Framhaldsprófstónleikar Elísabetar Önnu í Hveragerðiskirkju

Elísabet Anna Dudziak lýkur framhaldsnámi í fiðluleik í vor með framhaldsprófstónleikum í Hveragerðiskirkju fimmtud. 19. maí kl. 18:00.

Flutt verða verk eftir Bach, Mozart, Brahms, Bloch og Hellmesberger

Aðrir flytjendur: Miklós Dalmay píanó, Eyrún Huld Ingvarsdóttir fiðla og Hildur Tanja Karlsdóttir fiðla

Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir.

 

Framhaldsprófstónleikar Elísabetar Önnu í Hveragerðiskirkju2022-04-28T18:11:10+00:00

Suzuki-gítar-upprifjunardagur á Selfossi

Suzuki-gítar-upprifjunardagur verður haldinn á Selfossi

sunnudaginn 22. maí kl. 11:00 – 15:00, að Eyravegi 9, 3. hæð.

Viðfangsefnið eru bækur 1 – 4.

Skráning er hjá Birgit Myschi, birgit@tonar.is.

Suzuki-gítar-upprifjunardagur á Selfossi2022-04-28T17:05:07+00:00

Sumardagurinn fyrsti – frí

Sumardagurinn fyrsti verður 21. apríl. – Öll kennsla fellur niður sumardaginn fyrsta.

Sumardagurinn fyrsti – frí2022-03-29T09:00:51+00:00

Páskafrí

Páskafrí verður dagana 9. – 18. apríl.

Páskafrí2022-03-29T08:59:39+00:00

Framhaldsdeildartónleikarnir – vandaður flutningur

Framhaldsdeildartónleikar fóru fram 25. mars í sal skólans á Selfossi. Á tónleikunum komu fram nemendur sem hafa lokið miðprófi. Var mjög ánægjulegt að hlýða á þróttmikinn og vandaðan hljóðfæraleik nemendanna. Eins og á fyrri tónleikum marsmánaðar var þakklæti gestum og flytjendum ofarlega í huga, enda tækifæri til tónleikahalds undanfarið verið mun færri en í venjulegu ári.

Á myndinni má sjá nemendur og meðleikara sem fram komu á tónleikunum ásamt kennurum, að tónleikum loknum.

Framhaldsdeildartónleikarnir – vandaður flutningur2022-03-29T09:02:03+00:00

Skemmtilegir svæðistónleikar Nótunnar í Salnum Kópavogi

Svæðistónleikar Nótunnar (uppskeruhátíðar tónlistarskóla) fóru fram í Salnum í Kópavogi laugard. 19. mars. Á tónleikunum komu fram nemendur frá Suðurlandi, Suðurnesjum og úr Kraganum, þ.á.m. þrjú atriði frá Tónlistarskóla Árnesinga:

Rytmíska sveitin ÍSA-tríó, flutti lagið So what eftir Miles Davis, en sveitina skipa þeir Ívar Dagur Sævarsson rafgítar, Arilíus Smári Orrason, rafbassi og Samúel Guðmundsson trommur,

Arnar Gísli Sæmundsson söng við undirleik Margrétar S. Stefánsdóttur lagið Parla più piano eftir Nino Rota úr kvikmyndinni Guðföðurnum og

þrír gítarleikarar, þeir Albert Hellsten Högnason, Ásgeir Ægir Gunnarsson og Guðbergur Davíð Ágústsson léku Partial Eclipse eftir Richard Charlton.

Allir stóðu nemendurnir sig afskaplega vel og skólanum til mikils sóma. […]

Skemmtilegir svæðistónleikar Nótunnar í Salnum Kópavogi2022-03-21T14:37:21+00:00

Hljóðfærakynningar í grunnskólum Árnessýslu

Deildarstjórar og kennarar Tónlistarskóla Árnesinga heimsækja núna nemendur í 2. bekk allra grunnskóla Árnessýslu með hljóðfærakynningar.

Hver skóli fær fimm heimsóknir í allt, en í hverri heimsókn er lögð áhersla á ákveðinn hljóðfæraflokk. Í fyrstu heimsókn er klassískur gítar og rytmísku hljóðfærin kynnt, í annarri heimsókn koma strengjahljóðfæri, þá tréblásturshljóðfæri og loks málmblásturshljóðfæri. Í lokatímanum er píanóið kynnt, farið í upprifjun og sungið, eins og reyndar í öllum heimsóknunum.

Við þökkum innilega fyrir hlýjar móttökur í grunnskólunum!

Frá hljóðfærakynningum fyrir nemendur í Vallaskóla og í Reykholti.

Hljóðfærakynningar í grunnskólum Árnessýslu2022-03-29T09:05:44+00:00

Miðdeildartónleikarnir skemmtilegir að vanda

Miðdeildartónleikar fóru fram 17. mars í sal skólans á Selfossi. Skemmtilega fjölbreytt dagskrá bæði efnislega og hvað hljóðfæri varðar – og greinilegt að nemendur eru farnir að ná góðum tökum á hljóðfærin á þessu stigi. Nemendum og kennurum var klappað lof í lófa í lok tónleika.

Nemendur og kennarar að afloknum miðdeildartónleikum.

Miðdeildartónleikarnir skemmtilegir að vanda2022-03-18T13:21:08+00:00

Nótutónleikar 19. mars í Salnum Kópavogi kl. 13:00 og 15:00

Svæðistónleikar Nótunnar (uppskeruhátíðar tónlistarskóla) fara fram í Salnum í Kópavogi 19. mars, kl. 13:00 og 15:00.

Á tónleikunum koma fram nemendur frá Suðurlandi, Suðurnesjum og úr Kraganum og taka þrjú atriði þátt frá Tónlistarskóla Árnesinga.

Kl. 13:00 stíga tvö atriði á svið frá T.Á, þ.e. rytmíska sveitin ÍSA-tríó undir stjórn Vignis Ólafssonar og Arnar Gísli Sæmundsson söngnemandi ásamt Margréti S. Stefánsdóttur kennara sínum. Kl. 15:00 leikur svo gítartríó undir stjórn Birgitar Myschi.

Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir!

Nánari upplýsingar um Nótuna má finna á þessari slóð: Nótan | Kennarasamband Íslands (ki.is)

og í þessari auglýsingu: Svæðistónleikar Nótunnar 2022-A3-prentútgáfa

Nótutónleikar 19. mars í Salnum Kópavogi kl. 13:00 og 15:002022-03-17T14:02:35+00:00

Söngdeildartónleikar í Selfosskirkju

Söngdeildartónleikar fóru fram 10. mars í Selfosskirkju og var gleðin nær áþreifanleg á tónleikunum. Þessir tónleikar áttu upphaflega að fara fram í desember, en höfðu frestast og frestast vegna covid og ófærðar.

Á tónleikunum kom fram breiður nemendahópur allt frá byrjendum til nemenda sem stefna á námslok í vor. Þá sungu tveir sönghópar, þ.e. söngfuglar, skipaðir yngri söngnemendum frá Flúðum, Selfossi og Hveragerði og eldri sönghópur skipaður einsöngsnemendum. – Yndisleg stund.

Sönghópur                […]

Söngdeildartónleikar í Selfosskirkju2022-03-14T14:11:43+00:00
Þessi vefur notar vafrakökur (cookies) til að tryggja sem besta upplifun þegar hann er skoðaður. Þessi borði hverfur þegar þú samþykkir notkun. Þú getur breytt stillingum á kökum hvenær sem er. Í lagi