Kennsla hefst 4. janúar 2023

Kennsla hefst á ný eftir jólafrí samkvæmt stundaskrá, miðvikud. 4. janúar 2023.

Kennsla hefst 4. janúar 20232022-12-20T09:59:11+00:00

Jólafrí

Jólafrí tónlistarskólans hefst 21. desember.

Kennsla hefst á ný 4. janúar 2023

Jólafrí2022-11-22T11:53:12+00:00

Frí 24. nóvember

Fimmtudaginn 24. nóvember fellur niður öll kennsla í Tónlistarskóla Árnesinga, en þá er einn af fimm frídögum sem koma inn í skóladagatalið vegna styttingar vinnutíma tónlistarkennara.

Nemendur eiga að fá jafn margar kennslustundir þrátt fyrir styttan vinnutíma tónlistarkennaranna og verður því blásið til smiðjuviku 27. – 31. mars. Í smiðjuvikunni gefst nemendum tækifæri til að mæta á ýmiskonar námskeið og skemmtilegar smiðjur sem kennararnir halda utan um.

Undirbúningur fyrir smiðjuviku hófst sl. vor, en smiðjuvikan verður kynnt nánar á nýju ári.

Frí 24. nóvember2022-11-22T11:49:40+00:00

Lög Gunnars Þórðarsonar – frábærir tónleikar

Laugardaginn 19. nóvember stóð Tónlistarskóli Árnesinga fyrir stórtónleikum með lögum Gunnars Þórðarsonar, í íþróttahúsinu Laugarvatni. Hugmyndin að tónleikunum kviknaði sl. vetur, en þá var þema vetrarins Ást og gleði og féllu lög Gunnars vel að því viðfangsefni. Æfingar fóru af stað sl. vetur, en vegna covid gekk illa að halda úti samspils- og hljómsveitaæfingum. Tónleikarnir frestuðust því fram á haustið.

19. nóvember rann loks stóra stundin upp þegar um 130 nemendur og kennarar mættu á Laugarvatn og fluttu einnar og hálfrar klst. dagskrá fyrir um 300 áheyrendur. Það gladdi okkur mjög að Gunnar mætti sjálfur á tónleikana og gaf það tónleikunum enn […]

Lög Gunnars Þórðarsonar – frábærir tónleikar2023-01-27T08:27:03+00:00

Deildatónleikar í nóvember

Deildatónleikar allra hljóðfæradeilda fóru fram í byrjun nóvember með fjölbreyttri og skemmtilegri dagskrá, sem saman stóð að mestu af ýmiskonar leik samspila og hljómsveita.

Nemendur stóðu sig afskaplega vel og dásamlegt að heyra þann þrótt og færni sem í nemendahópnum býr.

Meðfylgjandi eru nokkrar myndir frá tónleikum.

/Helga Sighv.

      

 

Deildatónleikar í nóvember2023-01-27T08:27:21+00:00

LÖG GUNNARS ÞÓRÐARSONAR – Tónleikar 19. nóv. í íþróttahúsinu Laugarvatni

LÖG GUNNARS ÞÓRÐARSONAR

Tónleikar í íþróttahúsinu Laugarvatni

19. nóvember 2022, kl. 14:00

 

Tónlistarskóli Árnesinga stendur fyrir stórtónleikum á Laugarvatni, laugard. 19. nóvember, þar sem flutt verða lög Gunnars Þórðarsonar.

Þetta er í þriðja sinn sem skólinn setur upp svo stórt samstarfsverkefni hljóðfæra- og söngdeilda, en árið 2016 var viðfangsefnið Töfraflauta Mozarts og árið 2019 var sett upp Allskynsóperan með tónlist úr ýmsum áttum.

Nú er komið að lögum Gunnars Þórðarsonar sem hafa fylgt íslensku þjóðinni í áratugi, en fram koma söngvarar, píanóleikarar, strengja-, blásara-, gítar-, blokkflautu- og rytmískar hljómsveitir skipaðar bæði nemendum og kennurum. Alls eru flytjendur um 130 talsins. Heyra má lög eins og Þitt […]

LÖG GUNNARS ÞÓRÐARSONAR – Tónleikar 19. nóv. í íþróttahúsinu Laugarvatni2022-11-16T16:56:14+00:00

Þátttaka í október-menningarmánuði í Árborg

Október var mjög líflegur hvað tónleikahald varðar, því nemendur og kennarar T.Á. komu víða fram í tilefni menningarmánuðar í Árborg.

Má þar nefna trompet og orgelleik í Eyrarbakkakirkju, málmblásaratríó í Mathöllinni, söng og lútuleik í kvöldmessu og fiðlu-kósýstund í Selfosskirkju, söng- og rytmískasveit á Sviðinu í miðbæ Selfoss þar sem fram komu nemendur úr listaskólum í Árborg, hrekkjavöku-strengjastund á bókasafninu og blokkflautuleik á 170 ára afmælishátíð í Barnaskólanum á Stokkseyri.

Nemendum og kennurum eru færðar bestu þakkir fyrir góða þátttöku í dagskrá menningarmánaðarins.

/Helga Sighv.

      […]

Þátttaka í október-menningarmánuði í Árborg2023-01-27T08:27:41+00:00

Sellóhópur og vinir í Bókasafni Árborgar

Sellóhópur og vinir spila á Hrekkjavöku | Bókasafn Árborgar, Selfossi | Viðburðadagatal | Sveitarfélagið Árborg (arborg.is)

Tónlistarskóli Árnesinga tekur þátt í Menningarmánuði í Árborg í október.

 

Mánud. 31. október 2022, kl. 16:15 – 17:00

„Í tilefni Hrekkjavöku halda strengjanemendur frá Tónlistarskóla Árnesinga tónleika á Bókasafni Árborgar, Selfossi.

Með þeim verða kennararnir Guðmundur Kristmundsson á víólu og Uelle Hahndorf á selló. Meðleikari á píanó verður Ester Ólafsdóttir“. 

Allir hjartanlega velkomnir!

Sellóhópur og vinir í Bókasafni Árborgar2022-10-25T12:11:44+00:00

Upprifjunardagur Suzuki-píanónemenda

Suzuki-píanókennarar héldu sameiginlegan upprifjunardag fyrir nemendur í sal skólans á Selfossi, laugard. 22. október. Tókst dagurinn afskaplega vel, en nemendur léku saman fjölda laga fyrir aðstandendur.

Kennararnir Guðrún Markúsdóttir, Magnea Gunnarsdóttir og Kolbrún Berglind Grétarsdóttir héldu utan um dagskrána, en á myndinni má sjá Guðrúnu og Magneu ásamt nemendum.

/Helga Sighv.

Upprifjunardagur Suzuki-píanónemenda2023-01-27T08:28:05+00:00
Þessi vefur notar vafrakökur (cookies) til að tryggja sem besta upplifun þegar hann er skoðaður. Þessi borði hverfur þegar þú samþykkir notkun. Þú getur breytt stillingum á kökum hvenær sem er. Í lagi