Deildatónleikaröð í Stekkjaskóla

Dagana 6. – 13. nóvember verða haldnir 6 deildatónleikar í Stekkjaskóla.

Miðvd. 6. nóvember – gítardeild kl. 18:30

Fimmtud. 7. nóvember – strengjadeild kl. 18:30

Föstud. 8. nóvember – rytmísk deild kl. 17:00

Mánud. 11. nóvember – píanódeild kl. 18:30

Þriðjud. 12. nóvember – blásaradeild kl. 18:30

Miðvd. 13. nóvember – blokkflautudeild kl. 18:30

 

Aðgangur að tónleikunum er ókeypis – Verið öll hjartanlega velkomin!

Deildatónleikaröð í Stekkjaskóla2024-09-05T11:34:58+00:00

Haustfrí 17. – 22. október

Haustfrí verður í tónlistarskólanum dagana 17. – 22. október 2024. – Öll kennsla fellur niður þessa daga.

ATH. að 17. og 18. október eru sameiginlegir stærstu grunnskólum sýslunnar og FSu, en 21. og 22. október bætast við í tónlistarskólanum vegna styttingar vinnutíma tónlistarkennara.

Haustfrí 17. – 22. október2024-09-05T08:16:38+00:00

Foreldraheimsóknavika

Foreldraheimsóknavika verður dagana 16. – 20. september.

Gott samband foreldra og kennara getur skipt sköpum um námsframvindu. Við hvetjum því forráðamenn eindregið til að mæta í tíma með barni sínu, og ræða við kennara um verkefni og markmið vetrarins. – Foreldrar eru að auki velkomnir í kennslustund hvenær sem er.

Foreldraheimsóknavika2024-09-05T08:08:56+00:00

Upphaf kennslu, hóptímar og foreldradagar.

Fyrsti kennsludagur skólaárið 2024-2025 verður 26. ágúst. Starfsdagar kennara verða 19. – 23. ágúst. Kennarar hafa samband við nemendur á starfsdögum.

Hóptímar hefjast 2. september.

Foreldradagar verða frá 16. september.

Upphaf kennslu, hóptímar og foreldradagar.2024-09-05T08:10:02+00:00

Viltu læra á hljóðfæri eða syngja? – Hljóðfæri – Námsleiðir

Viltu læra á hljóðfæri eða syngja?

Í skjalinu undir hnappnum HÉR, má nálgast yfirlit yfir allar námsleiðir í Tónlistarskóla Árnesinga og sjá hljóðfærin á einum stað. Sjá HÉR.

Til að sækja um nám smellið þið á hnappinn UMSÓKN UM SKÓLAVIST efst á heimsíðunni.

Ef spurningar vakna, hvetjum við ykkur til að hafa samband við okkur í ágúst og fá nánari upplýsingar.

ATH. Skrifstofan er lokuð til 7. ágúst 2024.

Viltu læra á hljóðfæri eða syngja? – Hljóðfæri – Námsleiðir2024-06-18T11:02:35+00:00

Sumarlokun skrifstofu tónlistarskólans

Skrifstofa Tónlistarskóla Árnesinga er lokuð vegna sumarleyfa til 7. ágúst 2024.

Njótið sumarsins sem allra best 🙂

Sumarlokun skrifstofu tónlistarskólans2024-06-18T10:17:18+00:00

Umsókn um skólavist

Kæru umsækjendur

Undir heitinu Dreifibréf 2024, má sjá helstu upplýsingar um nám og námsleiðir í Tónlistarskóla Árnesinga: Dreifibréf 2024

Ef þið óskið eftir tónlistarnámi næsta vetur, smellið á hnappinn: UMSÓKN UM SKÓLAVIST efst hér á heimasíðunni og fyllið út allar umbeðnar upplýsingar.

Nemendur sem fá skólavist, fá tölvupóst í ágúst með upplýsingum um greiðslu skólagjalda.

Kennslutímabilið byrjar í lok ágúst og stendur til maíloka.

Nemendur á blásturs- og strokhljóðfæri geta leigt hljóðfæri af skólanum.

 

Við bjóðum nýja nemendur hjartanlega velkomna til tónlistarnáms.

Helga Sighvatsdóttir, skólastjóri

Skrifstofa Eyravegi 9, Selfossi

Sími: 482 1717

tonar@tonar.is

www.tonar.is

Skrifstofan er lokuð frá miðjum júní fram í byrjun ágúst.

 

 

Umsókn um skólavist2024-05-22T09:27:35+00:00

Smiðjuvikan – mikið ævintýri

Smiðjuvikan 13. – 17. maí, var mjög skemmtilegt uppbrot á kennsluna og batt um leið endahnútinn á vetrarstarfið. Þar leiddu nemendur og kennarar saman hesta sína í ýmsum ólíkum smiðjum og námskeiðum.

Ríkti mikil gleði og eftirvænting meðal nemenda og kennara og höfðu báðir hópar jafn gaman af, sem sjá má á myndum hér fyrir neðan 😊

/Helga Sighv.

Hér má sjá örlítið sýnishorn frá smiðjum vikunnar:

   

Latin-dans                          […]

Smiðjuvikan – mikið ævintýri2024-05-17T19:05:05+00:00

Útskriftartónleikar Sigurrósar Lilju

Sigurrós Lilja Ragnarsdóttir lauk söngnámi við Tónlistarskóla Árnesinga 8. maí með opinberum framhaldsprófstónleikum, en tónleikarnir voru lokatónleikar hennar frá skólanum.

Lilja flutti fallega og fjölbreytta dagskrá og var klappað lof í lófa í lok tónleika, ásamt Margréti söngkennara hennar, Ester píanómeðleikara, Laufey Dóru söngfugli (dóttur Lilju) og sönghópi skólans.

/Helga Sighv.

Útskriftartónleikar Sigurrósar Lilju2024-05-16T17:24:07+00:00
Þessi vefur notar vafrakökur (cookies) til að tryggja sem besta upplifun þegar hann er skoðaður. Þessi borði hverfur þegar þú samþykkir notkun. Þú getur breytt stillingum á kökum hvenær sem er. Í lagi