Framhaldsdeildartónleikar 14. mars í Hveragerðiskirkju

Framhaldsdeildartónleikar Tónlistarskóla Árnesinga verða haldnir í sal Hveragerðiskirkju fimmtudaginn 14. mars, kl. 18:00.

Á tónleikunum koma fram nemedur sem lokið hafa miðprófi.

Efnisskrá tónleikanna er fjölbreytt og gaman að sjá hve góðum tökum nemendur hafa náð á sín hljóðfæri, þegar hér er komið í tónlistarnáminu.

 

Aðgangur að tónleikunum er ókeypis – verið öll hjartanlega velkomin!

Framhaldsdeildartónleikar 14. mars í Hveragerðiskirkju2024-01-30T16:19:20+00:00

Páskafrí

Páskafrí 23. mars – 1. apríl 2024

Kennsla hefst aftur eftir páskafrí þriðjudaginn 2. apríl.

Páskafrí2024-01-10T10:56:57+00:00

Prófadagar 19.- 20. mars

Prófadagar 19. og 20. mars

Kennsla fellur niður á prófadögum.

Ekki taka allir nemendur próf á prófadögum, en það eru kennarar sem meta hvenær nemendur eru tilbúnir til að taka næsta stigspróf.

Ef spurningar vakna biðjum við nemendur/foreldra að setja sig í samband við kennara.

Prófadagar 19.- 20. mars2024-02-27T10:01:21+00:00

Vetrarfrí 19. – 23. febrúar

Vetrarfrí Tónlistarskóla Árnesinga stendur frá 19. – 23. febrúar.

19. og 20. febrúar eru sameiginlegir grunnskólunum og FSu, en 21. – 23. febrúar eru vegna styttingar vinnuviku tónlistarkennara.

 

Vetrarfrí 19. – 23. febrúar2024-01-10T10:50:44+00:00

Starfsdagur 14. febrúar (öskudag)

Miðvikudaginn 14. febrúar (öskudag) fellur niður öll kennsla í Tónlistarskóla Árnesinga.

Daginn nýta kennarar til fundahalda og námskeiða.

Starfsdagur 14. febrúar (öskudag)2024-01-10T10:45:36+00:00

Miðdeildartónleikar 12. mars í Stekkjaskóla

Miðdeildartónleikar Tónlistarskóla Árnesinga verða haldnir í sal Stekkjaskóla þriðjudaginn 12. mars, kl. 18:00.

Á tónleikunum koma fram nemedur sem lokið hafa grunnprófi.

Efnisskrá tónleikanna er fjölbreytt og gaman að sjá hve góðum tökum nemendur hafa náð á sín hljóðfæri, þegar hér er komið í tónlistarnáminu.

Aðgangur að tónleikunum er ókeypis – verið öll hjartanlega velkomin!

Miðdeildartónleikar 12. mars í Stekkjaskóla2024-01-10T10:51:54+00:00

Foreldraheimsóknavika

Foreldraheimsóknarvikan 8. – 12. janúar

Í heimsóknarvikunni eru foreldrar sérstaklega boðnir velkomnir í tíma með barni sínu. Ég hvet foreldra til að nýta þennan heimsóknartíma til að fara yfir miðsvetrarmatið og verkefni vorannar með kennurum.

Auk þess að mæta í þessa formlegu heimsóknartíma eru foreldrar alltaf velkomnir í tíma og þurfa ekki að gera boð á undan sér.

Foreldraheimsóknavika2023-12-07T12:16:44+00:00

Jólafrí

Jólafrí verður 21. desember 2023  til 3. janúar 2024.

– Kennsla hefst á ný samkvæmt stundaskrá, fimmtud. 4. janúar.

Jólafrí2023-12-01T14:26:17+00:00

Jólaspil utan skólans

19. og 20. desember er kennsla óhefðbundin. Í stað kennslu þessa daga farar kennarar með nemendur út í samfélagið og leika jólalög og aðra fallega tónlist fyrir samborarana. Sú spilamennska fer oft fram á öðrum dögum í desember, eða allt eftir því hvenær hægt er að heimsækja t.d. hjúkrunarheimili, leikskóla, verslanir, viðburði og annað sem óskað hefur verið eftir. Þá taka margir nemendur og kennarar tónlistarskólans virkan þátt í litlu-jólum grunnskólanna þessa daga og leika undir dansi í kringum jólatré.

/Helga Sighv.

Jólaspil utan skólans2023-12-01T14:24:50+00:00

Hausttónleikar og Suzuki-útskriftir

Hausttónleikar skólans fóru nær allir fram í nóvember, þar sem nemendur komu fram hver hjá sínum kennara. Þá útskrifuðust nokkrir nemendur úr Suzuki-bókum á tónleikum.

Það er mjög gaman að fá tækifæri til að hlýða á alla þessa tónleika og finna um leið hve starf kennaranna er faglegt og metnaðarfullt.

Nemendur hafa staðið sig afskaplega vel og spennandi að fylgjast með framförum þeirra milli ára.

Hér má sjá nokkarar myndir frá hausttónleikum.

/Helga Sighv.

[…]

Hausttónleikar og Suzuki-útskriftir2023-12-01T14:22:28+00:00
Þessi vefur notar vafrakökur (cookies) til að tryggja sem besta upplifun þegar hann er skoðaður. Þessi borði hverfur þegar þú samþykkir notkun. Þú getur breytt stillingum á kökum hvenær sem er. Í lagi