Events
-
-
Umsókn um skólavist – upplýsingar
Í dreifibréfinu hér fyrir neðan (krækjunni) er að finna ýmsar upplýsingar sem gagnast þeim sem hafa áhuga á að sækja um skólavist fyrir næsta vetur: Dreifibréf 2025 Gott að sækja um sem fyrst til að tryggja sér pláss :)
-
-
Kennsla hefst 27. ágúst – einkatímar
Einkatímar hefjast samkvæmt stundaskrá miðvikud. 27. ágúst.
-
-
Hóptímar hefjast 3. september
Hóptímar (tónfræði, hljómsveitir og samspil) og undirleikstímar hefjast frá og með miðvikud. 3. september.
-
Foreldraheimsóknavika
Foreldraheimsóknavika verður dagana 8. – 12. september. Gott samband foreldra og kennara getur skipt sköpum um námsframvindu. Við hvetjum því forráðamenn eindregið til að mæta í tíma með barni sínu, og ræða við kennara um verkefni og markmið vetrarins. - Foreldrar eru að auki velkomnir í kennslustund hvenær sem er.
-
-
Tónlistarskólakennaraþing 10. október – kennsla fellur niður
Tónlistarskólakennaraþing 10. október – kennsla fellur niður. 10. október sækja kennarar Tónlistarskóla Árnesinga kennaraþing í Keflavík, ásamt tónlistarkennurum af Suðurlandi og Suðurnesjum. Engin hefðbundin kennsla verður þennan dag.
-
Haustfrí 23. – 28. október – kennsla fellur niður
Haustfrí 23. – 28. október – kennsla fellur niður. Ath. að 23. – 24. október eru eins og frídagar í grunnskólunum og FSu. og 28. október eru frídagar vegna styttingar vinnuviku tónlistarskólakennara.
-
-
Afmælis-hátíðartónleikar 15. nóv. Íþróttahúsinu Laugarvatni
Afmælis-hátíðartónleikar 15. nóvember kl. 14:00 í íþróttahúsinu á Laugarvatni. Tónlistarskóli Árnesinga var settur í fyrsta sinn í október árið 1955 og fagnar því 70 ára afmæli í haust. Í tilefni af afmælinu verða haldnir hátíðartónleikar þann 15. nóvember á Laugarvatni. Á tónleikunum leiða saman hesta sína nemendur úr öllum hljóðfæra- og söngdeildum skólans auk þess sem leikskólabörnum úr Uppsveitum og Flóa hefur verið boðin þátttaka. Nær allar hljómsveitir og samspilshópar skólans taka þátt í ævintýrinu og það má því reikna með að flytjendur verði um 150 talsins. Í verkefnavali er horft til tónskálda, útsetjara og hljómsveita úr Árnessýslu, auk þess sem [...]
-
Hausttónleikar
Hausttónleikar Vikuna 24. – 29. nóvember verða haldnir hausttónleikar hvers kennara, þar sem afrakstur haustannar fær notið sín, áður en jólalögin taka við. Allar nánari upplýsingar um stund og stað fáið nemendur hjá sínum kennara.
-
-
Jólaspilamennska í desember
Jólaspilamennska. 18. og 19. desember er kennsla óhefðbundin. Í stað kennslu þessa daga, fara kennarar með nemendur (eftir því sem við verður komið) út í samfélagið að leika jólalög og aðra fallega tónlist fyrir samborgarana. Sú spilamennska fer oft fram á öðrum dögum í desember, eða allt eftir því hvenær hægt er að heimsækja t.d. hjúkrunarheimili, leikskóla, verslanir, viðburði og annað sem óskað hefur verið eftir. Þá taka margir nemendur og kennarar tónlistarskólans virkan þátt í Litlu-jólum grunnskólanna þessa daga og leika undir dansi í kringum jólatré.
-
Jólafrí
Jólafrí Tónlistarskóla Árnesinga stendur frá 20.12.2025 til 5.1.2026. - mánud. 5. janúar 2026 er frí vegna starfsdags kennara, - þriðjud. 6. janúar 2026 hefst kennsla á ný samkvæmt stundaskrá.