Smiðjuvika 12. – 16. maí
Vikuna 12. – 16. maí stokkum við upp alla hefðbundna kennslu. Í stað hefðbundinna kennslustunda sækja nemendur smiðjur/námskeið sem kennarar skólans sjá um. Miðað er við að nemendur sæki eina til tvær smiðjur. (Nemendur í hálfu námi sæki a.m.k. 1 klst. smiðju og nemendur í heilu námi 2 klst. smiðju). Í pósti til nemenda/foreldra 7.5.2025 er smiðjudagatal fyrir vikuna 12. - 16. maí. Í dagatalinu má sjá hvaða smiðjur eru í boði á hverjum kennslustað og hvenær þær eru. ATH. að kennarar sjá um að skrá í smiðjurnar. Góða skemmtun í smiðjuvikunni 😊
Söng-framhaldsprófstónleikar Karolinu í Selfosskirkju 12. maí
Karolina Konieczna lýkur söngnámi við Tónlistarskóla Árnesinga með framhaldsprófstónleikum í Selfosskirkju mánud. 12. maí kl. 18:00. Með Karolinu koma fram Ester Ólafsdóttir sem leikur á píanó og sönghópur Tónlistarskóla Árnesinga undir stjórn Margrétar S. Stefánsdóttur. Fjölbreytt og skemmtileg söngdagskrá með íslenskum og erlendum lögum. Aðgangur er ókeypis og öllum opinn!
Blokkflautu-framhaldsprófstónleikar Sylvíu í Hveragerðiskirkju 13. maí
Sylvía Rossel lýkur blokkflautunámi við Tónlistarskóla Árnesinga með framhaldsprófstónleikum í Hveragerðiskirkju þriðjud. 13. maí kl. 18:00. Með Sylvíu koma fram Guðjón Halldór Óskarsson sem leikur á sembal; og Blokkflautusveitir Tónlistarskóla Árnesinga undir stjórn Kristínar Jóhönnu Dudziak Glúmsdóttur og Helgu Sighvatsdóttur. Fjölbreytt og skemmtileg dagskrá með tónlist allt frá endurreinsnartímanum til dagsins í dag, íslensk og erlend. Aðgangur er ókeypis og öllum opinn!
Skólaslit 19. – 23. maí – nánar hér
Skólaslit verða á kennslustöðum sem hér segir: maí kl. 16:00 – Félagsheimili Hrunamanna (FLÚ) maí kl. 18:30 – Þorlákskirkju (ÞOR) maí kl. 16:00 – Þjórsárveri (FLÓ) maí kl. 16:30 – Félagsheimilinu Aratungu (REY) maí kl. 18:00 – Skálholtskirkja (KER, LAU) maí kl. 18:00 – Hveragerðiskirkja (HVE) maí kl. 16:00 – Félagsheimilinu Árnesi (ÞJÓ) maí kl. 17:30 – Barnaskólinn á Stokkseyri (STO, EYR) maí kl. 17:00 – Selfosskirkja (SEL) Hver skólaslit eru um 1 klst. löng. Flutt eru tónlistaratriði og nemendur sem ljúka stigs- eða áfangaprófum fá skírteini afhent. Skólaslit kennslustaða eru með ýmsu móti. Á minni kennslustöðunum eru skólaslit jafnframt [...]