Events
-
-
Umsókn um skólavist 2023-2024 – upplýsingar
UMSÓKN UM SKÓLAVIST 2023– 2024 Sótt er um rafrænt á heimasíðu Tónlistarskóla Árnesinga, www.tonar.is. Smelltu á: UMSÓKN UM SKÓLAVIST efst á heimasíðunni og fylltu út allar umbeðnar upplýsingar. Þeir sem sækja um fyrir 1. júní 2023 verða í fyrsta hópnum sem tekinn er inn, en sækja má um skólavist allt árið. Nemendur sem fá skólavist, fá tölvupóst í ágúst með upplýsingum um greiðslu skólagjalda. Á þessari slóð má sjá: Dreifibréf 2023 með upplýsingum um hjóðfæraval, skólagjöld og fleira.
-
-
Starfsdagar kennara
21. - 25. ágúst eru starfsdagar kennara. Á starfsdögum sækja kennarar fundi og námskeið, undirbúa vetrarstarfið og setja saman stundaskrár. Kennarar hafa samband við sína nemendur á starfsdögum vegna stundaskrárgerðar.
-
Einkatímar hefjast 28.8.2023
Kennsla í einkatímum hefst mánud. 28. ágúst 2023 samkvæmt stundaskrá.
-
-
Hóptímar hefjast 4.9.2023
4. september hefjast allir hóptímar, þ.e. tónfræðitímar, hljómsveitaræfingar, samspil og meðleikstímar. Upplýsingar um skráningu í hóptíma fást hjá kennurum og í SpeedAdmin appinu.
-
Foreldraheimsóknarvika
Í foreldraheimsóknarviku eru foreldrar sérstaklega boðnir velkomnir í tíma með barni sínu, til að fara yfir markmið og verkefni vetrarins með kennara. Foreldrar eru að auki velkomnir í kennslustund hvenær sem er.
-
Starfsdagur tónlistarskólakennara 28.9.2023
Öll kennsla fellur niður fimmtud. 28. september vegna starfsdags tónlistarskólakennara, en þeir sækja námskeið og fundi þennan dag.
-
Föstud. 29. sept. kennt skv. stundaskrá
Föstud. 29. sept. er kennt samkvæmt stundaskrá í Tónlistarskóla Árnesinga. Grunnskólakennarar í Árnessýslu eru á haustþingi þennan dag og því ekki almenn kennsla í grunnskólunum. Nemendur/foreldrar eru beðnir um að hafa samband við tónlistarkennara ef spurningar vakna vegna kennslu 29. sept.
-
-
Haustfrí
Haustfrí 12. – 17. október. Öll kennsla fellur niður í tónlistarskólanum þessa daga. 12. og 13. október eru sameiginlegir frídagar tónlistarskólans, flestra grunnskóla sýslunnar og FSu. ATH. 16. og 17. október eru frídagar í tónlistarskólanum, en ekki í hinum skólunum. Þessir frídagar eru tilkomnir vegna styttingar vinnutíma tónlistarkennara.
-
-
Blásaradeildartónleikar 3. nóv. – Sal Stekkjaskóla
Blásaradeildartónleikar verða haldnir í sal Stekkjaskóla á Selfossi. fös. 3. nóv. kl. 17:00 Á þessum tónleikum er fókusinn á alls konar stærri og smærri samspil. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir!
-
Blokkflautudeildartónleikar 6. nóv. – Sal Stekkjaskóla
Blokkflautudeildartónleikar verða haldnir í sal Stekkjaskóla á Selfossi, mán. 6. nóv. kl. 18:00. Á þessum tónleikum er fókusinn á alls konar stærri og smærri samspil. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir!