Latest Past Events
Kertatónleikar strengjasveitar í Listasafninu
Eldri strengjasveit hefur það sem fasta venju í desember, að halda svonefnda kertatónleika í Listasafni Árnesinga í Hveragerði. Þetta eru sérlega notalegir tónleikar þar sem tónlistin fær að njóta sín í mildri birtu kertaljósa og týra af ýmsu tagi. Tónleikarnir verða að þessu sinni haldnir miðvikud. 18. desember kl. 20:00 og eru allir hjartanlega velkomnir.
Eldri blokkflautusveit með Sinfóníuhljómsveit Íslands 14. og 15. des.
14. og 15. desember kl. 14:00 og 16:00 báða dagana, mun eldri blokkflautusveit Tónlistarskóla Árnesinga leika með Sinfónlíuhljómsveit Íslands á jólatónleikum sveitarinnar. Þetta er einstaklega spennandi verkefni og mikil tilhlökkun að spila með hljómsveitinni á Eldborgarsviði Hörpu.
Eyrún Huld með Sinfóníuhljómsveit áhugamanna
30. nóvember kl. 16:00 mun Eyrún Huld Ingvarsdóttir, fiðlunemandi skólans leika með Sinfóníuhljómsveit áhugamanna í Seltjarnarneskirkju. Eyrúnu Huld hlaut þennan heiður, þegar hún var valin úr glæsilegum hópi fiðluleikara á lokatónleikum Nótunnar í Hofi á Akureyri sl. vor.