Framhaldsprófstónleikar Kristínu

Framhaldsprófstónleikar Kristínu. 

Kristína G. Guðnadóttur lauk námi við Tónlistarskóla Árnesinga með opinberum tónleikum í Selfosskirkju þann 18. apríl.

Dagskráin var afskaplega falleg með verkum sem spönnuðu um 400 ár í tónlistarsögunni, eða allt frá 16. – 20. aldar.

Meðleikarar á tónleikunum voru Ester Ólafsdóttir á píanó og orgel, Eyjólfur Eyjólfsson (söngkennari Kristínu) á þverflautu, Uelle Hahndorf á selló, Guðmundur Pálsson og Zbigniew Zuchowicz á fiðlur og söngnemarnir Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir, Jónína Eirný Sigurðardóttir og Aldís Þóra Harðardóttir.

Við óskum Kristínu góðs gengis á söngbrautinni!

       […]

Framhaldsprófstónleikar Kristínu2024-05-16T17:08:48+00:00

Nótan 2024 í Salnum Kópavogi

Nótan 2024.

Þeir stóðu sig vel nemendur okkar sem komu fram á Nótunni (uppskeruhátíð tónlistarskóla á landsvísu) í Salnum í Kópavogi þann 13. apríl.

Hildur Kristín Hermannsdóttir lék eigin útsetningu á Pianoman eftir Billy Joel á píanó – og Valdís Jóna Steinþórsdóttir lék Rondo eftir Saint-Georges á sópranblokkflautu við píanóundirleik Björns Pálma Pálmasonar.

Dömurnar komu fram á þriðju og síðustu tónleikum dagsins og voru skólanum til mikils sóma.

Hér fyrir neðan má sjá myndir frá æfingu og tónleikum.

   

/Helga Sighv.

Nótan 2024 í Salnum Kópavogi2024-05-16T17:09:09+00:00

Skólaslit 21. – 27. maí – allar tímasetningar hér

Skólaslit verða á kennslustöðum sem hér segir:

Þri. 21. maí kl. 16:00 – Félagsheimili Hrunamanna, Flúðum

Þri. 21. maí kl. 18:30 – Þorlákskirkja

 

Mið. 22. maí kl. 15:00 – Félagsheimilið Árnesi

Mið. 22. maí kl. 16:00 – Aratunga

Mið. 22. maí kl. 18:30 – Hveragerðiskirkja

 

Fim. 23. maí kl. 16:00 – Barnaskólinn á Stokkseyri

Fim. 23. maí kl. 18:00 – Sunnulækjarskóli, Selfossi

 

Fös. 24. maí kl. 16:00 – Þjórsárver

 

Mán. 27. maí kl. 17:30 – Skálholtskirkja (nemendur úr Kerhólsskóla og frá Laugarvatni)

 

Skólaslit eru ólík milli staða og helgast það af nemendafjölda. Á minni kennslustöðunum eru skólaslit jafnframt vortónleikar nemendanna, en á stærri skólaslitum eru færri tónlistaratriði, en fleiri prófskírteini afhent.

Skólaslit 21. – 27. maí – allar tímasetningar hér2024-05-07T17:19:49+00:00

Smiðjuvika 13. – 17. maí.

Smiðjuvika 13. – 17. maí.

Í síðustu kennsluviku skólaársins stokkum við alla kennslu upp og nemendur sækja 1 – 2 smiðjur/námskeið í stað hefðbundinna kennslustunda.

– Boðið verðu uppá smiðjur á öllum kennslustöðum. – Nánari upplýsingar um smiðjur bárust nemendum og foreldrum í tölvupósti 2. maí.

– Kennarar skrá nemendur í smiðjur.

Smiðjuvika 13. – 17. maí.2024-05-03T08:16:05+00:00

Vortónleikar í byrjun maí

Vortónleikar.

Í byrjun maí halda kennarar vortónleika með sínum nemendum. Upplýsingar um vortónleika fást hjá kennurum.

Vortónleikar í byrjun maí2024-05-03T08:13:46+00:00

Framhaldsprófstónleikar Sigurrósar Lilju 8. maí í Hveragerðiskirkju

FRAMHALDSPRÓFSTÓNLEIKAR

Sigurrós Lilja Ragnarsdóttir lýkur framhaldsprófi í söng frá Tónlistarskóla Árnesinga með opinberum tónleikum í Hveragerðiskirkju, 8. maí kl. 18:00

Við hvetjum Sunnlendinga til að nýta sér þetta góða tækifæri til að hlýða á glæsilega tónleika, enda liggur mikil vinna að baki þegar kemur að útskrift frá skólanum.

Meðleikur: Ester Ólafsdóttir píanó og orgel, Laufey Dóra Friðbjarnardóttir söngur og sönghópur.

Á dagskrá eru fjölbreytt verk eftir íslensk og erlend tónskáld og textahöfunda.

Kennari Sigurrósar Lilju er Margrét S. Stefánsdóttir.

 

Aðgangur að tónleikunum er ókeypis – Verið öll hjartanlega velkomin!

 

Framhaldsprófstónleikar Sigurrósar Lilju 8. maí í Hveragerðiskirkju2024-05-03T08:11:41+00:00

Frí Sumardaginn fyrsta, 25. apríl

Sumardaginn fyrsta, fimmtud 25. apríl, fellur niður öll kennsla í tónlistarskólanum.

Frí Sumardaginn fyrsta, 25. apríl2024-04-22T20:36:04+00:00

Fiðlukvartett í Listasafni Árnesinga.

Fiðlukvartett í Listasafni Árnesinga. Fimmtudaginn 21. mars stóðu Bókabæirnir austan fjalls fyrir margmála ljóðakvöldi í Listasafni Árnesinga í Hveragerði. Fiðlukvartett, skipaður nemendum Maríu Weiss, þeim Ásthildi, Bryndísi Heklu, Guðrúnu Birnu og Hugrúnu Birnu, lék tvö skemmtileg verk á ljóðakvöldinu. Þarna fléttuðust saman myndlist, ljóðlist og tónlist á mjög skemmtilegan hátt í listrænu umhverfi undir stjórn Jónínu Sigurjónsdóttur sem hélt utan um dagskrána.

/Helga Sighv.

Fiðlukvartett í Listasafni Árnesinga.2024-03-23T12:49:46+00:00

Glæsilegir framhaldsprófstónleikar

Helga Höeg Sigurðardóttir lauk námi við Tónlistarskóla Árnesinga með glæsilegum tónleikum í sal skólans föstud. 22. mars. Henni var vel fagnað í lok tónleika af gestum sem fylltu salinn. Eyrún Huld Ingvarsdóttir lék með Helgu í einu verkanna, á fiðlu. Kennari Helgu var Miklós Dalmay. Við óskum Helgu Höeg innilega til hamingju með þennan stóra og glæsilega áfanga!

/Helga Sighv.

Að afloknum tónleikum: Helga, Eyrún og Miklós

Glæsilegir framhaldsprófstónleikar2024-03-23T12:47:28+00:00

Þematónleikar 20. apríl kl. 10, 12.30 og 15:00 Selfossi, Skálholti, Þorlákshöfn og Hveragerði

Þematónleikar 20. apríl. Tónlistarskóli Árnesinga stendur fyrir stórum tónleikadegi laugardaginn 20. apríl nk. Haldnir verða sex tónleikar á fjórum stöðum í Árnessýslu, þ.e. í Stekkjaskóla Selfossi, Skálholtskirkju, Þorlákskirkju og Hveragerðiskirkju. Þema tónleikanna er Eurovision-tónlist og spennandi að sjá og heyra hvaða lög hafa orðið fyrir valinu.

 

Tónleikar verða sem hér segir:

10:00 – Stekkjaskóli Selfossi

10:00 – Skálholtskirkja

 

12:30 – Stekkjaskóli Selfossi

12:30 – Þorlákskirkja

 

15:00 – Stekkjaskóli Selfossi

15:00 – Hveragerðiskirkja

 

Aðgangur er ókeypis – verið öll hjartanlega velkomin!

Þematónleikar 20. apríl kl. 10, 12.30 og 15:00 Selfossi, Skálholti, Þorlákshöfn og Hveragerði2024-03-23T12:26:08+00:00
Þessi vefur notar vafrakökur (cookies) til að tryggja sem besta upplifun þegar hann er skoðaður. Þessi borði hverfur þegar þú samþykkir notkun. Þú getur breytt stillingum á kökum hvenær sem er. Í lagi