Barnadjass – Námskeið Odd André

Barnadjass – Námskeið Odd André

Laugardaginn 14. janúar sóttu nokkrir kennarar skólans námskeið um djasskennslu fyrir börn á aldrinum 9 – 11 ára, sem haldið var í húsnæði tónlistarskólans á Selfossi. Í lok námskeiðsins bættust 14 nemendur við (á ýmsum hljóðfærum) og fengu leiðsögn í að spila djass eftir eyranu og að spinna. Skemmtilegt námskeið sem gaf kennurum nokkur góð viðbótarverkfæri inn í kennsluna.

Kennari var Odd André Elveland, en hann mætti með einn nemanda frá Noregi og nokkra nemendur úr Mosfellsbæ, sem léku bæði fyrir kennarana og með nemendum á námskeiðinu.

[…]

Barnadjass – Námskeið Odd André2023-01-27T08:25:23+00:00

Þematónleikar 11. febrúar, kl. 10:00, 12:30 og 15:00 á Selfossi, í Þorlákshöfn, Aratungu og Hveragerði

Laugard. 11. febrúar stendur tónlistarskólinn fyrir tónleikadegi, í tilefni af Degi tónlistarskólanna (sem er 7. febrúar).

Þema tónleikanna (sem eru 6 að tölu) verður Haf og sjómennska. Þematónleikar skipa alltaf sérstakan sess í tónleikahaldi, því þar má heyra fjölmörg lög sem annars eru fáséð á nemendatónleikum. Þá má á öllum tónleikunum sjá og heyra þversnið af hljóðfæravali skólans og söng.

 

Staður og stund tónleikanna:

Selfosskirkja kl. 10:00, 12:30 og 15:00 (Nemendur úr Árborg og Flóahreppi)

Þorlákskirkja kl. 10:00 (Nemendur úr Þorlákshöfn)

Félagsheimilið Aratunga kl. 12:30 (Nemendur úr Grímsnes- og Grafningshreppi, Bláskógabyggð, Hrunamannahreppi og Skeiða- og Gnúpverjahreppi).

Hveragerðiskirkja kl. 15:00 […]

Þematónleikar 11. febrúar, kl. 10:00, 12:30 og 15:00 á Selfossi, í Þorlákshöfn, Aratungu og Hveragerði2023-02-10T19:55:20+00:00

Tónlistarskóli Árnesinga hlýtur Menntaverðlaun Suðurlands 2022

Á hátíðarfundi Vísinda- og rannsóknarsjóðs Suðurlands í sal Fjölbrautaskóla Suðurlands þann 12. janúar 2023, var tilkynnt að Tónlistarskóli Árnesinga hefði hlotið Menntaverðlaun Suðurlands 2022, en níu tilnefningar bárust um menntaverðlaunin að þessu sinni.

Það var með miklu stolti sem skólastjórnendur Tónlistarskóla Árnesinga tóku við verðlaununum, úr hendi forseta Íslands.

 

Á viðurkenningaskjali stendur eftirfarandi:

„Menntaverðlaun Suðurlands 2022 hlýtur Tónlistarskóli Árnesinga fyrir að mennta nemendur sína á starfstöðvum víða í Árnessýslu og efla þá í að koma fram á hinum ýmsu viðburðum skólans. Verðlaunin eru einnig veitt fyrir kynningu kennara skólans á fjölbreyttum hljóðfærum fyrir nemendur grunnskóla í Árnessýslu á hverju vori. Með starfi sínu leggur […]

Tónlistarskóli Árnesinga hlýtur Menntaverðlaun Suðurlands 20222023-01-27T08:25:49+00:00

Vetrarfrí

Vetrarfrí 27. febrúar – 1. mars.

Öll kennsla fellur niður þessa daga.

 

Vetrarfrí tónlistarskólans er samræmt við flesta grunn- og framhaldsskóla sýslunnar.

Vetrarfrí2023-01-12T13:59:38+00:00

Öskudagur 22. febrúar – frí

Öskudagur miðvikud. 22. febrúar – Starfsdagur

Kennsla fellur niður, en kennarar nýta daginn til fundahalda og námskeiða.

Öskudagur 22. febrúar – frí2023-01-12T14:00:33+00:00

Dagur tónlistarskólanna 7. febrúar

Dagur tónlistarskólanna. Á Degi tónlistarskólanna 7. febrúar, efna tónlistarskólarnir til árlegrar hátíðar um allt land. Meðal viðburða má nefna opið hús, tónleika, hljóðfærakynningar og ýmiskonar námskeið auk þess sem nemendur heimsækja vinnustaði, heilbrigðisstofnanir og aðra skóla og flytja tónlist.

Á haustþingi Samtaka tónlistarskólastjóra árið 2019 var samþykkt að Dagur tónlistarskólanna skyldi vera 7. febrúar, í tilefni af fæðingardegi Gylfa Þ. Gíslasonar, sem var menntamálaráðherra frá 1956 – 1971. Úr greinargerð með tillögunni: Gylfi Þ. Gíslason var mikill áhrifavaldur hvað varðar tónlistarkennslu og beitti sér fyrir umbótum á því sviði. Með því að Dagur tónlistarskólanna sé á fæðingardegi Gylfa Þ. Gíslasonar, heiðrum við minningu Gylfa […]

Dagur tónlistarskólanna 7. febrúar2023-01-12T13:45:44+00:00

Jólakveðja Tónlistarskóla Árnesinga 2022

Starfsfólk Tónlistarskóla Árnesinga óskar nemendum og fjölskyldum þeirra gleðilegra jóla með þökkum fyrir árið sem er að líða.

Það er söngdeild Tónlistarskóla Árnesinga sem færir ykkur jólakveðjuna í ár, með laginu Jól eftir Jórunni Viðar, undir stjórn Margrétar S. Stefánsdóttur.

Sjá hér: Jólakveðja Tónlistarskóla Árnesinga 2022

Megi árið 2023 verða ykkur gæfuríkt – og farsælt á tónlistarbrautinni.

         

Myndir frá upptökum.

/Helga Sighv.

Jólakveðja Tónlistarskóla Árnesinga 20222023-01-27T08:26:07+00:00

Líflegt tónleikahald á haustönn

Það má segja að skólastarf hafi farið af stað með mikilum krafti í haust, því það sem af er vetri hafa yfir 100 viðburðir verið skráðir þar sem nemendur hafa komið fram.

Líflegast var tónleikahaldið í nóvember og desember, með átta deildatónleikum, stórtónleikum með lögum Gunnars Þórðarsonar á Laugarvatni, fjölda hausttónleika og Suzuki-útskriftartónleika, jólatónleikum Sinfóníuhljómsveitar Suðurlands í Selfosskirkju, jólatónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Hörpu, jólaballi Suzukideildar og loks með jólaspilamennslu úti í samfélaginu í desember.

Það að komast aftur út í samfélagið með nemendum að leika jólalög og aðra fallega tónlist fyrir samborgarana var reglulega ánægjulegt, en viðkomustaðirnir voru fjölmargir. Má nefna hjúkrunarheimili, fundi […]

Líflegt tónleikahald á haustönn2023-01-27T08:26:26+00:00

Jólatónleikar Sinfóníuhljómsveitar Suðurlands – dásamleg stund

Það var sérlega ánægjulegt að hlýða á jólatónleika Sinfóníuhljómsveitar Suðurlands þann 10. desember í Selfosskirkju. Þar mátti heyra leik sinfóníuhljómsveitarinnar undir stjórn Guðmundar Óla Gunnarssonar, ásamt söng þriggja kóra Selfosskirkju (barna-, unglinga- og kirkjukórs) og einsöngvaranna Eyjólfs Eyjólfssonar og Hallveigar Rúnarsdóttur. Flutningur var vandaður og fagmennska og orka skein alls staðar í gegn. Á dagskrá voru jólalög úr ýmsum áttum, fjöldi þeirra í nýjum útsetningum Guðmundar Óla.

Það var með miklu stolti sem undirrituð hlýddi á tónleikana og ekki af ástæðulausu, því stjórnandi hljómsveitarinnar, kórstjórarnir Edit og Kolbrún og helmingur hljófæraleikaranna eru kennarar og nemendur við Tónlistarskóla Árnesinga. Aðrir flytjendur komu víða […]

Jólatónleikar Sinfóníuhljómsveitar Suðurlands – dásamleg stund2022-12-14T08:13:10+00:00

19. og 20. desember – jólaspilamennska

Jólaspilamennska. Síðustu tvo kennsludaga fyrir jólafrí (19. og 20. desember) fellur niður hefðbundin kennsla, en í staðinn fara kennarar með nemendur sína út í samfélagið og leika jólalög og aðra fallega tónlist fyrir unga sem aldna samborgara.

Það er hefð fyrir því að umbreyta kennslu síðustu tveggja kennsludaga fyrir jólafrí í spilamennsku úti í bæ. Kennarar flögra þá með nemendur sína út í samfélagið og leika fyrir fólk á öllum aldri. Má nefna hjúkrunar- og elliheimili, samkomur félagasamtaka, verslanir, leikskóla og þátttöku í litlu-jólum grunnskólanna.

Því miður náum við ekki að fara með alla okkar nemendur svona út í bæ, en kennarar hafa í […]

19. og 20. desember – jólaspilamennska2022-12-13T11:23:25+00:00
Þessi vefur notar vafrakökur (cookies) til að tryggja sem besta upplifun þegar hann er skoðaður. Þessi borði hverfur þegar þú samþykkir notkun. Þú getur breytt stillingum á kökum hvenær sem er. Í lagi