Krakkabarokk á pálmasunnudag í Hörpu 29. mars
Átta blokkflautunemendur úr Tónlistarskóla Árnesinga taka þátt í Krakkabarokkhátíð á pálmasunnudag í Hörpu 29. mars kl. 15:00, ásamt fjölda annarra hljóðfæranemenda og kóra. Frítt inn, en hér er hægt að ná sér í (ókeypis) miða: https://www.harpa.is/vidburdir/20144 Upplýsingar af vef Hörpu: Krakkabarokk í Eldborg 29. mars kl. 15:00–16:00 Eldborg, Harpa Aldur: 5–15 ára Tungumál: Íslenska – hægt að njóta óháð tungumáli Aðgangur: Ókeypis – skráning á harpa.is Krakkabarokk í Eldborg eru fjölskyldutónleikar þar sem Kammerhópurinn ReykjavíkBarokk flytur fjölbreytta tónlist frá barokk- og endurreisnartímanum í félagi við tónlistarnemendur og kórsöngvara af höfuðborgarsvæðinu, Suðurlandi og Norðurlandi eystra. Á tónleikunum má heyra einleik, samleik og kórsöng með undirleik hátíðarhljómsveitar [...]
Vinavika 13. – 17. apríl
Við efnum í fyrsta sinn til VINAVIKU 13. – 17. apríl. Í þessari viku mega nemendur bjóða vini/vinkomu með sér í tíma. Vinavikan er nýjung í skólastarfinu og spennandi að sjá hvernig til tekst. – Endilega nýtið þetta tækifæri til að mæta í félagsskap vinar 😊
Píanó-hringekjutónleikar í Stekkjaskóla 15. apríl
Píanó-hringekjutónleikar verða haldnir miðvikud. 15. apríl kl. 18:00 í Hátíðarsal Stekkjskóla, Selfossi Á tónleikunum koma fram píanónemendur á öllum stigum og leika fjórhent og sexhent lög á píanó. Verður verkefnum fléttað saman í skemmtilegt ferli. Aðgangur er ókeypis – Verið öll hjartanlega velkomin!
Nótutónleikar í Salnum Kópavogi 18. apríl
Nótutónleikar í Salnum, Kópavogi, laugard. 18. apríl kl. 13:00 Á svæðistónleikum skólans í febrúar fengu áheyrendur tækifæri til að velja þau atriði sem þeim þóttu mest heillandi. Þau atriði sem flest stig fengu fóru í „Nótupottinn“ og svo féll það í hlut deildarstjóranna að velja atriði til flutnings á Nótutónleikunum í Kópavogi (uppskeruhátíð tónlistarskóla á Suðurlandi, Suðurnesjum og í Kraganum). Eftirtalin þrjú atriði taka þátt fyrir hönd Tónlistarskóla Árnesinga: Gunnlaugur Ernst Hákonarson, selló Daníel Ingvarsson, saxófónn Söngfuglar Tónlistarskóla Árnesinga Við óskum nemendum og kennurum til hamingju með að vera valin til þátttöku í þessum skemmtilega viðburði.
Tónleikar eldri nemenda í sal skólans á Selfossi 21. apríl
Tónleikar eldri nemenda verða haldnir í sal skólans, Eyravegi 9 Selfossi, 21. apríl kl. 18:15. Á tónleikunum koma fram nemendur sem eru 20 ára og eldri.
Blásarasveit á Barnamenningarhátíð í miðbæ Selfoss 22. apríl
Blásarasveitir Tónlistarskóla Árnesinga á Selfossi sameinast á Barnamenningarhátíð í miðbæ Selfoss 22. apríl kl. 17:00.
Vortónleikar
Vortónleikar eru að fara í gang. Á vortónleikum koma fram þeir nemendur sem ekki leika á skólaslitum, eða ef vantar fleiri tækifæri til að koma fram. Nánari upplýsingar um vortónleika fá nemendur hjá sínum kennurum.
Smiðjuvikan
Smiðjuvikan 4. – 8. maí Í smiðjuviku stokka kennarar upp hefðbundna kennslu fyrir sinn nemendahóp og bjóða þeim í staðinn t.d. upp á meistaranámskeið, sérstaka samspilstíma eða eitthvað annað fróðlegt og skemmtilegt. – Ef þið eruð ekki viss um hvenær þig eigið að mæta eða hvernig kennslu verður háttað, hafið þið samband við ykkar kennara og spyrjið. Tónfræðitímar, samspil og hljómsveitaræfingar falla niður þessa viku, nema um annað hafi verði rætt t.d. vegna undirbúnings fyrir skólaslit.
Skólaslit á kennslustöðum
Skólaslit verða á kennslustöðum sem hér segir: 21. maí kl. 16:00 í BES Stokkseyri – nemendur frá Stokkseyri og Eyrarbakka 21. maí kl. 18:00 í Þorlákskirkju – nemendur úr Þorlákshöfn 22. maí kl. 15:00 í Félagsheimilinu Árnesi – nemendur úr Hrunamannahreppi og Skeiða- og Gnúpverjahreppi 22. maí kl. 16:00 í Félagsheimilinu Árnesi – nemendur úr Hrunamannahreppi og Skeiða- og Gnúpverjahreppi 26. maí kl. 16:00 í Félagsheimilinu Aratungu – nemendur úr Reykholtsskóla 26. maí kl. 18:00 í Skálholtskirkju – nemendur úr Bláskógaskóla Laugarvatni og Grímsnes- og Grafningshreppi 26. maí kl. 18:00 í Hveragerðiskirkju – nemendur úr Hveragerði og Ölfusi [...]