Kennsla frá 4. maí
2020-05-06T09:04:03+00:00Það hallar í lok þessa sérstaka vetrar. Ekki er hægt að segja annað en að nemendur, foreldrar og kennarar hafi tekist á við aðstæðurnar af miklum dugnaði og æðruleysi. Framfarir nemenda hafa í raun verið undraverðar þrátt fyrir allt.
Einkatímar, undirleikstímar og tónfræðitímar – kennsla hefst á ný á öllum kennslustöðum, samkvæmt stundaskrá.
ATH. Nemendur, foreldrar og kennarar hafa áfram val um fjarkennslu.
Hljómsveitaæfingar og samspilstímar falla niður.
Umgengnisreglur á kennslustöðum eru í samræmi við tilmæli almannavarna og mikilvægt að slaka ekki á þeim.
– Vandaður handþvottur fyrir hverja kennslustund.
– Sprittun snertiflata milli nemenda.
– 2 metrar milli manna (eldri en 16 ára).
– Umferð foreldra í húsnæði […]



[…]