Tónlistarkennarar planta í Hafnarskógi

Kennarar tónlistarskólans luku skólaárinu 2021 – 2022 með því að planta 3.360 birkiplöntum í Hafnarskóg í Ölfusi.

Það var 11 manna hópur vaskra kennara sem kom plöntunum í jörð undir dyggri leiðsögn Hrannar frá skógræktinni.

   

/Helga Sighv.

Tónlistarkennarar planta í Hafnarskógi2023-01-27T08:30:02+00:00

Hjörtur lætur af störfum

Hjörtur B. Hjartarson fór á eftirlaun í vor, eftir 30 ára starf við skólann.  Fjöldi nemenda hefur notið leiðsagnar Hjartar á kennsluferlinum, enda hefur hann kennt á fjölmörg hljóðfæri og á mörgum kennslustöðum skólans.

Þökkum við Hirti innilega fyrir öll árin sem hann léði Tónlistarskóla Árnesinga krafta sína.

Meðfylgjandi myndir eru frá skólaslitum í Kerhólsskóla og á Stokkseyri í vor, þar sem Hjörtur kom fram ásamt nemendum sínum.

Hjörtur lætur af störfum2022-06-14T09:20:58+00:00

Vortónleikar og skólaslit loks aftur með hefðbundnu sniði

Vortónleikar og skólaslit voru loks aftur haldin með hefðbundnu sniði núna í vor.

Eftir tveggja ára hlé fengu nemendur aftur að láta ljós sitt skína og foreldrar og aðrir aðstandendur að heyra allt það blómlega starf sem hefur verið hulið á covid-timanum.

Alls voru haldnir um 30 vortónleikar og Suzuki-útskriftir um alla Árnessýslu og 10 skólaslit (þ.e. á öllum kennslustöðum skólans) og ekki hægt að segja annað en að það hafi verið líf og fjör þessar síðustu vikur skólaársins. Nemendur stóðu sig með mikilli prýði og voru sér og kennurum sínum til mikils sóma.

Með myndunum hér fyrir neðan má fá örlitla innsýn í […]

Vortónleikar og skólaslit loks aftur með hefðbundnu sniði2022-06-14T09:27:13+00:00

Framhaldsprófstónleikar Arnars Gísla og Elísabetar Önnu

Tveir nemendur útskrifuðust frá Tónlistarskóla Árnesinga í vor með framhaldspróf – og héldu tilheyrandi tónleika sem báðir fóru fram í Hveragerðiskirkju. Tónleikar beggja útskriftarnemendanna voru afskaplega glæsilegir og skemmtilegir. Áheyrendur sem fylltu Hveragerðiskirkju, klöppuðu nemendum og öðrum flyjendum lof í lófa í lok tónleikanna.

Þriðjud. 17. maí hélt Arnar Gísli Sæmundsson söngtónleika, en aðrir flytjendur voru Ester Ólafsdóttir píanómeðleikari og sönghópur undir stjórn Margrétar S. Stefánsdóttur, sem jafnframt var söngkennari Arnars Gísla.

 

Fimmtud. 19. maí hélt Elísabet Anna Dudziak, fiðlutónleika. Aðrir flytjendur voru Miklós Dalmay píanómeðleikari, Hildur Tanja Karlsdóttir og Eyrún Huld Ingvarsdóttir fiðluleikarar. Fiðlukennari Elísabetar Önnu […]

Framhaldsprófstónleikar Arnars Gísla og Elísabetar Önnu2022-09-29T15:37:10+00:00

Umsóknir nýnema um skólavist 2022 -2023

Nú er rétti tíminn til að sækja um nám fyrir nýnema veturinn 2022-2023.

Umsóknina finnið þið undir hnappinum UMSÓKN UM SKÓLAVIST, efst á heimsíðunni.

Athugið að sækja má um skólavist allt árið.

Þeir sem sækja um fyrir 1. júní eru í fyrsta hópnum sem tekinn er inn, en við bætum áfram við nemendum eftir því sem rúm leyfir.

 

Nánari upplýsingar t.d. um kennslugreinar, skólagjöld og kennslustaði má finna hér: Dreifibréf 2022

 

Umsóknir nýnema um skólavist 2022 -20232022-05-11T16:47:33+00:00

Vínarbrauðstónleikar strengjadeildar fyrir fullu húsi

Vínarbrauðstónleikar strengjadeildar fóru fram í Félagsheimilinu Árnesi sunnud. 1. maí. Á þessum skemmtilegu tónleikum komu fram báðar strengjasveitir skólans, sellóhópur og allir starfandi fiðlu-, víólu- og selló-Suzukihópar. Eldri strengjasveit hefur haft samstarf við aðra tónlistarskóla í vetur og léku því nemendur úr Tónlistarskóla Rangæinga, Tónskóla Sigursveins og Allegro Suzukitónlistarskólanum með hljómsveitinni.

Vínarbrauðstónleikar hafa átt fastan sess í tónleikahaldi skólans og voru þetta 20. vínarbrauðstónleikar strengjadeildar. – Heilmikil tónlistarhátíð sem endaði að vanda með  vínarbrauði og öðru kruðeríi í dagskrárlok.

[…]

Vínarbrauðstónleikar strengjadeildar fyrir fullu húsi2022-05-03T13:07:37+00:00

Skólaheimsókn frá Snæfellsbæ og námskeið

Föstudaginn 22. apríl fékk Tónlistarskóli Árnesinga ánægjulega heimsókn frá Tónlistarskóla Snæfellsbæjar. Á ferð voru skólastjóri, kennarar, eldri söngnemendur og nokkrir makar á ferð um Suðurland. Margrét S. Stefánsdóttir söngkennari Tónlsk. Árn. hélt söngnámskeið fyrir gestina þar sem unnið var með tækniæfingar, raddbeytingu o.fl. Þrír nemendur Margrétar sungu og gáfu sýnishorn um þau atriði sem unnið var með. Að lokum fengu gestirnir stuttan fyrirlestur um starfsemi Tónlistarskóla Árnesinga.

Samstarf tónlistarskóla er alltaf mjög gefandi. Heimsóknir og upplýsingagjöf, námskeiðahald, samæfingar hljómsveita og samspilshópa, æfingabúðir o.fl. Allt eflir þetta starf skólanna og gefur nemendum og kennurum færi á að upplifa og læra eitthvað nýtt. Samstarf […]

Skólaheimsókn frá Snæfellsbæ og námskeið2022-05-03T12:56:56+00:00

Skólaslit á kennslustöðum í maí

Skólaslit verða aftur með hefðbundnu sniði í vor, eftir tveggja ára hlé.

Á hverjum kennslustað eru haldin skólaslit með tónlistarflutningi og afhendingu prófskírteina.

Dagskrá skólaslitanna er skemmtilega ólík og ræðst það af nemendafjölda. Á minnstu kennslustöðunum leika allir nemendur sveitarfélagsins og eru skólaslitin þá um leið vortónleikar nemendanna. Á stærri kennslustöðum eru leikin valin atriði sem sýna þversnið kennslunnar og á Selfossi koma nær eingöngu fram hljómsveitir og samspilshópar.

Allir hjartanlega velkomnir!

 

Skólaslitin eru 10 alls og verða sem hér segir:

mánud. 16. maí

17:00 – Flúðir – í Félagsheimili Hrunamanna

 

fimmtud. 19. maí

17:30 – Laugarvatn – í grunnskólanum

 

föstud. 20. maí

11:00 – Kerhólsskóli

16:00 – Reykholt – í Félagsheimilinu Aratungu

 

mánud. 23. maí

16:00 […]

Skólaslit á kennslustöðum í maí2022-05-16T11:30:16+00:00

Vínarbrauðstónleikar strengjadeildar í Árnesi

Vínarbrauðstónleikar strengjadeildar verða haldnir í Félagsheimilinu Árnesi sunnud. 1. maí.

Á þessum skemmtilegu tónleikum koma fram strengjasveitir skólans, sellóhópur og allir starfandi fiðlu-, víólu- og selló-Suzukihópar.

Vínarbrauðstónleikar hafa átt fastan sess í tónleikahaldi skólans og verið haldnir nær óslitið í 20 ár. – Heilmikil strengjatónlistarhátíð.

Aðgangur er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir!

Vínarbrauðstónleikar strengjadeildar í Árnesi2022-04-29T19:28:22+00:00

Framhaldsprófstónleikar Arnars Gísla í Hveragerðiskirkju

Arnar Gísli Sæmundsson lýkur framhaldsnámi í söng í vor með framhaldsprófstónleikum í Hveragerðiskirkju þriðjud. 17. maí kl. 18:00.

Flutt verða verk eftir Árna Thorsteinsson, Caccini, Durante, Schubert, Brahms, Sjöberg, Freddy Mercury, Curtis, Rota, Schönberg, Donizetti og Puccini.

Aðrir flytjendur: Ester Ólafsdóttir meðleikur á píanó og sönghópur tónlistarskólans.

Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir.

 

Framhaldsprófstónleikar Arnars Gísla í Hveragerðiskirkju2022-04-28T18:09:55+00:00
Þessi vefur notar vafrakökur (cookies) til að tryggja sem besta upplifun þegar hann er skoðaður. Þessi borði hverfur þegar þú samþykkir notkun. Þú getur breytt stillingum á kökum hvenær sem er. Í lagi