Afmælis-hátíðartónleikar 15. nóv. Íþróttahúsinu Laugarvatni
Afmælis-hátíðartónleikar 15. nóvember kl. 14:00 í íþróttahúsinu á Laugarvatni. Tónlistarskóli Árnesinga var stofnaður í október árið 1955 og fagnar því 70 ára afmæli í haust. Í tilefni af afmælinu verða haldnir hátíðartónleikar þann 15. nóvember á Laugarvatni. Á tónleikunum leiða saman hesta sína nemendur úr öllum hljóðfæra- og söngdeildum skólans auk þess sem leikskólabörnum úr Uppsveitum og Flóa hefur verið boðin þátttaka. Nær allar hljómsveitir og samspilshópar skólans taka þátt í ævintýrinu og það má því reikna með að flytjendur verði um 150 talsins. Í verkefnavali er horft til tónskálda, útsetjara og hljómsveita úr Árnessýslu, auk þess sem tónbókmenntir hljóðfæranna fá [...]
Hausttónleikar
Hausttónleikar Vikuna 24. – 29. nóvember verða haldnir hausttónleikar hvers kennara, þar sem afrakstur haustannar fær notið sín, áður en jólalögin taka við. Allar nánari upplýsingar um stund og stað fáið nemendur hjá sínum kennara.