2026-10-30T00:00:00+00:00

Events

Views Navigation

Event Views Navigation

Today
  • Foreldraheimsóknir 7.- 11. september

    Tvisvar á vetri fá foreldrar formlegt boð um að mæta í tíma með börnum sínum, en þeir eru alltaf velkomnir í tíma og þurfa ekki að gera boð á undan sér. Fyrsta formlega foreldravika vetrarins verður vikuna 7. - 11. september. Ef þið getið ekki mætt er gott að setja sig í samband við kennara til að fá upplýsingar um vetrarstarfið framundan.

  • Kennaraþing 23. sept. – kennsla fellur niður

    Kennsla fellur niður miðvikud. 23. september, en þá mæta kennarar á haustþing tónlistarskólakennara á Hellu. Þar hittast kennarar af Suðurlandi og Suðurnesjum, sitja námskeið og ræða saman um ýmis fagleg málefni tengd tónlistarkennslu.

  • Haustfrí – Kennsla fellur niður

    Haustfrí 22. – 27. október – kennsla fellur niður. 22.-23. október: Haustfrí í flestum grunnskólum í Árnessýslu, Tónlistarskóla Árnesinga og í FSu og kennsla fellur niður. 26.-27. október: Vinnustytting kennara Tónlistarskóla Árnesinga og þá fellur kennsla niður.

  • Spennandi deildatónleikaröð – Verið öll velkomin!

    Dagana 6. - 13. nóvmeber halda hljóðfæradeildir Tónlistarskóla Árnesinga hver sína tónleika. Á tónleikunum fáum við að sjá og heyra flesta samspilshópa og hljómsveitir leika, auk minni samleiks- og einleiksatriða. - Fjölbreytt og skemmtileg dagskrá. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis. - Verði öll hjartanlega velkomin! - 6. nóv. kl. 17:00 – Blásaradeild í hátíðarsal Stekkjaskóla, Selfossi 9. nóv. kl. 18:00 – Söngdeild í Hveragerðiskirkju 10. nóv. kl. 18:00 – Gítardeild í sal skólans Eyravegi 9, Selfossi 11. nóv. kl. 18:00 – Píanódeild í Skálholtskirkju 12. nóv. kl. 17:00 – Strengjadeild í Hveragerðiskirkju 12. nóv. kl. 18:00 – Blokkflautudeild í sal skólans [...]

Þessi vefur notar vafrakökur (cookies) til að tryggja sem besta upplifun þegar hann er skoðaður. Þessi borði hverfur þegar þú samþykkir notkun. Þú getur breytt stillingum á kökum hvenær sem er. Í lagi