Latest Past Events
Framhaldsdeildartónleikar í sal skólans Eyravegi 9, Selfossi
Framhaldsdeildartónleikar þriðjud. 17. mars kl. 18:15, í sal skólans Eyravegi 9, Selfossi Á tónleikunum koma fram nemendur sem lokið hafa miðpróf í tónlist og stefna að 6. stigi eða framhaldsprófi. Þessi nemendahópur hefur öðlast mikla leikni í hljóðfæraleik/söng og gaman að heyra krefjandi og metnaðarfull verkefni í flutningi þeirra. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir.
Miðdeildartónleikar í sal skólans Eyravegi 9, Selfossi
Miðdeildartónleikar mánud. 16. mars kl. 18:45, í sal skólans Eyravegi 9, Selfossi Á miðdeildartónleikum koma fram nemendur sem lokið hafa grunnprófi og stefna að 4. stigi eða miðprófi. Þetta er öflugur hópur nemenda sem hefur náð góðum grunntökum í hljóðfæraleik/söng. Verkefnaval er fjölbreytt og oft á tíðum nokkuð krefjandi. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir.
Öskudagur – öll kennsla fellur niður vegna starfsdags
Öll kennsla fellur niður á öskudegi 26. febrúar 2020, en starfsfólk nýtir daginn til funda- og námskeiðshalda.