Latest Past Events
Hausttónleikar standa sem hæst
Hausttónleikar kennaranna standa núna sem hæst og eiga eftir að teygja sig eitthvað inn í desembermánuð. Á hausttónleikum fá nemendur að njóta sín sem einleikarar og fá þjálfun í framkomu, hver hjá sínum kennara. Upplýsingar um tímasetningar hausttónleika fást hjá kennurum.
Deildatónleikaröð í Stekkjaskóla
Dagana 6. - 13. nóvember verða haldnir 6 deildatónleikar í Stekkjaskóla. Miðvd. 6. nóvember – gítardeild kl. 18:30 Fimmtud. 7. nóvember - strengjadeild kl. 18:30 Föstud. 8. nóvember – rytmísk deild kl. 17:00 Mánud. 11. nóvember - píanódeild kl. 18:30 Þriðjud. 12. nóvember - blásaradeild kl. 18:30 Miðvd. 13. nóvember - blokkflautudeild kl. 18:30 Aðgangur að tónleikunum er ókeypis - Verið öll hjartanlega velkomin!
Iris Kramer Quartet í sal skólans Selfossi 31. október
Iris Kramer Quartet heldur tónleika í sal Tónlistarskóla Árnesinga, Eyravegi 9, þann 31. október kl. 20:00. Tónleikarnir eru hluti af Október-menningarmánuði í Árborg. Sjá nánar hér: Iris Kramer Quartet | Viðburðadagatal | Sveitarfélagið Árborg (arborg.is) Aðgangseyrir 3.500 krónur Kvartettinn skipa: Iris Kramer: Trumpet, Fluegelhorn, Compositon Henriette Thorun: Bass Jan Hauf: Drums Jonas Oppermann: Piano Verið öll hjartanlega velkomin!