2024-05-17T00:00:00+00:00

Views Navigation

Event Views Navigation

Today

Þematónleikar 20. apríl kl. 10, 12.30 og 15:00 Selfossi, Skálholti, Þorlákshöfn og Hveragerði

Þematónleikar 20. apríl. Tónlistarskóli Árnesinga stendur fyrir stórum tónleikadegi laugardaginn 20. apríl nk. Haldnir verða sex tónleikar á fjórum stöðum í Árnessýslu, þ.e. í Stekkjaskóla Selfossi, Skálholtskirkju, Þorlákskirkju og Hveragerðiskirkju. Þema tónleikanna er Eurovision-tónlist og spennandi að sjá og heyra hvaða lög hafa orðið fyrir valinu.   Tónleikar verða sem hér segir: 10:00 – Stekkjaskóli Selfossi 10:00 – Skálholtskirkja   12:30 – Stekkjaskóli Selfossi 12:30 – Þorlákskirkja   15:00 – Stekkjaskóli Selfossi 15:00 – Hveragerðiskirkja   Aðgangur er ókeypis – verið öll hjartanlega velkomin!

Vortónleikar í byrjun maí

Vortónleikar. Í byrjun maí halda kennarar vortónleika með sínum nemendum. Upplýsingar um vortónleika fást hjá kennurum.

Framhaldsprófstónleikar Sigurrósar Lilju 8. maí í Hveragerðiskirkju

FRAMHALDSPRÓFSTÓNLEIKAR Sigurrós Lilja Ragnarsdóttir lýkur framhaldsprófi í söng frá Tónlistarskóla Árnesinga með opinberum tónleikum í Hveragerðiskirkju, 8. maí kl. 18:00 Við hvetjum Sunnlendinga til að nýta sér þetta góða tækifæri til að hlýða á glæsilega tónleika, enda liggur mikil vinna að baki þegar kemur að útskrift frá skólanum. Meðleikur: Ester Ólafsdóttir píanó og orgel, Laufey Dóra Friðbjarnardóttir söngur og sönghópur. Á dagskrá eru fjölbreytt verk eftir íslensk og erlend tónskáld og textahöfunda. Kennari Sigurrósar Lilju er Margrét S. Stefánsdóttir.   Aðgangur að tónleikunum er ókeypis - Verið öll hjartanlega velkomin!  

Smiðjuvika 13. – 17. maí.

Smiðjuvika 13. – 17. maí. Í síðustu kennsluviku skólaársins stokkum við alla kennslu upp og nemendur sækja 1 – 2 smiðjur/námskeið í stað hefðbundinna kennslustunda. - Boðið verðu uppá smiðjur á öllum kennslustöðum. - Nánari upplýsingar um smiðjur bárust nemendum og foreldrum í tölvupósti 2. maí. - Kennarar skrá nemendur í smiðjur.

Skólaslit 21. – 27. maí – allar tímasetningar hér

Skólaslit verða á kennslustöðum sem hér segir: Þri. 21. maí kl. 16:00 – Félagsheimili Hrunamanna, Flúðum Þri. 21. maí kl. 18:30 – Þorlákskirkja   Mið. 22. maí kl. 15:00 – Félagsheimilið Árnesi Mið. 22. maí kl. 16:00 – Aratunga Mið. 22. maí kl. 18:30 – Hveragerðiskirkja   Fim. 23. maí kl. 16:00 – Barnaskólinn á Stokkseyri Fim. 23. maí kl. 18:00 – Sunnulækjarskóli, Selfossi   Fös. 24. maí kl. 16:00 – Þjórsárver   Mán. 27. maí kl. 17:30 – Skálholtskirkja (nemendur úr Kerhólsskóla og frá Laugarvatni)   Skólaslit eru ólík milli staða og helgast það af nemendafjölda. Á minni kennslustöðunum eru [...]

Þessi vefur notar vafrakökur (cookies) til að tryggja sem besta upplifun þegar hann er skoðaður. Þessi borði hverfur þegar þú samþykkir notkun. Þú getur breytt stillingum á kökum hvenær sem er. Í lagi