2026-03-04T00:00:00+00:00

Views Navigation

Event Views Navigation

Today

Foreldraheimsóknavikan 12. – 16. janúar

Foreldraheimsóknavikan 12. – 16. janúar Í þessum formlegu heimsóknartímum er farið yfir miðsvetrarmatið, sem er núna aðgengilegt í SpeedAdmin. Þá er líka horft fram á veginn og markmið vorannar skoðuð. Hvaða tónleikahald er framundan, er stefnt á próf eða ekki (kennari metur hvenær nemandi er tilbúinn til að taka næsta stig), hvað gengur vel og hvað verið er að vinna með þessa stundina. * Auk þess að mæta í þessa formlegu heimsóknartíma eru foreldrar alltaf velkomnir í tíma og þurfa ekki að gera boð á undan sér.

Tónleikaröð 9. – 13. febrúar

Svæðistónleikar 9. – 13. febrúar Í febrúar höldum við nokkra svæðaskipta tónleika í tilefni af Degi tónlistarskólanna (sem er 7. febrúar). Viðfangsefni þessara tónleika er Dýrin okkar. - Þeir nemendur sem taka þátt, fá upplýsingar hjá kennurum.   Tónleikarnir verða sem hér segir: Mán. 9.2.2026 – Skálholtskirkja kl. 18:00 (nemendur úr Uppsveitum) Þri.  10.2.2026 – Hveragerðiskirkja kl. 18:00 (nemendur úr Hveragerði og Ölfusi) Mið. 11.2.2026 – Stekkjaskóli kl. 17:00 (nemendur úr Árborg + Flóa) Mið. 11.2.2026 – Stekkjaskóli kl. 18:30 (nemendur úr Árborg + Flóa) Fim. 12.2.2026 – Stekkjaskóli kl. 18:00 (nemendur úr Árborg + Flóa) Fös. 13.2.2026 – Þorlákskirkja kl. [...]

Starfsdagur á öskudegi 18. febrúar

Kennsla fellur niður miðvikud. 18. febrúar vegna starfsdags kennara. Daginn nýta kennarar til undirbúnings vorannar, með fundum og námskeiðum.

Vetrarfrí

Öll kennsla fellur niður í tónlistarskólanum vikuna 23. – 27. febrúar. 23.– 24. febrúar eru samræmdir frídagar við stærstu grunnskóla Árnessýslu og FSu, en 25. – 27. febrúar eru frídagar vegna styttingar vinnutíma tónlistarskólakennara.

Framhaldsdeildartónleikar í Hveragerðiskirkju 16. mars

Framhaldsdeildartónleikar verða haldnir mánudaginn 16. mars kl. 18:15 í Hveragerðiskirkju. Flytjendur hafa allir lokið miðprófi (5. stigi) á sitt hljóðfæri. Dagskrá er fjölbreytt og gaman að fylgjast með leikni nemendanna þegar hér er komið í námi. Aðgangur er ókeypis - Verið öll hjartanlega velkomin!

Miðdeildartónleikar í sal skólans 17. mars

Miðdeildartónleikar verða haldnir þriðjudaginn 17. mars kl. ­­­­­18:15 í sal skólans, Eyravegi 9, Selfossi Dagskrá er fjölbreytt að vanda og koma nemendur fram á hin ýmsu hljóðfæri. Flytjendur hafa allir lokið grunnprófi (3. stigi) á sitt hljóðfæri og alltaf gaman að fylgjast með þessum þróttmikla hópi. Aðgangur er ókeypis - Verið öll hjartanlega velkomin!

Prófadagar – kennsla fellur niður

Prófadagar verða 24.-26. mars 2026. Á prófadögum fellur kennsla niður, en kennarar eru á ferð og flugi að fylgja nemendum í próf og að dæma próf. Ekki taka allir nemendur próf á prófadögum, heldur meta kennarar hvenær nemendur eru tilbúnir að þreyta næsta stigs- eða áfangapróf. Nánari upplýsingar um námsmat í Tónlistarskóla Árnesinga má finna hér: Námsmat — Tónlistarskóli Árnesinga

Páskafrí

Páskafrí 28. mars - 6. apríl. Öll kennsla fellur niður þessa daga. Kennsla hefst á ný eftir páska þriðjud. 7. apríl.

Píanó-hringekjutónleikar í Stekkjaskóla 15. apríl

Píanó-hringekjutónleikar verða haldnir miðvikud. 15. apríl kl. ­­­­­18:00 í Hátíðarsal Stekkjskóla, Selfossi Á tónleikunum koma fram píanónemendur á öllum stigum og leika fjórhent og sexhent lög á píanó. Verður verkefnum fléttað saman í skemmtilegt ferli. Aðgangur er ókeypis – Verið öll hjartanlega velkomin!

Þessi vefur notar vafrakökur (cookies) til að tryggja sem besta upplifun þegar hann er skoðaður. Þessi borði hverfur þegar þú samþykkir notkun. Þú getur breytt stillingum á kökum hvenær sem er. Í lagi