Loading view.
Framhaldsprófstónleikar Helgu Höeg 22. mars
FRAMHALDSPRÓFSTÓNLEIKAR Helga Höeg Sigurðardóttir lýkur framhaldsprófi í píanóleik frá Tónlistarskóla Árnesinga með opinberum tónleikum í sal tónlistarskólans Eyravegi 9 á Selfossi, 22. mars kl. 17:15. Hvetjum við Sunnlendinga til að nýta sér þetta góða tækifæri til að hlýða á glæsilega tónleika, enda liggur mikil vinna að baki þegar kemur að útskrift frá skólanum. Á dagskrá eru verk eftir Bach, Beethoven, Bartók, Rachmaninoff, Dvorák og Brahms. Meðleikur á fiðlu: Eyrún Huld Ingvarsdóttir. Kennari Helgu er Miklós Dalmay. Aðgangur að tónleikum er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir!