2026-05-03T00:00:00+00:00

Views Navigation

Event Views Navigation

Today

Miðdeildartónleikar í sal skólans 17. mars

Miðdeildartónleikar verða haldnir þriðjudaginn 17. mars kl. ­­­­­18:15 í sal skólans, Eyravegi 9, Selfossi Dagskrá er fjölbreytt að vanda og koma nemendur fram á hin ýmsu hljóðfæri. Flytjendur hafa allir lokið grunnprófi (3. stigi) á sitt hljóðfæri og alltaf gaman að fylgjast með þessum þróttmikla hópi. Aðgangur er ókeypis - Verið öll hjartanlega velkomin!

Prófadagar – kennsla fellur niður

Prófadagar verða 24.-26. mars 2026. Á prófadögum fellur kennsla niður, en kennarar eru á ferð og flugi að fylgja nemendum í próf og að dæma próf. Ekki taka allir nemendur próf á prófadögum, heldur meta kennarar hvenær nemendur eru tilbúnir að þreyta næsta stigs- eða áfangapróf. Nánari upplýsingar um námsmat í Tónlistarskóla Árnesinga má finna hér: Námsmat — Tónlistarskóli Árnesinga

Páskafrí

Páskafrí 28. mars - 6. apríl. Öll kennsla fellur niður þessa daga. Kennsla hefst á ný eftir páska þriðjud. 7. apríl.

Krakkabarokk á pálmasunnudag í Hörpu 29. mars

Átta blokkflautunemendur úr Tónlistarskóla Árnesinga taka þátt í Krakkabarokkhátíð á pálmasunnudag í Hörpu 29. mars kl. 15:00, ásamt fjölda annarra hljóðfæranemenda og kóra. Frítt inn, en hér er hægt að ná sér í (ókeypis) miða: https://www.harpa.is/vidburdir/20144   Upplýsingar af vef Hörpu: Krakkabarokk í Eldborg   29. mars kl. 15:00–16:00 Eldborg, Harpa Aldur: 5–15 ára Tungumál: Íslenska – hægt að njóta óháð tungumáli Aðgangur: Ókeypis – skráning á harpa.is Krakkabarokk í Eldborg eru fjölskyldutónleikar þar sem Kammerhópurinn ReykjavíkBarokk flytur fjölbreytta tónlist frá barokk- og endurreisnartímanum í félagi við tónlistarnemendur og kórsöngvara af höfuðborgarsvæðinu, Suðurlandi og Norðurlandi eystra. Á tónleikunum má heyra einleik, samleik og kórsöng með undirleik hátíðarhljómsveitar [...]

Vinavika 13. – 17. apríl

Við efnum í fyrsta sinn til VINAVIKU 13. – 17. apríl. Í þessari viku mega nemendur bjóða vini/vinkomu með sér í tíma. Vinavikan er nýjung í skólastarfinu og spennandi að sjá hvernig til tekst. – Endilega nýtið þetta tækifæri til að mæta í félagsskap vinar 😊

Píanó-hringekjutónleikar í Stekkjaskóla 15. apríl

Píanó-hringekjutónleikar verða haldnir miðvikud. 15. apríl kl. ­­­­­18:00 í Hátíðarsal Stekkjskóla, Selfossi Á tónleikunum koma fram píanónemendur á öllum stigum og leika fjórhent og sexhent lög á píanó. Verður verkefnum fléttað saman í skemmtilegt ferli. Aðgangur er ókeypis – Verið öll hjartanlega velkomin!

Nótutónleikar í Salnum Kópavogi 18. apríl

Nótutónleikar í Salnum, Kópavogi, laugard. 18. apríl kl. 13:00 Á svæðistónleikum skólans í febrúar fengu áheyrendur tækifæri til að velja þau atriði sem þeim þóttu mest heillandi. Þau atriði sem flest stig fengu fóru í „Nótupottinn“ og svo féll það í hlut deildarstjóranna að velja atriði til flutnings á Nótutónleikunum í Kópavogi (uppskeruhátíð tónlistarskóla á Suðurlandi, Suðurnesjum og í Kraganum). Eftirtalin þrjú atriði taka þátt fyrir hönd Tónlistarskóla Árnesinga:    Gunnlaugur Ernst Hákonarson, selló    Daníel Ingvarsson, saxófónn    Söngfuglar Tónlistarskóla Árnesinga Við óskum nemendum og kennurum til hamingju með að vera valin til þátttöku í þessum skemmtilega viðburði.  

Vortónleikar

Vortónleikar eru að fara í gang. Á vortónleikum koma fram þeir nemendur sem ekki leika á skólaslitum, eða ef vantar fleiri tækifæri til að koma fram. Nánari upplýsingar um vortónleika fá nemendur hjá sínum kennurum.

Þessi vefur notar vafrakökur (cookies) til að tryggja sem besta upplifun þegar hann er skoðaður. Þessi borði hverfur þegar þú samþykkir notkun. Þú getur breytt stillingum á kökum hvenær sem er. Í lagi