Kennsla frá 4. maí

Það hallar í lok þessa sérstaka vetrar. Ekki er hægt að segja annað en að nemendur, foreldrar og kennarar hafi tekist á við aðstæðurnar af miklum dugnaði og æðruleysi. Framfarir nemenda hafa í raun verið undraverðar þrátt fyrir allt.

Einkatímar, undirleikstímar og tónfræðitímarkennsla hefst á ný á öllum kennslustöðum, samkvæmt stundaskrá.

ATH. Nemendur, foreldrar og kennarar hafa áfram val um fjarkennslu.

 

Hljómsveitaæfingar og samspilstímar falla niður.

 

Umgengnisreglur á kennslustöðum eru í samræmi við tilmæli almannavarna og mikilvægt að slaka ekki á þeim.

– Vandaður handþvottur fyrir hverja kennslustund.

– Sprittun snertiflata milli nemenda.

– 2 metrar milli manna (eldri en 16 ára).

– Umferð foreldra í húsnæði […]

Kennsla frá 4. maí2020-05-06T09:04:03+00:00

1. maí – frí

1. maí er frídagur. Engin fjarkennsla verður þann dag.

1. maí – frí2020-04-24T09:44:41+00:00

Páskafrí 4. – 13. apríl

Páskafrí hefst 4. apríl og stendur til og með 13. apríl.

Engin fjarkennsla verður í páskafríi.

Fjarkennsla hefst aftur frá og með þriðjud. 14. apríl og stendur þar til annað verður ákveðið.

Páskafrí 4. – 13. apríl2020-04-01T10:00:47+00:00

Tónlistarskóli í samkomubanni – „iðandi af lífi“

Að baki er langur og skrítinn mánuður.

Frá og með mánud. 30. mars fer öll kennsla fram í fjarkennslu – og við höldum áfram fjarkennslu eftir páskafrí, þar til annað verður ákveðið.

Þó það sé ekki sýnilegt, þá er skólinn „iðandi af lífi“ frá morgni til kvölds. Kennarar hafa verið duglegir að skoða ýmsa fjarkennslumöguleika. Flestir kenna í gegnum Messenger, Skype, Zoom, Whereby, Google Hangout, Teams eða Facetime. Til viðbótar leggja kennarar inn verkefni, skanna og senda nótur og fá upptökur frá nemendum. Kennsla yngstu nemendanna fer fram í gegnum foreldrana.

Undirleikur felst aðallega í því að senda nemendum upptökur að undirleik, en einnig hefur […]

Tónlistarskóli í samkomubanni – „iðandi af lífi“2020-04-03T08:12:53+00:00

Suzukiútskriftir

Suzukikennsla stendur traustum fótum í Tónlistarskóla Árnesinga og býður skólinn upp á fjölbreytt úrval hljóðfæra fyrir nemendur sína.

Kennslan er ætluð yngsta aldurshópnum og byggir námið ekki hvað síst á þátttöku foreldra og hlustun. Þegar nemendur hafa lokið hverri námsbók, útskrifast þeir úr bókinni með því að leika ákveðin lög á tónleikum.

Suzuki-útskriftartónleikar eru alltaf hátíðlegir og gaman að taka á móti skírteini í lok þeirra.

Á meðfylgjandi myndum má sjá nemendur og kennara að afloknum tónleikum. Til hamingju!

   

 

Suzukiútskriftir2020-03-24T16:28:31+00:00

Fjölbreytt hlutverk tónlistarskólans

Verkefni nemenda og kennara tónlistarskólans eru mjög fjölbreytt.

Auk hefðbundinna tónleika og heimsókna eru nemendur og kennarar sýnilegir víða í samfélaginu.

Þeir heimsækja hjúkrunarheimili reglulega allan veturinn með hljóðfæraleik og söng. Hér má sjá fiðlunemendur leika á Fossheimum fyrr í vetur.

    

Nokkrir nemendur léku á upplestrarkeppnum grunnskólanna í liðinni viku. – Meðfylgjandi myndir voru teknar í Vallaskóla 28. mars.

 

Kennarar eru allan veturinn á flakki milli grunnskóla með hljóðfærakynningar og […]

Fjölbreytt hlutverk tónlistarskólans2020-03-12T16:56:05+00:00

Dagur tónlistarskólanna 8. febrúar

Dagur tónlistarskólanna var haldinn hátíðlegur um allt land laugardaginn 8. febrúar.

Í tilefni dagsins stóð Tónlistarskóli Árnesinga fyrir sjö svæðistónleikum um alla sýslu. Þrennir þeirra voru á Selfossi, en aðrir voru í Aratungu, Árnesi, Hveragerðiskirkju og Þorlákskirkju.

Dagurinn var afskaplega líflegur og skemmtilegur, enda komu fram um 250 nemendur á tónleikunum sjö, eða um helmingur nemenda skólans. Kennarar skiptu með sér verkum, um leið og þeir fylgdu nemendum á hverja tónleikana á fætur öðrum. Þema vetrarins er teiknimynda- og tölvuleikjatónlist og litaði það dagskrárnar með fjölbreytni og skemmtilegheitum. Kennarar og stjórnendur voru mjög ánægðir í lok þessa langa dags og stoltir af nemendum […]

Dagur tónlistarskólanna 8. febrúar2020-02-17T10:36:06+00:00

Strengjakvartett TÁ á Nótunni í Hörpu

Nótan sunnud. 29. mars, í Hörpu

Uppskeruhátíð tónlistarskólanna, NÓTAN, fagnar 10 ára afmæli í ár. Tímamótunum verður fagnað með tónleikaröð í Eldborgarsal Hörpu frá kl. 11 – 15, sunnudaginn 29. mars og er þemað að þessu sinni samspil og hljómsveitir.

Á tónleikunum mætast nemendur af öllu landinu, þar á meðal strengjakvartett frá Tónlistarskóla Árnesinga, skipaður þeim Arndísi Hildi á víólu, Elísabet Önnu og Ingibjörgu Ólafsdóttur á fiðlur og Katrínu Brinu á selló. Samhliða tónleikunum fara fram tónlistarsmiðjur og konsertveisla.

Lokaathöfn afmælishátíðar verður svo kl. 16 – 17.

Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu KÍ: http://gamli.ki.is/um-ki/utgafa/frettir/vidburdir/5576-notan-2020

Strengjakvartett TÁ á Nótunni í Hörpu2020-03-12T11:14:14+00:00
Þessi vefur notar vafrakökur (cookies) til að tryggja sem besta upplifun þegar hann er skoðaður. Þessi borði hverfur þegar þú samþykkir notkun. Þú getur breytt stillingum á kökum hvenær sem er. Í lagi