Dagur tónlistarskólanna – tónleikar kl. 10:00 í Aratungu og á Selfossi

Dagur tónlistarskólanna verður haldinn hátíðlegur laugardaginn 8. febrúar 2020, með þrennum tónleikum á Selfossi og fernum svæðistónleikum sem dreifast um sýsluna.

Á tónleikunum þessa líflega dags má sjá þverskurð af nemendahópnum, því allir kennarar skólans senda nemendur til leiks.
Þema vetrarins og tónleikanna er „Tölvuleikja- og teiknimyndatónlist“ og spennandi að sjá hvernig það litar daginn.

Tónleikar verða haldnir sem hér segir:

10:00 í Félagsheimilinu Aratungu (nemendur úr Bláskógabyggð og Grímsnes- og Grafningshreppi)
10:00 í sal skólans Eyravegi 9, Selfoss

12:00 í Félagsheimilinu Árnesi (nemendur úr Hrunamannahreppi, Skriða- og Gnúpverjahreppi og Flóahreppi)
12:00 í sal skólans Eyravegi 9, Selfoss

14:15 í […]

Dagur tónlistarskólanna – tónleikar kl. 10:00 í Aratungu og á Selfossi2020-01-20T13:21:19+00:00

Strengjasveit með kertatónleika í Listasafni Árnesinga

Strengjasveit með kertatónleika í Listasafni Árnesinga

18. desember hélt eldri strengjasveit undir stjórn Guðmundar Kristmundssonar, árlega kertatónleika í Listasafni Árnesinga í Hveragerði. Það skapast alltaf skemmtileg stemning á þessum tónleikum þar sem leikið er við kertaljós og aðrar týrur, því allt verður svo notalega kyrrt og hlustun eflist um leið.

Strengjasveitin fékk með sér góða gesti í ár, því sönghópur skólans tók þátt í tveimur verkum og Kristín Viðja Vernharðsdóttir lék einleik á blokkflautu í einu verkanna. Hvort tveggja mjög gott krydd á tónleikana. Við þökkum Ingu á Listasafninu fyrir að taka svo vel á móti okkur.

[…]

Strengjasveit með kertatónleika í Listasafni Árnesinga2019-12-27T11:13:24+00:00

Foreldraheimsóknavika 13. – 17. janúar 2020

Foreldraheimsóknavika vorannar verður 13. – 17. janúar. Þessa viku eru foreldrar sérstaklega boðnir velkomnir í tíma með börnum sínum (18 ára og yngri). Í heimsóknartímanum fer kennari m.a. yfir miðsvetrarmat, námsframvindu, hvort nemandinn taki próf á önninni og hvaða tónleikar eru framundan. Vinsamlegast hafið samband við kennara ef tíminn þessa viku hentar ekki og finnið annan tíma.

Foreldraheimsóknavika 13. – 17. janúar 20202019-12-27T09:43:48+00:00

Blokkflautusveitin á jólatónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands

Helgina 14. og 15. desember tók eldri blokkflautusveit skólans (skipuð 10 blokkflautuleikurum og fjórum slagverksleikurum) þátt í fernum jólatónleikum með Sinfóníuhljómsveit Íslands í Hörpu. Þetta var mikið ævintýri og mjög spennandi verkefni að takast á við. Hópurinn stóð sig afskaplega vel og fékk hann mikið hrós fyrir frammistöðuna, fallegan leik og sviðsframkomu.

Á meðfylgjandi myndum má sjá hópinn á æfingu í Hörpu og í konsertklæðum á tónleikadag.

  

  […]

Blokkflautusveitin á jólatónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands2019-12-17T10:37:12+00:00

Dásamlegur flutningur í Seltjarnarneskirkju

Eyrún Huld Ingvarsdóttir, nemandi Tónlistarskóla Árnesinga, lék einleik á fiðlu með Sinfóníuhljómsveit áhugamanna í Seltjarnarneskirkju 30. nóvember sl.

Á tónleikunum komu fram tveir einleikarar sem valdir voru úr hópi þátttakenda á lokahátíð Nótunnar (uppskeruhátíð tónlistarskólanna) sl. vor, þær Eyrún Huld og Þórunn Sveinsdóttir frá Allegro Suzukitónlistarskólanum. Kennari Eyrúnar er Guðmundur Pálsson fiðlukennari og til gamans má geta þess að Þórunn er barnabarn Guðmundar Kristmundssonar fiðlukennara við Tónlistarskóla Árnesinga 🙂

Flutningur Eyrúnar var mjög fallegur, öruggur og blæbrigðaríkur. Vorum við afskaplega stolt af þessum glæsilega fulltrúa skólans.

Meðfylgjandi eru myndir af Eyrúnu Huld og Þórunni að afloknum tónleikum.

[…]

Dásamlegur flutningur í Seltjarnarneskirkju2019-12-11T10:12:50+00:00

Reglur vegna óveðurs og ófærðar

11. desember 2019. Foreldrar eru beðnir um að meta hvort nemandi mætir, út frá aðstæðum.

Reglur vegna óveðurs og ófærðar

Skólasvæði Tónlistarskóla Árnesinga nær yfir alla Árnessýslu. Af þeim sökum getur verið misjafnt milli kennslustaða hvort kennsla falli niður eða ekki, bresti á óveður. Eftirfarandi reglur eru því hafðar að leiðarljósi:

  1. Falli kennsla niður í grunnskóla vegna óveðurs eða ófærðar, fellur kennsla tónlistarskólans líka niður á sama grunnskólasvæði.
  2. Komist nemandi ekki í kennslustund vegna óveðurs eða ófærðar, ber honum að tilkynna forföll.
  3. Komist kennari ekki til kennslu vegna óveðurs eða ófærðar, tilkynnir tónlistarskólinn um forföll.
Reglur vegna óveðurs og ófærðar2019-12-11T08:19:05+00:00

Kennsla felld niður frá kl. 15:00, 10. des.

Vegna afleitrar veðurspár fellur öll kennsla niður í Tónlistarskóla Árnesinga frá kl. 15.00 í dag, 10. desember.

Kennsla felld niður frá kl. 15:00, 10. des.2020-01-29T09:19:53+00:00
Þessi vefur notar vafrakökur (cookies) til að tryggja sem besta upplifun þegar hann er skoðaður. Þessi borði hverfur þegar þú samþykkir notkun. Þú getur breytt stillingum á kökum hvenær sem er. Í lagi