Skrifstofan lokuð föstud. 30. sept.
Skrifstofa Tónlistarskóla Árnesinga verður lokuð föstud. 30. sept.
Ef koma þarf upplýsingum til kennara, vinsamlegast hafið beint samband við þá. – Sjá símanúmer og netföng hér á heimasíðunni undir Starfsmenn.
Skrifstofa Tónlistarskóla Árnesinga verður lokuð föstud. 30. sept.
Ef koma þarf upplýsingum til kennara, vinsamlegast hafið beint samband við þá. – Sjá símanúmer og netföng hér á heimasíðunni undir Starfsmenn.
Dagana 13. – 17. október er haustfrí í tónlistarskólanum. Öll kennsla fellur niður þessa daga.
Sjá: tonlistarskoladagatal-2022-2023.pdf (tonar.is)
Frídagarnir 13. og 14. október falla á sömu daga og í flestum grunnskólum Árnessýslu, FSu og ML.
Mánudagurinn 17. október er einn af fimm frídögum sem falla á skólaárið vegna styttingar vinnutíma tónlistarskólakennara.
Dagana 8. og 9. september sóttu tónlistarskólakennarar af öllu landinu ráðstefnu í Hörpu, undir yfirskriftinni TÓNLIST ER FYRIR ALLA.
Viðfangsefni og erindi ráðstefnunnar voru mjög fjölbreytt, en þau áttu það sammerkt að horft var fram á veginn varðandi tónlistarkennslu og hlutverk tónlistar í samfélaginu.
Fjölmargir fyrirlesarar voru með framsögu og í framhaldi umræðutorg þar sem tónlistarkennarar tóku þátt. Sem dæmi um viðfangsefni má nefna að tónlistardeild Listaháskóla Íslands rýndu í stöðu tónlistarskólakefisins og tónlistarmenntunar á háskólastigi. Kynnt voru ýmis verkefni þar sem spuni, tónsköpun og lagasmíðar eru í fyrirrúmi, auk samstarfsverkefna tónlistarskóla. Kynntar voru nýjustu rannsóknir varðandi jákvæð áhrif tónlistar á heilastarfsemi frá […]
Foreldraheimsóknavika verður dagana 19. – 23. september.
Gott samband foreldra og kennara getur skipt sköpum um námsframvindu. Við hvetjum því forráðamenn eindregið til að mæta í tíma með barni sínu, og ræða við kennara um verkefni og markmið vetrarins.
Fimmtud. 8. og föstud. 9. september fellur niður öll kennsla í Tónlistarskóla Árnesinga, en kennarar sækja kennararáðstefnu í Hörpu.
Ný stjórn Tónlistarskóla Árnesinga hélt sinn fyrsta fund að Eyravegi 9 á Selfossi þann 16. ágúst, en í stjórn skólans sitja þrír fulltrúar frá sveitarfélögum Árnessýslu, auk skólastjórnenda.
Stjórnina skipa að þessu sinni: Kjartan Björnsson, formaður (úr Sveitarfélaginu Árborg), Erla Sif Markúsdóttir, varaformaður (úr Sveitarfélaginu Ölfusi) og Sveinn Ingi Sveinbjörnsson, ritari (úr Bláskógabyggð).
Að fundi loknum og kynningu á starfsemi skólans, var litið við á kennslustöðum á Selfossi, þ.e. að Eyravegi 15, Vallaskóla og Sunnulækjarskóla, þar sem meðfylgjandi mynd var tekin.
Við óskum nýrri stjórn velfarnaðar í sínu starfi.

Sveinn Ingi, Erla Sif, Jóhann I. Stefánsson aðstoðarskólastjóri og […]
Allir hóptímar (tónfræðikennsla, hljómsveitaræfingar og samspil) hefjast frá og með 5. september.
Nánari upplýsingar fá nemendur hjá sínum hljóðfæra-/söngkennurum og í nemendaskrá.
Hljóðfæra- og söngkennsla hefst 29. ágúst.
Kennarar hafa samband við nemendur sína á starfsdögum 22. – 26. ágúst vegna stundatöflugerðar.
Skrifstofa Tónlistarskóla Árneinga opnar eftir sumarleyfi, mánudaginn 8. ágúst kl. 13:00.
Fjórir fiðlunemendur Tónlistarskóla Árnesinga sóttu stutt hnitmiðað námskeið í Kaupmannahöfn í lok maí, ásamt tveimur nemendum úr MÍT og einum frá Tónskóla Sigursveins. Var námskeiðið undanfari árlegra vortónleika „Det danske Suzuki Institut” sem haldnir eru í Tívólí-tónleikasalnum í Kaupmannahöfn.
Tveir kennarar fylgdu íslenska hópnum, þau Guðmundur Kristmundsson og Greta Guðnadóttir fiðluleikari. Gefum Guðmundi orðið:
Eftir æfingar hér heima var haldið til Kaupmannahafnar þar sem sameinuðust nemendur frá Danmörku, Póllandi og Úkraínu. Æft var stíft daglangt 26. – 27. maí í “Músikhúsinu”, geysifallegu tónleikahúsi frá 18. öld sem staðsett er í miðborg Kaupmannahafnar. Þar er fjöldi sala af ýmsum stærðum og greinilegt að tónlistin […]