Þrennir glæsilegir framhaldsprófstónleikar í vor
2021-05-18T09:11:39+00:00Þrennir glæsilegir framhaldsprófstónleikar frá Tónlistarskóla Árnesinga
Þrír nemendur ljúka námi við Tónlistarskóla Árnesinga núna í vor með framhaldsprófi. Það eru þær Íris Beata Dudziak á píanó, Katrín Birna Sigurðardóttir á selló og Arndís Hildur Tyrfingsdóttir á víólu.
Lokatónleikar nemendanna þriggja í vor voru sérlega glæsilegir, flytjendum og kennurum þeirra til mikils sóma. Auk einleiksatriða lék píanókvintett skólans verk eftir Dvorák, en kvintettinn skipa próftakarnir þrír og fiðlunemendurnir Elísabet Anna Dudziak og Ingibjörg Ólafsdóttir. Píanómeðleikur var í höndum Einars Bjarts Egilssonar.
Tónleikarnir fóru allir fram í Hveragerðiskirkju, en vegna Covid voru þeir ekki auglýstir opinberlega eins og vant er, heldur aðeins opnir boðsgestum.
Við óskum Írisi, […]




