveragerðis- og Kotstrandarsóknar

Smiðjuvika 12. – 16. maí

Vikuna 12. – 16. maí stokkum við upp alla hefðbundna kennslu. Í stað hefðbundinna kennslustunda sækja nemendur smiðjur/námskeið sem kennarar skólans sjá um. Miðað er við að nemendur sæki eina til tvær smiðjur. (Nemendur í hálfu námi sæki a.m.k. 1 klst. smiðju og nemendur í heilu námi 2 klst. smiðju).   Í pósti til nemenda/foreldra 7.5.2025 er smiðjudagatal fyrir vikuna 12. - 16. maí. Í dagatalinu má sjá hvaða smiðjur eru í boði á hverjum kennslustað og hvenær þær eru. ATH. að kennarar sjá um að skrá í smiðjurnar.  Góða skemmtun í smiðjuvikunni 😊

Þessi vefur notar vafrakökur (cookies) til að tryggja sem besta upplifun þegar hann er skoðaður. Þessi borði hverfur þegar þú samþykkir notkun. Þú getur breytt stillingum á kökum hvenær sem er. Í lagi