Nýr ritari 1. mars

Nýr ritari tók til starfa 1. mars sl. þegar Anna Jónsdóttir tók við keflinu af Guðrúnu Helgadóttur.
Um leið og við þökkum Guðrúnu innilega fyrir ánægjulegt samstarf sl. ár, bjóðum við Önnu hjartanlega velkomna og óskum henni allra heilla í nýja starfinu.

Guðrún og Anna

Nýr ritari 1. mars2022-03-14T13:33:25+00:00

Prófadagar – engin kennsla

Prófadagar verða 30. og 31. mars og 1. apríl.

Á prófdögum fellur niður ölla kennsla, en kennarar verða á ferð og flugi að prófdæma nemendu og með sína nemendur í prófum.

Um helmingur nemenda skólans tekur próf á prófadögum, en aðrir nemendur eru staddir á milli prófa. Upplýsingar um hvort nemendur taka próf núna í vor fást hjá kennurum, en kennarar meta hvenær nemendur skulu þreyta próf.

Prófadagar – engin kennsla2022-02-28T15:50:35+00:00

Framhaldsdeildartónleikar, Eyravegi 9 Selfossi

Framhaldsdeildartónleikar verða haldnir í sal skólans að Eyravegi 9 á Selfossi, föstud. 25. mars kl. 17:00

Fram koma nemendur á framhaldsstigi sem leika á ýmis hljóðfæri og dagskráin því mjög fjölbreytt og skemmtileg.

Allir hjartanlega velkomnir!

Framhaldsdeildartónleikar, Eyravegi 9 Selfossi2022-02-25T15:44:19+00:00

Miðdeildartónleikar, Eyravegi 9 Selfossi

Miðdeildartónleikar verða haldnir í sal skólans að Eyravegi 9 á Selfossi, fimmtud. 17. mars kl. 18:15.

Fram koma nemendur á miðstigi sem leika á ýmis hljóðfæri og dagskráin því mjög fjölbreytt og skemmtileg.

Allir hjartanlega velkomnir!

Miðdeildartónleikar, Eyravegi 9 Selfossi2022-02-25T15:41:44+00:00

Öskudagur – frí vegna starfsdags

Miðvikudaginn 2. mars fellur niður öll kennsla í tónlistarskólanum vegna starfsdags kennara.

 

Öskudagur – frí vegna starfsdags2022-02-25T15:19:16+00:00

Söngdeildartónleikar í Selfosskirkju

Söngdeildartónleikar verða haldnir í Selfosskirkju fimmtud. 10. mars kl. 17:00

Á tónleikunum koma fram einsöngsnemendur, sönghópur og yngri söngnemendur okkar í söngfuglum.

Fjölbreytt og skemmtileg dagskrá og reglulega ánægjulegt að geta boðið aftur gestum á tónleika 🙂

Allir hjartanlega velkomnir!

Söngdeildartónleikar í Selfosskirkju2022-02-25T15:16:58+00:00

Vetrarfrí

Vetrarfrí verður í Tónlistarskóla Árnesinga mánud. 21. og þriðjud. 22. febrúar.

Þetta eru sömu dagar og í grunnskólum sýslunnar.

Vetrarfrí2022-02-03T10:41:52+00:00

Ritari óskast til starfa frá 1. mars. Umsóknarfrestur til 2. febrúar

Skólaritari og launafulltrúi

 

 

Tónlistarskóli Árnesinga óskar eftir að ráða til starfa ritara í 65% starf frá 1. mars 2022.

 

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Almenn skrifstofustörf.
  • Umsjón með reikningshaldi.
  • Skólaritari er jafnframt launa- og persónuverndarfulltrúi.

 

Hæfnikröfur

  • Auk stúdentsprófs er bókhaldsnám eða bókhaldsþekking æskileg.
  • Góð íslenskukunnátta og góð almenn tölvukunnátta.
  • Reynsla af launaforritinu H-laun er kostur.
  • Lipurð í mannlegum samskiptum, samviskusemi og frumkvæði.

 

Með umsókn fylgi upplýsingar um menntun og starfsreynslu og meðmæli tveggja aðila.

 

Skólaritari starfar í húsnæði tónlistarskólans Eyravegi 9, Selfossi.

Fastur starfstími skólaritara er kl. 12:00 – 16:00 auk fjögurra morgna í mánuði kl. 8:00 – 12:00 (eða eftir samkomulagi).

Kjör eru samkvæmt kjarasamningi FOSS.

 

Umsóknarfrestur er […]

Ritari óskast til starfa frá 1. mars. Umsóknarfrestur til 2. febrúar2022-02-01T08:40:34+00:00

Foreldraheimsóknavika

Kennarar hafa samband við foreldra, fara yfir miðsvetrarmat, hvernig nemendum sækist námið og hvað framundan er á vorönn.

Venjulega viljum við fá sem flesta í tíma, en vegna Covid geta kennarar, foreldrar eða nemendur valið þann kost að vera í símasambandi eða tengjast í gegnum netið.

– Ef foreldrar mæta í tíma, vinsamlegast notið grímur og athugið fjarlægðarmörk.

Foreldraheimsóknavika2022-01-06T07:55:07+00:00

Jólakveðja Tónlistarskóla Árnesinga

Það var lítið um hefðbundna jólaspilamennsku í desember vegna Covid. Samt sem áður náðum við mjög skemmtilegu verkefni með um 60 nemendum og kennurum þann 16. desember þegar fram fóru upptökur á jólakveðju Tónlistarskóla Árnesinga 2021. Vegna fjöldatakmarkana var nemendum skipt í fimm hæfilega stóra hópa sem teknir voru upp hver fyrir sig.

Margir kennarar undirbjuggu nemendur og aðstoðuðu við upptökur.

 

Með jólakveðju Tónlistarskóla Árnesinga sendum við nemendum og fjölskyldum þeirra óskir um gleðileg jól og gott nýtt ár.

Takk fyrir allar góðar stundir á árinu sem er að líða 😊

 

Jólakveðjan er undir þessari slóð: Jólakveðja Tónlistarskóla Árnesinga

[…]

Jólakveðja Tónlistarskóla Árnesinga2022-01-06T07:59:59+00:00
Þessi vefur notar vafrakökur (cookies) til að tryggja sem besta upplifun þegar hann er skoðaður. Þessi borði hverfur þegar þú samþykkir notkun. Þú getur breytt stillingum á kökum hvenær sem er. Í lagi