Píanódeildartónleikar í Aratungu

Skemmtilegir píanódeildartónleikar voru haldnir í félagsheimilinu Aratungu, þar sem fram komu nemendur á öllum námsstigum ýmist sem einleikarar eða í samleik. Hér fyrir neðan má sjá nokkrar myndir úr Aratungu.

Takk fyrir góða frammistöðu á tónleikunum kæru nemendur og takk fyrir allan undirbúninginn kæru kennarar!

/ Helga Sighv.

[…]

Píanódeildartónleikar í Aratungu2023-12-01T13:13:38+00:00

Deildatónleikar í Stekkjaskóla og við Eyraveg

Hljóðfæradeildir tónlistarskólans halda sína deildatónleika í nóvember, en á þeim komu fram allar hljómsveitir og samspilshópar auk fjölda smærri samleiksatriða og einleiks.

Blásara-, blokkflautu-, gítar- og strengjadeildatónleikar voru haldnir í nýjum sal Stekkjaskóla sem var mjög gleðilegur viðburður, því þarna opnaðist glæsilegur tónleikasalur – bjartur og fallegur með góðum hljómburði, sem tekur vel 150 manns í sæti. Það var ánægjulegt að fá tækifæri til að hlusta á ólíka hljóðfærahópa í þessum nýja sal og heyra hvað hann skilaði vel öllum tónlistarflutningi. Við óskum Árborgarbúum til hamingju með þessa góðu búbót!

Rytmísku deildartónleikarnir voru haldnir í sal skólans við Eyraveginn og gaman að heyra hvernig þessi […]

Deildatónleikar í Stekkjaskóla og við Eyraveg2023-11-13T14:22:22+00:00

Skemmtileg blásara- og strengjamót í haust

Þátttaka í nemendamótum er mikilvægur og ómetanlegur þáttur í starfi tónlistarskóla.

Helgina 9. – 10. september tóku nokkrir blásaranemendur Tónlistarskóla Árnesinga þátt í blásarasveitamóti í Vestmannaeyjum og helgina 6. – 8. október sóttu nokkrir strengjanemendur strengjamót á Akureyri. Á hvoru móti fyrir sig tóku þátt um 200 nemendur af öllu landinu.

Að taka þátt í mótum sem þessum er alltaf mikil upplifun. Nemendur fá tækifæri til að leika saman í stórum hljómsveitum undir handleiðslu úrvals stjórnenda. Þeir kynnast nýjum verkefnum og koma alltaf margefldir aftur heim.

Nemendur okkar stóðu sig afskaplega vel á báðum mótunum. Kennurum sem undirbjuggu og fylgdu nemendum og þeim sem […]

Skemmtileg blásara- og strengjamót í haust2023-11-06T09:27:44+00:00

Söngdeildartónleikar 7. des. – Hveragerðiskirkju

Söngdeildartónleikar verða haldnir í Hveragerðiskirkju, fimmtud. 7. des. kl. 17:30

Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir!

Söngdeildartónleikar 7. des. – Hveragerðiskirkju2023-10-18T11:51:28+00:00

Píanódeildartónleikar 16. nóv. – Félagsheimilinu Aratungu

Píanódeildartónleikar verða haldnir í Félagsheimilinu Aratungu fimmtud. 16. nóv. kl. 17:30

Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir!

Píanódeildartónleikar 16. nóv. – Félagsheimilinu Aratungu2023-10-02T15:54:05+00:00

Rytmískir deildartónleikar 10. nóv. – Sal skólans, Eyravegi 9

Rytmískir deildartónleikar verða haldnir í sal tónlistarskólans, Eyravegi 9 á Selfossi. fös. 10. nóv. kl. 17:00

Á þessum tónleikum er fókusinn á alls konar stærri og smærri samspil.

Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir!

Rytmískir deildartónleikar 10. nóv. – Sal skólans, Eyravegi 92023-10-02T15:33:45+00:00

Strengjadeildartónleikar 9. nóv. – Sal Stekkjaskóla

Strengjadeildartónleikar verða haldnir í sal Stekkjaskóla á Selfossi. fimmtud. 9. nóv. kl. 17:30

Á þessum tónleikum er fókusinn á alls konar stærri og smærri samspil.

Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir!

Strengjadeildartónleikar 9. nóv. – Sal Stekkjaskóla2023-10-02T15:31:42+00:00

Gítardeildartónleikar 8. nóv. – Sal Stekkjaskóla

Gítardeildartónleikar verða haldnir í sal Stekkjaskóla á Selfossi, miðvikud. 8. nóv. kl. 18:00.

Á þessum tónleikum er fókusinn á alls konar stærri og smærri samspil.

Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir!

Gítardeildartónleikar 8. nóv. – Sal Stekkjaskóla2023-10-02T15:30:12+00:00

Blokkflautudeildartónleikar 6. nóv. – Sal Stekkjaskóla

Blokkflautudeildartónleikar verða haldnir í sal Stekkjaskóla á Selfossi, mán. 6. nóv. kl. 18:00.

Á þessum tónleikum er fókusinn á alls konar stærri og smærri samspil.

Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir!

Blokkflautudeildartónleikar 6. nóv. – Sal Stekkjaskóla2023-10-02T15:29:11+00:00

Blásaradeildartónleikar 3. nóv. – Sal Stekkjaskóla

Blásaradeildartónleikar verða haldnir í sal Stekkjaskóla á Selfossi. fös. 3. nóv. kl. 17:00

Á þessum tónleikum er fókusinn á alls konar stærri og smærri samspil.

Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir!

Blásaradeildartónleikar 3. nóv. – Sal Stekkjaskóla2023-10-02T15:29:35+00:00
Þessi vefur notar vafrakökur (cookies) til að tryggja sem besta upplifun þegar hann er skoðaður. Þessi borði hverfur þegar þú samþykkir notkun. Þú getur breytt stillingum á kökum hvenær sem er. Í lagi