Engin kennsla mánudaginn 2. nóvember
Öll kennsla fellur niður mánudaginn 2. nóvember. Stjórnendur og kennarar fara yfir nýja reglugerð um takmarkanir á skólastarfi.
Öll kennsla fellur niður mánudaginn 2. nóvember. Stjórnendur og kennarar fara yfir nýja reglugerð um takmarkanir á skólastarfi.
Það var stór stund í tónlistarsögu Sunnlendinga þegar stofnuð var Sinfóníuhljómsveit Suðurlands á haustdögum. Stjórnandi sveitarinnar er Guðmundur Óli Gunnarsson, en hann kom einnig að stofnun Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands fyrir 27 árum síðan og var stjórnandi hennar í 22 ár. Hér er því byggt á mikilli reynslu.
Sinfóníuhljómsveit Suðurlands hélt sína fyrstu tónleika 16. september og voru það grunnskólanemendur í Þorlákshöfn, Hveragerði og uppsveitum sem fengu að njóta þeirrar skemmtilegu dagskrár sem boðið var uppá. Því miður tókst ekki að halda tónleika í Árborg vegna Covid.
Það er gaman að geta þess að kennarar Tónlistarskóla Árnesinga skipuðu að stórum hluta hina nýstofnuðu hljómsveit, auk […]
Tónlistarskóla Árnesinga berast af og til gjafir frá velunnurum.
Þannig var það þegar Ingibjörg Elsa Björnsdóttir, foreldri og nemandi við skólann, kom færandi hendi á dögunum með þráðlausan Sennheiser míkrófón og mixer. Gjöfina sagði hún vera í minningu bróður síns Sigurðar Björnssonar, sem lést 2006, „var mikill tónlistaraðdáandi, elskaði Bítlana og hlustað mikið á tónlist“.
Ætlunin er að tækin nýtist bæði rytmísku- og söngdeildinni og er andvirði hennar um 70.000 krónur.
Við þökkum Ingibjörgu Elsu innilega fyrir gjöfina og hlýhug til tónlistarskólans.

Við afhendingu gjafarinnar 1. október 2020
Fimmtud. 15. – mánud. 19. október verður haustfrí í Tónlistarskóla Árnesinga.
Öll kennsla fellur niður í tónlistarskólanum þessa daga.
Flestir grunnskólar í Árnessýslu eru með starfs- eða frídaga í kringum þessa helgi, en athugið að þeir eru ekki samræmdir að öllu leyti.

Skrifstofa Tónlistarskóla Árnesinga er lokuð vegna sumarleyfa frá 16. júní til 4. ágúst.
Skrifstofan opnar aftur miðvikud. 5. ágúst kl. 8:00.
Það er alltaf ánægjulegt og stór áfangi þegar nemendur ljúka framhaldsprófi frá tónlistarskólanum. Í vor lauk Margrét Guangbing Hu framhaldsprófi og hélt tilheyrandi tónleika í Hveragerðiskirju þann 28. maí sl. Til gamans má geta þess að Margrét er yngsti nemandi Tónlistarskóla Árnesinga sem lýkur framhaldsprófi, en hún útskrifast frá Grunnskólanum í Hveragerði í vor.
Margrét hóf Suzuki-píanónám við Tónlistarskóla Árnesinga árið 2009, þá 5 ára gömul, en kennari hennar frá upphafi hefur verið Ester Ólafsdóttir. Hún hefur komið fram við fjölda tækifæra innan og utan skólans og tók m.a. þátt í svæðistónleikum Nótunnar (uppskeruhátíð tónlistarskólanna) í Hafnarfirði 2014. Hún lék líka í […]
Nemendur sem óska eftir skólavist veturinn 2020 – 2021 sækja um rafrænt með því að smella á hnappinn UMSÓKN UM SKÓLAVIST hér fyrir ofan.
(Núverandi nemendur sækja um í gegnum foreldragátt).
Í þessum hlekk (Dreifibréf 2020) má sjá upplýsingar um það nám sem í boði er, en þær er jafnframt að finna hér á heimasíðu skólans.
Skólaslit og vortónleikar falla niður í ár, en skólaslitavikan 19. – 26. maí verður nýtt til að ljúka þeim prófum sem frestuðust í mars.