Framhaldsdeildartónleikar í sal skólans Eyravegi 9, Selfossi

Framhaldsdeildartónleikar þriðjud. 17. mars kl. 18:15, í sal skólans Eyravegi 9, Selfossi

Á tónleikunum koma fram nemendur sem lokið hafa miðpróf í tónlist og stefna að 6. stigi eða framhaldsprófi. Þessi nemendahópur hefur öðlast mikla leikni í hljóðfæraleik/söng og gaman að heyra krefjandi og metnaðarfull verkefni í flutningi þeirra.

Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir.

Framhaldsdeildartónleikar í sal skólans Eyravegi 9, Selfossi2020-03-13T13:45:51+00:00

Miðdeildartónleikar í sal skólans Eyravegi 9, Selfossi

Miðdeildartónleikar mánud. 16. mars kl. 18:45, í sal skólans Eyravegi 9, Selfossi

Á miðdeildartónleikum koma fram nemendur sem lokið hafa grunnprófi og stefna að 4. stigi eða miðprófi. Þetta er öflugur hópur nemenda sem hefur náð góðum grunntökum í hljóðfæraleik/söng. Verkefnaval er fjölbreytt og oft á tíðum nokkuð krefjandi.

Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir.

Miðdeildartónleikar í sal skólans Eyravegi 9, Selfossi2020-03-13T13:46:10+00:00

Strengjakvartett og vinir á Listasafninu

Laugardaginn 15. febrúar kl. 14:00 leikur strengjakvartett skólans á tónleikum í Listasafni Árnesinga í Hveragerði.

Kvartettinn skipa þær Arndís Hildur Tyrfingsdóttir á víólu, Elísabet Anna Dudziak og Ingibjörg Ólafsdóttir á fiðlur og Katrín Birna Sigurðardóttir á selló.

Auk kvartettins koma fram Ragnar Geir Brynjólfsson á kontrabassa, Guðmundur Kristmundsson á víólu og Einar Bjartur Egilsson sem leikur á píanó.

Á dagskrá er kafli úr kvartett eftir Alexander Borodin og nokkur lög úr kvikmyndum, eftir Astor Piazzolla, Ennio Morricone og Nino Rota.

Aðgangur er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir.

Strengjakvartett og vinir á Listasafninu2020-02-13T08:56:03+00:00

Prófadagar 23.-25. mars – öll kennsla fellur niður

Dagana 23. – 25. mars fellur öll kennsla niður í Tónlistarskóla Árnesinga vegna prófa.

Ekki taka allir nemendur próf og helgast það af því hvar þeir eru staddir í námi. T.d. líður lengra á milli prófa hjá nemendum í hálfu námi; og að afloknu grunnprófi (3. stigi) líða alla jafna tvö ár á milli prófa. Nánari upplýsingar er að fá hjá viðkomandi kennara.

Um 240 – 250 nemendur munu taka próf á prófadögum. Í stað kennslu eru kennarar því uppteknir þessa daga, við að fylgja nemendum í próf eða að prófdæma.

Við óskum próftökum góðs gengis.

Prófadagar 23.-25. mars – öll kennsla fellur niður2020-02-10T11:04:04+00:00

Með Sinfóníuhljómsveit tónlistarskólanna

Laugardaginn 25. janúar léku þrír nemendur Tónlistarskóla Árnesinga með Sinfóníuhljómsveit tónlistarskólanna, í Langholtskirkju í Reykjavík. Þetta voru þau Hildur Tanja Karlsdóttir, Ingibjörg Óafsdóttir og Óttar Pétursson. Þau mættu á 12 æfingar til Reykjavíkur í janúar, og þrátt fyrir köflótt veðurfar gekk æfingadagskráin upp.

Að fá tækifæri til að taka þátt í stóru verkefni sem þessu (með um 80 öðrum flytjendum) er mjög eflandi og ómetanlegt fyrir nemendur. Á dagskrá voru þrjú verk. Pequene Czarda eftir Iturralde, Danzón nr. 2 eftir Márquez og þættir úr Camensvítum I og II eftir Bizet.

Stjórnandi tónleikanna var Guðmundur Óli Gunnarsson, en til gamans má geta þessa að […]

Með Sinfóníuhljómsveit tónlistarskólanna2020-01-28T08:30:26+00:00

Dagur tónlistarskólanna – tónleikar kl. 16:00 í Þorlákskirkju

Dagur tónlistarskólanna verður haldinn hátíðlegur laugardaginn 8. febrúar 2020, með þrennum tónleikum á Selfossi og fernum svæðistónleikum sem dreifast um sýsluna.

Á tónleikunum þessa líflega dags má sjá þverskurð af nemendahópnum, því allir kennarar skólans senda nemendur til leiks.
Þema vetrarins og tónleikanna er „Tölvuleikja- og teiknimyndatónlist“ og spennandi að sjá hvernig það litar daginn.

Tónleikar verða haldnir sem hér segir:

10:00 í Félagsheimilinu Aratungu (nemendur úr Bláskógabyggð og Grímsnes- og Grafningshreppi)
10:00 í sal skólans Eyravegi 9, Selfoss

12:00 í Félagsheimilinu Árnesi (nemendur úr Hrunamannahreppi, Skriða- og Gnúpverjahreppi og Flóahreppi)
12:00 í sal skólans Eyravegi 9, Selfoss

14:15 í […]

Dagur tónlistarskólanna – tónleikar kl. 16:00 í Þorlákskirkju2020-01-20T13:24:27+00:00

Dagur tónlistarskólanna – tónleikar kl. 14:15 í Hveragerðiskirkju og á Selfossi

Dagur tónlistarskólanna verður haldinn hátíðlegur laugardaginn 8. febrúar 2020, með þrennum tónleikum á Selfossi og fernum svæðistónleikum sem dreifast um sýsluna.

Á tónleikunum þessa líflega dags má sjá þverskurð af nemendahópnum, því allir kennarar skólans senda nemendur til leiks.
Þema vetrarins og tónleikanna er „Tölvuleikja- og teiknimyndatónlist“ og spennandi að sjá hvernig það litar daginn.

Tónleikar verða haldnir sem hér segir:

10:00 í Félagsheimilinu Aratungu (nemendur úr Bláskógabyggð og Grímsnes- og Grafningshreppi)
10:00 í sal skólans Eyravegi 9, Selfoss

12:00 í Félagsheimilinu Árnesi (nemendur úr Hrunamannahreppi, Skriða- og Gnúpverjahreppi og Flóahreppi)
12:00 í sal skólans Eyravegi 9, Selfoss

14:15 í […]

Dagur tónlistarskólanna – tónleikar kl. 14:15 í Hveragerðiskirkju og á Selfossi2020-01-20T13:23:04+00:00

Dagur tónlistarskólanna – tónleikar kl. 12:00 í Árnesi og á Selfossi

Dagur tónlistarskólanna verður haldinn hátíðlegur laugardaginn 8. febrúar 2020, með þrennum tónleikum á Selfossi og fernum svæðistónleikum sem dreifast um sýsluna.

Á tónleikunum þessa líflega dags má sjá þverskurð af nemendahópnum, því allir kennarar skólans senda nemendur til leiks.
Þema vetrarins og tónleikanna er „Tölvuleikja- og teiknimyndatónlist“ og spennandi að sjá hvernig það litar daginn.

Tónleikar verða haldnir sem hér segir:

10:00 í Félagsheimilinu Aratungu (nemendur úr Bláskógabyggð og Grímsnes- og Grafningshreppi)
10:00 í sal skólans Eyravegi 9, Selfoss

12:00 í Félagsheimilinu Árnesi (nemendur úr Hrunamannahreppi, Skriða- og Gnúpverjahreppi og Flóahreppi)
12:00 í sal skólans Eyravegi 9, Selfoss

14:15 í […]

Dagur tónlistarskólanna – tónleikar kl. 12:00 í Árnesi og á Selfossi2020-01-20T13:23:23+00:00
Þessi vefur notar vafrakökur (cookies) til að tryggja sem besta upplifun þegar hann er skoðaður. Þessi borði hverfur þegar þú samþykkir notkun. Þú getur breytt stillingum á kökum hvenær sem er. Í lagi