2026-11-29T00:00:00+00:00

Views Navigation

Event Views Navigation

Today

Latest Past Events

Berglind María Ólafsdóttir – Framhaldsprófstónleikar í Hveragerðiskirkju

Framhaldsprófstónleikar Berglind María Ólafsdóttir syngur á framhaldsprófstónleikum í Hveragerðiskirkju, fimmtud. 9. maí kl. 20:00. Með tónleikunum lýkur Berglind María söngnámi frá Tónlistarskóla Árnesinga.   Á dagskrá eru m.a. verk eftir Sigvalda Kaldalóns, Jón Þórarinsson, Gunnar Reyni Sveinsson, Caccini, Haydn, Loesser, Schubert, Strauss og  Puccini.   Meðleikur á píanó: Einar Bjartur Egilsson Aðrir flytjendur: Sædís Lind Másdóttir og Sönghópur.   Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir.

Unnur Þórisdóttir – Framhaldsprófstónleikar í Selfosskirkju

Framhaldspróftónleikar Unnur Þórisdóttir syngur á framhaldsprófstónleikum í Selfosskirkju, fimmtud. 9. maí kl. 18:00. Með tónleikunum lýkur Unnur söngnámi frá Tónlistarskóla Árnesinga. Á dagskrá eru m.a. verk eftir Pál Ísólfsson, Bach, Brahms, Mozart og Schubert.   Meðleikur á píanó: Einar Bjartur Egilsson Aðrir flytjendur: Kolbrún Björk Ágústsdóttir þverflauta, Arnar Gísli Sæmundsson söngur og Sönghópur.   Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir.  

Píanó-hringekjuhátíð í Hveragerðiskirkju

Píanó-hringekjuhátíð verður haldnir í Hveragerðiskirkju mánud. 6. maí kl. 17:00 – 19:00. Byrjendur og þeir sem stefna að 1. stigi í píanóleik hafa í vetur fengið tækifæri til að æfa saman fjórhent og sexhent lög í verkefni sem kallast Hringekjan. Hugmyndin með hringekjunni er sú að gefa píanónemendum möguleika á að upplifa þann sterka félagslega þátt sem fylgir hljómsveitastarfi og samspili nemenda á hljóðfæri. Komu nokkrar píanó-hringekjur fram á svæðistónleikum á Degi tónlistarskólanna í febrúar og léku lagasyrpur sem tókust afskaplega vel. Lokaþáttur verkefnisins verður uppsekruhátíð Hrinekjunnar 6. maí í Hveragerði. Fær allur hópurinn tækifæri til að æfa og leika saman, [...]

Þessi vefur notar vafrakökur (cookies) til að tryggja sem besta upplifun þegar hann er skoðaður. Þessi borði hverfur þegar þú samþykkir notkun. Þú getur breytt stillingum á kökum hvenær sem er. Í lagi