Framhaldsprófstónleikar Helgu Höeg 22. mars

FRAMHALDSPRÓFSTÓNLEIKAR

Helga Höeg Sigurðardóttir lýkur framhaldsprófi í píanóleik frá Tónlistarskóla Árnesinga með opinberum tónleikum í sal tónlistarskólans Eyravegi 9 á Selfossi, 22. mars kl. 17:15.

 

Hvetjum við Sunnlendinga til að nýta sér þetta góða tækifæri til að hlýða á glæsilega tónleika, enda liggur mikil vinna að baki þegar kemur að útskrift frá skólanum.

 

Á dagskrá eru verk eftir Bach, Beethoven, Bartók, Rachmaninoff, Dvorák og Brahms.

Meðleikur á fiðlu: Eyrún Huld Ingvarsdóttir.

Kennari Helgu er Miklós Dalmay.

 

Aðgangur að tónleikum er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir!

 

Framhaldsprófstónleikar Helgu Höeg 22. mars2024-03-04T17:23:00+00:00

Tónleikar blokkflautunemenda og gesta frá Færeyjum 10. mars

Dagana 8. – 10. mars verða haldnar æfingabúðir blokkflautusveita Tónlistarskóla Árnesinga, ásamt færeyskum blokkflautunemendum.

Æfð verða samspilslög úr ýmsum áttum, s.s. færeysk og íslensk þjóðlög, renesansdansar, dægurlög og tangóar, sem verða svo flutt á tónleikum 10. mars.

Tónleikarnir verða haldnir í sal skólans Eyravegi 9 á Selfossi (3. hæð) 10. mars kl. 14:00.

Aðgangur er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir!

Tónleikar blokkflautunemenda og gesta frá Færeyjum 10. mars2024-02-27T10:21:55+00:00

Tónleikar Sólrúnar Bragadóttur ásamt söngnemendum 28. febrúar

Sólrún Bragadóttir og Jón Sigurðsson efna til samstarfs við nemendur Tónlistarskóla Árnesinga með tónleikum á Selfossi og Desert Pálínuboði á eftir svo fólk geti spjallað við listafólkið og hvert annað!
Á efnisskránni eru m.a. verk eftir Jean Sibelius, Richard Strauss, Hugo Wolf, Robert Schumann G.F. Haendel, Ernest Chausson ofl.

Staður: Tónlistarskóli Árnesinga, Eyravegi 9 Selfossi, 3. hæð

Stund: Miðvikud. 28. febrúar kl. 20:00

Miðaverð: 3000 kr. Frítt fyrir nemendur og kennara Tónlistarskóla Árnesinga

Sjá nánar hér: Tónleikar með nemendum í Tónlistarskóla Árnesinga og desert Pálínuboð | Facebook

 

Tónleikar Sólrúnar Bragadóttur ásamt söngnemendum 28. febrúar2024-02-26T13:51:43+00:00

Framhaldsdeildartónleikar 14. mars í Hveragerðiskirkju

Framhaldsdeildartónleikar Tónlistarskóla Árnesinga verða haldnir í sal Hveragerðiskirkju fimmtudaginn 14. mars, kl. 18:00.

Á tónleikunum koma fram nemedur sem lokið hafa miðprófi.

Efnisskrá tónleikanna er fjölbreytt og gaman að sjá hve góðum tökum nemendur hafa náð á sín hljóðfæri, þegar hér er komið í tónlistarnáminu.

 

Aðgangur að tónleikunum er ókeypis – verið öll hjartanlega velkomin!

Framhaldsdeildartónleikar 14. mars í Hveragerðiskirkju2024-01-30T16:19:20+00:00

Páskafrí

Páskafrí 23. mars – 1. apríl 2024

Kennsla hefst aftur eftir páskafrí þriðjudaginn 2. apríl.

Páskafrí2024-01-10T10:56:57+00:00

Prófadagar 19.- 20. mars

Prófadagar 19. og 20. mars

Kennsla fellur niður á prófadögum.

Ekki taka allir nemendur próf á prófadögum, en það eru kennarar sem meta hvenær nemendur eru tilbúnir til að taka næsta stigspróf.

Ef spurningar vakna biðjum við nemendur/foreldra að setja sig í samband við kennara.

Prófadagar 19.- 20. mars2024-02-27T10:01:21+00:00

Vetrarfrí 19. – 23. febrúar

Vetrarfrí Tónlistarskóla Árnesinga stendur frá 19. – 23. febrúar.

19. og 20. febrúar eru sameiginlegir grunnskólunum og FSu, en 21. – 23. febrúar eru vegna styttingar vinnuviku tónlistarkennara.

 

Vetrarfrí 19. – 23. febrúar2024-01-10T10:50:44+00:00

Starfsdagur 14. febrúar (öskudag)

Miðvikudaginn 14. febrúar (öskudag) fellur niður öll kennsla í Tónlistarskóla Árnesinga.

Daginn nýta kennarar til fundahalda og námskeiða.

Starfsdagur 14. febrúar (öskudag)2024-01-10T10:45:36+00:00

Miðdeildartónleikar 12. mars í Stekkjaskóla

Miðdeildartónleikar Tónlistarskóla Árnesinga verða haldnir í sal Stekkjaskóla þriðjudaginn 12. mars, kl. 18:00.

Á tónleikunum koma fram nemedur sem lokið hafa grunnprófi.

Efnisskrá tónleikanna er fjölbreytt og gaman að sjá hve góðum tökum nemendur hafa náð á sín hljóðfæri, þegar hér er komið í tónlistarnáminu.

Aðgangur að tónleikunum er ókeypis – verið öll hjartanlega velkomin!

Miðdeildartónleikar 12. mars í Stekkjaskóla2024-01-10T10:51:54+00:00

Foreldraheimsóknavika

Foreldraheimsóknarvikan 8. – 12. janúar

Í heimsóknarvikunni eru foreldrar sérstaklega boðnir velkomnir í tíma með barni sínu. Ég hvet foreldra til að nýta þennan heimsóknartíma til að fara yfir miðsvetrarmatið og verkefni vorannar með kennurum.

Auk þess að mæta í þessa formlegu heimsóknartíma eru foreldrar alltaf velkomnir í tíma og þurfa ekki að gera boð á undan sér.

Foreldraheimsóknavika2023-12-07T12:16:44+00:00
Þessi vefur notar vafrakökur (cookies) til að tryggja sem besta upplifun þegar hann er skoðaður. Þessi borði hverfur þegar þú samþykkir notkun. Þú getur breytt stillingum á kökum hvenær sem er. Í lagi