Söngdeildartónleikar í Hveragerðiskirkju

Sjöundu og síðustu deildartónleikar haustsins voru haldnir í Hveragerðiskirkju, þegar söngdeildin steig á stokk. Flutt var fjölbreytt og skemmtileg dagskrá, þar sem nemendur voru allt frá því að vera nýbyrjaðir í söngnámi, upp í að vera komnir á framhaldsstig. Þá komu fram söngfuglarnir okkar (barnakór) og sönghópur nemenda í einsöngsnámi.

Einstaklega ljúf stund í fallega hljómandi Hveragerðiskirkju.

/Helga Sighv.

[…]

Söngdeildartónleikar í Hveragerðiskirkju2024-12-12T15:18:33+00:00

Jólaball Suzukideildar mikil hátíð

Árlegt jólaball Suzukideildar var haldið í Sunnulækjarskóla 4. desember 2024 og var eins og áður mikil hátíð.

Í upphafi dagskrár sameinuðust nemendur í hjómsveit, en hana skipuðu nemendur á blokkflautur, gítara, fiðlur, víólur og selló. Lék hljómsveitin nokkur jólalög og aðra tónlist sem nemendur hafa verið að æfa á haustönninni. Foreldrar Suzukinemenda tóku líka þátt og léku með í nokkrum lögum.

Gengið var í kringum jólatré og jólalögin sungin við undirleik nemenda- og kennarahljómsveitar. Jólasveinninn mætti með mandarínur í poka, grín og glens og tók þátt í dansinum.

Loks skiptust píanónemendur á um að leika jólalög á meðan gestir gæddu sér á smákökum og […]

Jólaball Suzukideildar mikil hátíð2024-12-12T14:58:09+00:00

Hausttónleikar að baki – nokkrar myndir

Hausttónleikar kennaranna eru að baki, en á hausttónleikum fá nemendur að njóta sín sem einleikarar og fá þjálfun í framkomu, hver hjá sínum kennara.

Á meðfylgjandi myndum má sjá örlítið sýnishorn frá þeim fjölmörgu hausttónleikum sem fóru fram bæði í nóvember og desember.

/Helga Sighv.

[…]

Hausttónleikar að baki – nokkrar myndir2024-12-12T13:29:11+00:00

Hausttónleikar standa sem hæst

Hausttónleikar kennaranna standa núna sem hæst og eiga eftir að teygja sig eitthvað inn í desembermánuð.

Á hausttónleikum fá nemendur að njóta sín sem einleikarar og fá þjálfun í framkomu, hver hjá sínum kennara.

Upplýsingar um tímasetningar hausttónleika fást hjá kennurum.

Hausttónleikar standa sem hæst2024-11-25T14:09:54+00:00

Styrkur til Tónlistarskóla Árnesinga frá FEB-Selfossi

Styrkur. Á samkomu í Grænumörk á Selfossi 21. nóvember, tilkynnti Félag eldri borgara um 100.000 króna styrk til Tónlistarskóla Árnesinga. Við þökkum Félagi eldri borgara á Selfossi innilega fyrir fjárstuðninginn og þann hlýhug sem fylgir gjöfinni. – Styrkurinn verður nýttur til hljóðfærakaupa.

Á samkomunni komu fram blokkflautusveitir Tónlistarskóla Árnesinga og fluttu fjölbreytta tónlist sem spannaði fjórar aldir (16. – 20. öld), ásamt kennurum og píanómeðleikara. Nemendur og kennara þakka kærlega fyrir hlýjar móttökur.

/Helga Sighv.

Styrkur til Tónlistarskóla Árnesinga frá FEB-Selfossi2025-01-10T13:42:48+00:00

Kórlögin hans Sigfúsar – minningartónleikar

Kórlögin hans Sigfúsar var yfirskrift minningatónleika í Hveragerðiskirkju 19. nóvember sl.

Á tónleikunum minntumst við Sigfúsar Ólafssonar fyrrum kennara við skólann, með flutningi 13 laga eftir hann. Sigfús hefði orðið áttræður í ár hefði hann lifað, en hann lést árið 2021.

Um leið minntumst við Hjartar Þórarinssonar sem lést í sumar, en hann kom að stofnun skólans árið 1955 og var fjármálastjóri hans í fjölda ára.

Sigfús samdi mörg kórlög og voru þau gefin út á bók. Þar átti Hjörtur nokkra söngtexta, en Ásgeir Sigurðsson fyrrum skólastjóri Tónlistarskólans útsetti lögin.

 

Húsfyllir var í Hveragerðiskirkju og mikil ánægja með tónleikana. Flytjendur voru nemendur og kennarar Tónlistarskóla […]

Kórlögin hans Sigfúsar – minningartónleikar2024-11-27T10:16:12+00:00

Deildatónleikar nóvembermánaðar fjölbreyttir

Deildatónleikar nóvembermánaðar sem allir fóru fram í hátíðarsal Stekkjaskóla, voru mjög fjölbreyttir og vandaðir, en flytjendur voru nær allar hljómsveitir og samspilshópar skólans auk einleikara.

Alls komu um 170 nemendur fram á tónleikunum, undir styrkri stjórn kennaranna.

Það er alltaf svo ótrúlega gaman að heyra vel undirbúna tónleika þar sem fagleg vinnubrögð og metnaður kennaranna og vinnusemi nemendanna skila sér í öruggum flutningi og þar með gleði 🙂

/Helga Sighv.

Gítardeildartónleikar 6.11.2024

[…]

Deildatónleikar nóvembermánaðar fjölbreyttir2024-11-25T13:33:34+00:00

Jólaspilamennska

Jólaspilamennska. 19. og 20. desember er kennsla óhefðbundin. Í stað kennslu þessa daga fara kennarar með nemendur (eftir því sem við verður komið) út í samfélagið að leika jólalög og aðra fallega tónlist fyrir samborgarana. Sú spilamennska fer oft fram á öðrum dögum í desember, eða allt eftir því hvenær hægt er að heimsækja t.d. hjúkrunarheimili, leikskóla, verslanir, viðburði og annað sem óskað hefur verið eftir. Þá taka margir nemendur og kennarar tónlistarskólans virkan þátt í Litlu-jólum grunnskólanna þessa daga og leika undir dansi í kringum jólatré.

Jólaspilamennska2024-12-12T15:17:34+00:00

Jólafrí

Jólafrí Tónlistarskóla Árnesinga stendur frá 21.12.2024 til 6.1.2025.

– mánud. 6. janúar 2025 er frí vegna starfsdags kennara,

– þriðjud. 7. janúar 2025 hefst kennsla á ný samkvæmt stundaskrá.

Jólafrí2024-11-25T11:23:09+00:00

Söngdeildartónleikar 10. desember í Hveragerðiskirkju

Söngdeildartónleikar verða þriðjud. 10. desember kl. 18:00 í Hveragerðiskirkju

Á tónleikunum koma fram bæði einsöngvarar og sönghópar bæði yngri og eldri nemenda.

Fjölbreytt og skemmtileg dagskrá.

Aðgangur að tónleikunum er ókeypis.

Verið öll hjartanlega velkomin!

Söngdeildartónleikar 10. desember í Hveragerðiskirkju2024-10-30T10:44:59+00:00
Þessi vefur notar vafrakökur (cookies) til að tryggja sem besta upplifun þegar hann er skoðaður. Þessi borði hverfur þegar þú samþykkir notkun. Þú getur breytt stillingum á kökum hvenær sem er. Í lagi