Tímamót – Stjórnemendaskipti við Tónlistarskóla Árnesinga 1. ágúst 2026
2026-03-12T13:48:16+00:00Það er komið að tímamótum í stjórn Tónlistarskóla Árnesinga, því 1. ágúst nk. láta bæði skólastjóri og aðstoðarskólastjóri af störfum.
Helga Sighvatsdóttir skólastjóri og Jóhann I. Stefánsson hafa bæði komið að stjórn tónlistarskólans sl. 25 – 26 ár. Helga sem aðstoðarskólastjóri 2000 – 2017 og skólastjóri frá 2018 – 2026 auk blokkflautukennslu og Jóhann sem stjórnandi á skrifstofu frá 2001 – 2017 og aðstoðarskólastjóri frá 2018 – 2026 auk málmblásturskennslu.
Helga hverfur til annarra verkefna, en Jóhann mun áfram sinna kennslu við skólann.
Skemmtileg og gefandi ár eru að baki, sem við þökkum innilega fyrir!
Helga og Jóhann
[…]
[…]
[…]

[…]
