Krakkabarokk á pálmasunnudag í Hörpu 29. mars
Átta blokkflautunemendur úr Tónlistarskóla Árnesinga taka þátt í Krakkabarokkhátíð á pálmasunnudag í Hörpu 29. mars kl. 15:00, ásamt fjölda annarra hljóðfæranemenda og kóra. Frítt inn, en hér er hægt að ná sér í (ókeypis) miða: https://www.harpa.is/vidburdir/20144 Upplýsingar af vef Hörpu: Krakkabarokk í Eldborg 29. mars kl. 15:00–16:00 Eldborg, Harpa Aldur: 5–15 ára Tungumál: Íslenska – hægt að njóta óháð tungumáli Aðgangur: Ókeypis – skráning á harpa.is Krakkabarokk í Eldborg eru fjölskyldutónleikar þar sem Kammerhópurinn ReykjavíkBarokk flytur fjölbreytta tónlist frá barokk- og endurreisnartímanum í félagi við tónlistarnemendur og kórsöngvara af höfuðborgarsvæðinu, Suðurlandi og Norðurlandi eystra. Á tónleikunum má heyra einleik, samleik og kórsöng með undirleik hátíðarhljómsveitar [...]
Vinavika 13. – 17. apríl
Við efnum í fyrsta sinn til VINAVIKU 13. – 17. apríl. Í þessari viku mega nemendur bjóða vini/vinkomu með sér í tíma. Vinavikan er nýjung í skólastarfinu og spennandi að sjá hvernig til tekst. – Endilega nýtið þetta tækifæri til að mæta í félagsskap vinar 😊
Píanó-hringekjutónleikar í Stekkjaskóla 15. apríl
Píanó-hringekjutónleikar verða haldnir miðvikud. 15. apríl kl. 18:00 í Hátíðarsal Stekkjskóla, Selfossi Á tónleikunum koma fram píanónemendur á öllum stigum og leika fjórhent og sexhent lög á píanó. Verður verkefnum fléttað saman í skemmtilegt ferli. Aðgangur er ókeypis – Verið öll hjartanlega velkomin!
Nótutónleikar í Salnum Kópavogi 18. apríl
Nótutónleikar í Salnum, Kópavogi, laugard. 18. apríl kl. 13:00 Á svæðistónleikum skólans í febrúar fengu áheyrendur tækifæri til að velja þau atriði sem þeim þóttu mest heillandi. Þau atriði sem flest stig fengu fóru í „Nótupottinn“ og svo féll það í hlut deildarstjóranna að velja atriði til flutnings á Nótutónleikunum í Kópavogi (uppskeruhátíð tónlistarskóla á Suðurlandi, Suðurnesjum og í Kraganum). Eftirtalin þrjú atriði taka þátt fyrir hönd Tónlistarskóla Árnesinga: Gunnlaugur Ernst Hákonarson, selló Daníel Ingvarsson, saxófónn Söngfuglar Tónlistarskóla Árnesinga Við óskum nemendum og kennurum til hamingju með að vera valin til þátttöku í þessum skemmtilega viðburði.
Tónleikar eldri nemenda í sal skólans á Selfossi 21. apríl
Tónleikar eldri nemenda verða haldnir í sal skólans, Eyravegi 9 Selfossi, 21. apríl kl. 18:15. Á tónleikunum koma fram nemendur sem eru 20 ára og eldri.