Foreldraheimsóknarvika

Í foreldraheimsóknarviku eru foreldrar sérstaklega boðnir velkomnir í tíma með barni sínu, til að fara yfir markmið og verkefni vetrarins með kennara.

Foreldrar eru að auki velkomnir í kennslustund hvenær sem er.

Foreldraheimsóknarvika2023-08-15T16:47:09+00:00

Hóptímar hefjast 4.9.2023

4. september hefjast allir hóptímar, þ.e. tónfræðitímar, hljómsveitaræfingar, samspil og meðleikstímar.

Upplýsingar um skráningu í hóptíma fást hjá kennurum og í SpeedAdmin appinu.

Hóptímar hefjast 4.9.20232023-08-15T16:43:30+00:00

Starfsdagar kennara

21. – 25. ágúst eru starfsdagar kennara. Á starfsdögum sækja kennarar fundi og námskeið, undirbúa vetrarstarfið og setja saman stundaskrár.

Kennarar hafa samband við sína nemendur á starfsdögum vegna stundaskrárgerðar.

Starfsdagar kennara2023-08-15T16:39:43+00:00

Einkatímar hefjast 28.8.2023

Kennsla í einkatímum hefst mánud. 28. ágúst 2023 samkvæmt stundaskrá.

Einkatímar hefjast 28.8.20232023-08-15T16:37:58+00:00

Auglýsing – klassískur gítarkennari á Selfossi – 50% – umsóknarfrestur til 23. júní

Tónlistarskóli Árnesinga óskar eftir að ráða klassískan gítarkennara til starfa á Selfossi. – Umsóknarfrestur er til 23. júní.
Við Tónlistarskóla Árnesinga starfar mjög þéttur og góður hópur kennara, en þeir eru um 40 talsins og starfa á 12 starfsstöðvum skólans vítt og breitt um Árnessýslu.
Nánari upplýsingar má finna hér á heimasíðu skólans www.tonar.is (t.d. skóladagatal, námsframboð og ýmislegt fleira) .
Auglýsing – klassískur gítarkennari á Selfossi – 50% – umsóknarfrestur til 23. júní2023-06-14T11:16:19+00:00

Umsókn um skólavist 2023-2024 – upplýsingar

UMSÓKN UM SKÓLAVIST 2023– 2024
Sótt er um rafrænt á heimasíðu Tónlistarskóla Árnesinga, www.tonar.is.

Smelltu á: UMSÓKN UM SKÓLAVIST efst á heimasíðunni og fylltu út allar umbeðnar upplýsingar.
Þeir sem sækja um fyrir 1. júní 2023 verða í fyrsta hópnum sem tekinn er inn, en sækja má um skólavist allt árið.

Nemendur sem fá skólavist, fá tölvupóst í ágúst með upplýsingum um greiðslu skólagjalda.

Á þessari slóð má sjá: Dreifibréf 2023 með upplýsingum um hjóðfæraval, skólagjöld og fleira.

 

Umsókn um skólavist 2023-2024 – upplýsingar2023-05-27T08:35:30+00:00

Framhaldsprófstónleikar Hildar Tönju í Hveragerðiskirkju 15. maí

Hildur Tanja Karlsdóttir lýkur framhaldsprófi í fiðluleik frá Tónlistarskóla Árnesinga með opinberum tónleikum í Hveragerðiskirkju 15. maí kl. 18:00                           

Hvetjum við Sunnlendinga til að nýta sér þetta góða tækifæri til að hlýða á glæsilega tónleika, enda liggur mikil vinna að baki þegar kemur að útskrift frá skólanum.

Á dagskrá eru verk eftir Bach, Mozart, Prokofiev, Grieg og Williams.
Meðleikarar: Miklós Dalmay píanó og Elísabet Anna Dudziak fiðla.

Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir!

Framhaldsprófstónleikar Hildar Tönju í Hveragerðiskirkju 15. maí2023-05-08T10:39:58+00:00

Suzuki-tónleikahátíð í Royal Albert Hall

Um páskana brugðu nokkrir nemendur og kennarar undir sig betri fætinum og tóku þátt í alheims Suzuki-tónlistarviðburði í Royal Albert Hall í London. Breska Suzuki-sambandið stóð fyrir mótinu að þessu sinni, en aðal driffjöður þess er Helen Brunner, kraftmikill fiðlukennari á níræðisaldri.

Þátttaka í móti sem þessu er mikil upplifun fyrir nemendur, kennara og foreldra, enda ótrúlegt að verða vitni að þeirri samstillingu sem næst. Um 1.300 nemendur tóku þátt að þessu sinni, frá 32 löndum (eða allt frá Argentínu til Zimbabwe og Íslandi til Vietnam, eins og Ed Kreitman kynnir sagði á tónleikunum). Nemendur voru á aldrinum fimm ára til tvítugs […]

Suzuki-tónleikahátíð í Royal Albert Hall2023-06-02T13:44:28+00:00
Þessi vefur notar vafrakökur (cookies) til að tryggja sem besta upplifun þegar hann er skoðaður. Þessi borði hverfur þegar þú samþykkir notkun. Þú getur breytt stillingum á kökum hvenær sem er. Í lagi