Engin kennsla mánudaginn 2. nóvember
2020-11-02T10:01:14+00:00Öll kennsla fellur niður mánudaginn 2. nóvember. Stjórnendur og kennarar fara yfir nýja reglugerð um takmarkanir á skólastarfi.
Öll kennsla fellur niður mánudaginn 2. nóvember. Stjórnendur og kennarar fara yfir nýja reglugerð um takmarkanir á skólastarfi.
Það var stór stund í tónlistarsögu Sunnlendinga þegar stofnuð var Sinfóníuhljómsveit Suðurlands á haustdögum. Stjórnandi sveitarinnar er Guðmundur Óli Gunnarsson, en hann kom einnig að stofnun Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands fyrir 27 árum síðan og var stjórnandi hennar í 22 ár. Hér er því byggt á mikilli reynslu.
Sinfóníuhljómsveit Suðurlands hélt sína fyrstu tónleika 16. september og voru það grunnskólanemendur í Þorlákshöfn, Hveragerði og uppsveitum sem fengu að njóta þeirrar skemmtilegu dagskrár sem boðið var uppá. Því miður tókst ekki að halda tónleika í Árborg vegna Covid.
Það er gaman að geta þess að kennarar Tónlistarskóla Árnesinga skipuðu að stórum hluta hina nýstofnuðu hljómsveit, auk […]
Tónlistarskóla Árnesinga berast af og til gjafir frá velunnurum.
Þannig var það þegar Ingibjörg Elsa Björnsdóttir, foreldri og nemandi við skólann, kom færandi hendi á dögunum með þráðlausan Sennheiser míkrófón og mixer. Gjöfina sagði hún vera í minningu bróður síns Sigurðar Björnssonar, sem lést 2006, „var mikill tónlistaraðdáandi, elskaði Bítlana og hlustað mikið á tónlist“.
Ætlunin er að tækin nýtist bæði rytmísku- og söngdeildinni og er andvirði hennar um 70.000 krónur.
Við þökkum Ingibjörgu Elsu innilega fyrir gjöfina og hlýhug til tónlistarskólans.

Við afhendingu gjafarinnar 1. október 2020

Það er alltaf ánægjulegt og stór áfangi þegar nemendur ljúka framhaldsprófi frá tónlistarskólanum. Í vor lauk Margrét Guangbing Hu framhaldsprófi og hélt tilheyrandi tónleika í Hveragerðiskirju þann 28. maí sl. Til gamans má geta þess að Margrét er yngsti nemandi Tónlistarskóla Árnesinga sem lýkur framhaldsprófi, en hún útskrifast frá Grunnskólanum í Hveragerði í vor.
Margrét hóf Suzuki-píanónám við Tónlistarskóla Árnesinga árið 2009, þá 5 ára gömul, en kennari hennar frá upphafi hefur verið Ester Ólafsdóttir. Hún hefur komið fram við fjölda tækifæra innan og utan skólans og tók m.a. þátt í svæðistónleikum Nótunnar (uppskeruhátíð tónlistarskólanna) í Hafnarfirði 2014. Hún lék líka í […]
Nemendur sem óska eftir skólavist veturinn 2020 – 2021 sækja um rafrænt með því að smella á hnappinn UMSÓKN UM SKÓLAVIST hér fyrir ofan.
(Núverandi nemendur sækja um í gegnum foreldragátt).
Í þessum hlekk (Dreifibréf 2020) má sjá upplýsingar um það nám sem í boði er, en þær er jafnframt að finna hér á heimasíðu skólans.
Það hallar í lok þessa sérstaka vetrar. Ekki er hægt að segja annað en að nemendur, foreldrar og kennarar hafi tekist á við aðstæðurnar af miklum dugnaði og æðruleysi. Framfarir nemenda hafa í raun verið undraverðar þrátt fyrir allt.
Einkatímar, undirleikstímar og tónfræðitímar – kennsla hefst á ný á öllum kennslustöðum, samkvæmt stundaskrá.
ATH. Nemendur, foreldrar og kennarar hafa áfram val um fjarkennslu.
Hljómsveitaæfingar og samspilstímar falla niður.
Umgengnisreglur á kennslustöðum eru í samræmi við tilmæli almannavarna og mikilvægt að slaka ekki á þeim.
– Vandaður handþvottur fyrir hverja kennslustund.
– Sprittun snertiflata milli nemenda.
– 2 metrar milli manna (eldri en 16 ára).
– Umferð foreldra í húsnæði […]
Að baki er langur og skrítinn mánuður.
Frá og með mánud. 30. mars fer öll kennsla fram í fjarkennslu – og við höldum áfram fjarkennslu eftir páskafrí, þar til annað verður ákveðið.
Þó það sé ekki sýnilegt, þá er skólinn „iðandi af lífi“ frá morgni til kvölds. Kennarar hafa verið duglegir að skoða ýmsa fjarkennslumöguleika. Flestir kenna í gegnum Messenger, Skype, Zoom, Whereby, Google Hangout, Teams eða Facetime. Til viðbótar leggja kennarar inn verkefni, skanna og senda nótur og fá upptökur frá nemendum. Kennsla yngstu nemendanna fer fram í gegnum foreldrana.
Undirleikur felst aðallega í því að senda nemendum upptökur að undirleik, en einnig hefur […]
Suzukikennsla stendur traustum fótum í Tónlistarskóla Árnesinga og býður skólinn upp á fjölbreytt úrval hljóðfæra fyrir nemendur sína.
Kennslan er ætluð yngsta aldurshópnum og byggir námið ekki hvað síst á þátttöku foreldra og hlustun. Þegar nemendur hafa lokið hverri námsbók, útskrifast þeir úr bókinni með því að leika ákveðin lög á tónleikum.
Suzuki-útskriftartónleikar eru alltaf hátíðlegir og gaman að taka á móti skírteini í lok þeirra.
Á meðfylgjandi myndum má sjá nemendur og kennara að afloknum tónleikum. Til hamingju!

Verkefni nemenda og kennara tónlistarskólans eru mjög fjölbreytt.
Auk hefðbundinna tónleika og heimsókna eru nemendur og kennarar sýnilegir víða í samfélaginu.
Þeir heimsækja hjúkrunarheimili reglulega allan veturinn með hljóðfæraleik og söng. Hér má sjá fiðlunemendur leika á Fossheimum fyrr í vetur.

Nokkrir nemendur léku á upplestrarkeppnum grunnskólanna í liðinni viku. – Meðfylgjandi myndir voru teknar í Vallaskóla 28. mars.

Kennarar eru allan veturinn á flakki milli grunnskóla með hljóðfærakynningar og […]