Smiðjuvikan 27.-31. mars ótrúlega skemmtileg

Smiðjuvikan 27. – 31. mars var ótrúlega lífleg og skemmtileg. Þetta er í fyrsta sinn sem Tónlistarskóli Árnesinga setur upp námskeiðs-/smiðjuviku sem þessa þar sem allri kennslu er umbreytt, en nemendur sækja í staðinn ýmsar tónlistartengdar smiðjur. Það var skemmtilegur andi í lofti þegar nemendur mættu í smiðjurnar sínar á hinum fjölmörgu kennslustöðum skólans. Boðið var upp á rytmískar smiðjur, sambabönd, söng af ýmsu tagi, gítarpartý, ukulele, Suzukihljómsveit, að oliubera blokkflautur, hljóðsetja kvikmynd, læra um langspil, blús, spuna, orgel, horfa á tónlistarkvikmynd o.fl.

– Hjartans þakkir til allra sem tóku þátt í námskeiðunum og gerðu vikuna svona skemmtilega 😊

/Helga Sighv.

Hér fyrir neðan […]

Smiðjuvikan 27.-31. mars ótrúlega skemmtileg2023-03-31T16:59:52+00:00

Suzuki-gítarsveit tók þátt í Nótunni í Hörpu

Hátíðartónleikar Nótunnar fóru fram í Eldborgarsal Hörpu sunnudaginn 19. mars, en Nótan er uppskeruhátíð tónlistarskólanna á landsvísu.

Mikið líf var í Hörpu allan daginn, með þrennum tónleikum í Eldborg, vinnusmiðjum og tónlistarflutningi í Hörpuhorni. Að þessu sinni sendu tónlistarskólar alls staðar að af landinu hópatriði (hljómsveitir eða samspilshópa) til þátttöku á tónleikunum.

Suzuki-gítarhópur undir stjórn Birgitar Myschi, við undirleik Kristins Freys Kristinssonar var framlag Tónlistarskóla Árnesinga í ár. Stóðu nemendur og kennarar sig afkaplega vel og voru skólanum til mikils sóma. Á þessari slóð má sjá nokkrar myndir frá Nótunni: Nótan 2023 – MYNDIR | Kennarasamband Íslands (ki.is)

– Takk fyrir allan undirbúninginn og […]

Suzuki-gítarsveit tók þátt í Nótunni í Hörpu2023-03-24T08:47:16+00:00

Frá mið- og framhaldsdeildartónleikum í Selfosskirkju

Mið- og framhaldsdeildartónleikar fóru fram 15. og 16. mars í Selfosskirkju. Það var reglulega gaman að sjá og heyra þennan kraftmikla hóp sem hefur öðlast færni og kunnáttu til að leika fjölbreytta og talsvert flóknari tónlist en geristi á fyrstu árum tónlistarnámsins.

Takk fyrir dásamlega tónleika kæru nemendur og kennarar 🙂

 

Flytjendur á miðdeildartónleikum                  Flytjendur á framhaldsdeildartónleikum

/Helga Sighv.

Frá mið- og framhaldsdeildartónleikum í Selfosskirkju2023-03-24T08:41:45+00:00

Frí 20. og 21. apríl

Kennsla fellur niður 20. og 21. apríl

Fimmtud. 20. apríl – Sumardagurinn fyrsti

Föstud. 21. apríl – Frídagur í tónlistarskólanum vegna styttingar vinnutíma

Frí 20. og 21. apríl2023-03-08T12:06:04+00:00

Páskafrí

Páskafrí 1. – 11. apríl.

ATH. að páskafrí tónlistarskólans er einum degi lengra en hjá grunnskólunum.

Kennsla hefst aftur eftir páskafrí miðvikudaginn 12. apríl.

Páskafrí2023-03-08T12:03:38+00:00

Smiðjuvikan 27. – 31. mars – námskeið/smiðjur í stað kennslu

Í síðustu viku marsmánaðar brjótum við upp hefðbundna kennslu og bjóðum nemendum okkar upp á alls konar námskeið eða smiðjur í staðinn.

 

Miðað er við að:

Nemendur í hálfu námi sæki a.m.k. 1 klst. smiðju

Nemendur í heilu námi sæki a.m.k. 2 klst. af smiðjum.

– Nemendur sæki a.m.k. eina smiðju í heimasveit, en geta valið til viðbótar smiðju eftir óskum/áhugasviði.

 

Skráning í smiðjur fer fram í gegnum kennara, en HÉR má sjá hvaða smiðjur eru í boði á hverjum kennslustað og hvenær. (Hver kennslustaður er í sér flipa).

  • Upplýsingar um viðfangsefni hverrar smiðju má sjá með því að setja bendilinn á rauða þríhyrninginn, eða talbóluna […]
Smiðjuvikan 27. – 31. mars – námskeið/smiðjur í stað kennslu2023-03-24T15:32:27+00:00

Prófadagar 21. og 22. mars 2023

Prófadagar 21. og 22. mars

Kennsla fellur niður á prófadögum.

Ekki taka allir nemendur próf á prófadögum, en það eru kennarar sem meta hvenær nemendur eru tilbúnir til að taka næsta stigspróf.

Ef spurningar vakna biðjum við nemendur/foreldra að setja sig í samband við kennara.

Prófadagar 21. og 22. mars 20232023-03-01T08:22:25+00:00

Framhaldsdeildartónleikar í Selfosskirkju 16. mars 2023

Framhaldsdeildartónleikar verða haldnir í Selfosskirkju 16. mars, kl. 18:00.

Á tónleikunum koma fram nemendur sem lokið hafa miðprófi.

Efnisskrá tónleikanna er fjölbreytt og gaman að sjá hve góðum tökum nemendur hafa náð á sín hljóðfæri, þegar hér er komið í tónlistarnáminu.

Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir!

Framhaldsdeildartónleikar í Selfosskirkju 16. mars 20232023-03-01T08:19:35+00:00

Miðdeildartónleikar í Selfosskirkju 15. mars 2023

Miðdeildartónleikar verða haldnir í Selfosskirkju 15. mars, kl. 18:00.

Á tónleikunum koma fram nemedur sem lokið hafa grunnprófi.

Efnisskrá tónleikanna er fjölbreytt og gaman að sjá hve góðum tökum nemendur hafa náð á sín hljóðfæri, þegar hér er komið í tónlistarnáminu.

Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir!

Miðdeildartónleikar í Selfosskirkju 15. mars 20232023-03-01T08:20:11+00:00

Fyrirhuguðum tónleikum 11. febrúar er aflýst vegna veðurs

Sælir kæru nemendur og foreldrar

 

Aflýst er fyrirhuguðum þematónleikum sem vera áttu laugardaginn 11. febrúar (Þorlákshöfn kl. 10, Aratungu kl. 12:30, Hveragerði kl. 15 og Selfossi kl. 10, 12:30 og 15).

 

Á morgun er spáð sunnan- og suðvestan hvassvirði eða stormi 18 – 25 m/s, með snörpum vindhviðum við fjöll. Víða er að auki hálka eða hálkublettir á vegum. Af þessum sökum viljum við ekki taka þá áhættu að fólk lendi í óhöppum og aflýsum því tónleikunum.

 

Okkur þykir þetta mjög leitt, enda fjöldi nemenda og kennara búnir að undirbúa skemmtilega dagskrá. Takk fyrir allan undirbúninginn, en vonandi nýtast atriðin á næstu dögum og […]

Fyrirhuguðum tónleikum 11. febrúar er aflýst vegna veðurs2023-02-10T19:57:35+00:00
Þessi vefur notar vafrakökur (cookies) til að tryggja sem besta upplifun þegar hann er skoðaður. Þessi borði hverfur þegar þú samþykkir notkun. Þú getur breytt stillingum á kökum hvenær sem er. Í lagi